Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jón Erik kláraði ekki og Braathen vann fyrstu verðlaun Brasilíu frá upphafi

Read Full Article →

Jón Erik Sigurðsson keppti í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í morgun. 77 keppendur hófu leik og þar af voru átta sem ekki tókst að klára fyrri ferðina. Það gerði Jón Erik hins vegr og skíðaði niður á 1:21,61 mínútu. Hann var í 38. sæti eftir fyrri ferðina, 7,98 sekúndum á eftir þeim hraðasta, norska Brasilíumanninum Lucas Pinheiro Braathen. Í seinni ferðinni fara fyrstu 30 úr þeirri fyrri niður í öfugri röð þannig að Braathen skíðaði þrítugasti í röðinni. Eftir spennandi seinni ferð fyrstu 30 keppendanna stóð Braathen upp sem sigurvegari með besta samanlagðan tímann, 2:25,00 mínútur og varð hann 58 hundruðustu úr sekúndu á undan næsta keppanda, Marco Odermatt frá Sviss. Lenti upp á kant við norska sambandið Braathen vann þar með ekki aðeins fyrstu gullverðlaun Brasilíu á Vetrarólympíuleikum, þetta eru jafnframt fyrstu verðlaun Brasilíu frá upphafi leikanna. Hann á norskan föður og brasilíska móður og hefur áður keppt fyrir Noreg. Hann lenti hins vegar upp á kant við norska skíðasambandið og fór að keppa fyrir Brasilíu þar sem móðir hans býr nú. Datt snemma í brautinni Eftir að 30 fremstu keppendur úr ferð höfðu lokið seinni ferðinni var farið eftir sætum úr fyrri ferð svo Jón Erik ræsti 38. í röðinni í seinni ferðinni. Brautin var á þessum tímapunkti orðin mjög krefjandi og fljótlega eftir að Jón Erik ræsti rann hann til og fór út úr brautinni. Jón Erik keppir næst í sterkustu greininni snini, svigi, á mánudaginn.

Share this article