Innlent | mbl | 15.5.2026 | 20:25 „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Setja bókamerki Samantekt 20:25 Frétt: „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ 20:25 Frétt: X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað 18:15 Frétt: Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar 17:55 Frétt: Muni krefjast þess að Viðreisn sýni hollustu Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir þjóðina ekki mega gleyma sér í rétthugsun þegar kemur að innflytjendamálum. Þjóðin eigi öllu heldur að vera raunsæ og taka á móti eins mörgum innflytjendum og hún ráði við. Þetta kom fram í kappræðum Morgunblaðsins og mbl.is í dag, þar sem fram komu oddvitar Miðflokksins, Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Viðreisnar. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík. mbl.is/Karítas Spurði hvort Ari væri ósammála einhverju Í kappræðunum var hverjum oddvita gefinn kostur á að spyrja annan einnar spurningar og fékk Ari spurningu frá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins. Sagðist Sanna, ásamt fleirum, hafa skynjað málflutning forystu Miðflokksins í garð þeirra sem eru með erlendan uppruna eða eru innflytjendur á þann veg að verið væri að leitast við að gera þann hóp tortryggilegan og jafnvel verið að draga upp þá mynd að fólk með erlendan bakgrunn væri baggi á samfélaginu. Spurði hún því Ara hvort hann væri ósammála einhverju hjá forystu Miðflokksins. Í svari sínu sagði Ari svo ekki vera og sagðist vilja hlusta á það sem Miðflokkurinn hefði að segja fremur en hvernig orð flokksmanna væru túlkuð. Sagði hann þá raunverulegar áskoranir vera í rekstri borgarinnar, sem og hjá öðrum sveitarfélögum, þar sem ekki hefði nægilega hart verið tekið á innflytjendamálum. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins. mbl.is/Karítas „V ið getum ekki tekið við endalaust af fólki“ „Það kom nú bara fram hérna nýlega að tveir þriðju af þeim einstaklingum sem þiggja fjárhagsaðstoð frá borginni eru útlendingar og staðan, t.d. eins og í skólakerfinu, er bara orðin þannig að það er mjög erfitt að kenna í bekk þar sem fólk er á mismunandi miklum hraða varðandi námsgetu,“ sagði Ari. Frétt af mbl.is Hafa áhyggjur af börnunum í núverandi fyrirkomulagi Frétt af mbl.is Ísland á hættulegum stað vegna vanrækslu Frétt af mbl.is Börnin kunna jafnvel enga bókstafi Bætti hann við að það væri eflaust ein af ástæðunum fyrir verri námsárangri nemenda. „Við megum ekki gleyma okkur í einhverri múgsefjun og rétthugsun. Það verður að vera hægt að ræða hvað við getum gert í þessu og eitt af því er auðvitað að við getum ekki tekið við endalaust af fólki. Það vita það allir.“ Sjáðu kappræðurnar í heild sinni: Frétt af mbl.is Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina 20:25 X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Morgunblaðið og mbl.is hafa að undanförnu ferðast vítt og breitt um landið og tekið hús á oddvitum, haldið borgarafundi og einnig boðið frambjóðendum í myndver Morgunblaðsins til kappræðna. Meira 20:25 „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir þjóðina ekki mega gleyma sér í rétthugsun þegar kemur að innflytjendamálum. Þjóðin eigi öllu heldur að vera raunsæ og taka á móti eins mörgum innflytjendum og hún ráði við. Meira 18:15 Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mælist langstærstur framboða í borginni, degi fyrir borgarstjórnarkosningar, með 31,3%. Fengi flokkurinn inn átta borgarfulltrúa og sína bestu kosningu í Reykjavík síðan árið 2010. Meira 17:55 Muni krefjast þess að Viðreisn sýni hollustu Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, telur að Samfylkingin muni krefjast þess að samstarfsflokkar sínir í ríkisstjórn muni sýna sér hollustu í kjölfar sveitarstjórnarkosninga. Meira 16:35 Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Það sem af er degi hafa 1.327 kosið hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Frá því að kjörstaðurinn var opnaður þann 17. apríl hafa 20.803 kosið þar. Meira 16:01 Einar segist telja að hugrakkt bandalag þurfi til að ráðast í kerfisbreytingar, hann vill gefa Samfylkingunni frí. 16:00 Sanna segir Vinstrið bjóða fram reynslu. 15:59 Björg segir að atkvæði til Viðreisnar tryggi rétta forgangsröðun. 15:58 Ari segist telja að hann sé rétti maðurinn til að snúa við rekstri borgarinnar. 15:58 Hildur segir að hægt sé að skapa bestu borg í heimi með breytingum. 15:57 Pétur segist óttast hægri U-beygju í borginni. 15:57 Lokaræður! 15:56 Segir börnin töluð of mikið niður Pétur deilir áhyggjum af menntakerfinu en segir að verið sé að tala börnin of mikið niður. Segir hann Samfylkingu ætla að setja meira fjármagn í skólana sem tryggi fleira fagfólk á gólfinu, ásamt því að auka við fjármagn í íslenskukennslu. 15:54 Vill einkunnir í tölustöfum Hildur segir Sjálfstæðisflokkinn vilja vinna meira með gögn og mælingar og vill flokkurinn samræmd lokapróf í grunnskólum. Þá eigi að gefa einkunnir í tölustöfum. Hún talar einnig fyrir móttökudeildum í grunnskólum, þannig sé börnum sem flytja til landsins tryggð mýkri lending. Einnig vill hún fara í símafrí í grunnskólum og mæla árangurinn, ásamt því að fara í læsisátak. Segir hún að Íslendingar hafi aldrei sýnt metnað fyrir menntakerfinu okkar. 15:50 Óraunsæ hugmynd Ari segir hugmynd umskóla án aðgreiningar óraunsæja. Ekki eigi að hrúga þeim saman í bekk sem eigi ekki heima saman. Hugmyndafræði og rétthugsun komi í veg fyrir að fólk vinni með raunsæjum hætti. Sýna meira Nýjast á mbl.is » Grindavík - Tindastóll, staðan er 62:69 „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Aston Villa - Liverpool, staðan er 2:1 Stefnir á ferðalag til Evrópu og sumar við sjóinn Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Heilbrigðissetur sérfræðinga fyrir allt Suðvesturland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið X26: Baráttusætin í Reykjavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Mest lesið Í gær Í vikunni Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Launin skert í fimmta sinn „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Brynjar Níelsson á grillinu Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Grindavík - Tindastóll, staðan er 62:69 „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ X26: Öll viðtöl og kappræður á einum stað Aston Villa - Liverpool, staðan er 2:1 Stefnir á ferðalag til Evrópu og sumar við sjóinn Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Heilbrigðissetur sérfræðinga fyrir allt Suðvesturland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Beðið í ár eftir svari frá Daða Má Mest lesið Í gær Í vikunni Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Launin skert í fimmta sinn „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Brynjar Níelsson á grillinu Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum