Innlent | mbl | 27.5.2026 | 13:51 Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri » Fleiri tengdar fréttir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir það koma á óvart að sjá Sjálfstæðisflokkinn mynda meirihluta með Viðreisn og Framsókn fremur en Miðflokknum. Hann segir ekkert hafa staðið í vegi fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi getað unnið með Miðflokknum. Tilkynnt var um meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar fyrr í dag. Mun Hildur Björnsdóttir taka við embætti borgarstjóra á meðan Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, forseti borgarstjórnar. Frétt af mbl.is Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Skýrt ákall um samstarf Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins „Í rauninni hef ég sagt það alveg frá því að kosningaúrslitin lágu fyrir að þau væru skýrt ákall um meirihlutasamstarf Miðflokks og Sjálfstæðisflokks. Það voru þessir flokkar sem unnu kosningasigur og í raun jafn stóran sigur. Við bættum við okkur jafn mörgum prósentustigum og borgarfulltrúum og Sjálfstæðisflokkurinn, en komum náttúrulega úr mjög litlu fylgi og engum borgarfulltrúa,“ segir Ari er hann er spurður um viðbrögð sín við nýjum meirihluta í borginni. „Miðflokkurinn vann hlutfallslega stærstan sigur í þessum kosningum og það var út af þeim málum sem flokkurinn barðist fyrir af krafti og setti á dagskrá. Bæði voru baráttumál flokkanna, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, mjög samrýmanleg og svo er augljóst að stuðningsmenn flokkanna studdu [samstarf].“ Frétt af mbl.is Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta „Það hlýtur að koma mjög á óvart“ Þá segir Ari það „mjög skrýtið“ að sjá Sjálfstæðisflokkinn mynda samstarf við Viðreisn í ljósi þess hve frábrugðnar áherslur flokkanna voru, eins og t.a.m. varðandi borgarlínuna. Þá bendir Ari aukinheldur á að Viðreisn hafi farið með stjórn borgarinnar síðustu tvö kjörtímabil, sem og Framsóknarflokkurinn að hluta til. „Þeir kjósa að fara fremur í samstarf með þeim flokkum sem bera ábyrgð á þeirri stefnu borgarinnar sem var verið að hafna heldur en að fara með þeim sem unnu með þeim sigur og eru með sömu áherslur. Það hlýtur að koma mjög á óvart, ég get nú ekki sagt annað.“ Frétt af mbl.is „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Ekkert sem stóð í vegi fyrir samstarfi Ari fundaði með Hildi mánudaginn 18. maí og föstudaginn 22. maí. Var eitthvað sérstakt á ykkar fundum sem kom í veg fyrir að þið gætuð farið í samstarf? „Nei, ég kannast ekki við það,“ segir Ari og segir fundina hafa farið vel fram og að þar hafi borið á uppbyggilegum samskiptum. „Það er ekkert sem hefði átt að standa í vegi fyrir því að flokkarnir gætu unnið saman.“ Rætt um Kjartan og Mörtu Hann segir þá að talað hafi verið um að það gæti þvælst fyrir samstarfi flokkanna að fyrrverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, hefðu yfirgefið flokkinn á síðasta kjörtímabili og gengið til liðs við Miðflokkinn. Segir Ari hins vegar að þegar Kjartan og Marta hafi gengið yfir í Miðflokkinn hafi verið búið að raða í efstu sæti listans og þau því endað í 13. og 15. sæti. „Þannig að það er augljóst að þau koma ekki við sögu í þessu samhengi. En þetta var eitt af því sem var svona í umræðunni en ég leit nú alltaf á það sem einhvern spuna og eitthvað sem hefði ekki tengingu við raunveruleikann í þessu.“ Frétt af mbl.is Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Miðflokkinn „Það er alveg nýtt fyrir mér“ Á blaðamannafundinum var lagt til að Ari yrði nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Sjálfur segist hann hafa fengið símtal þess efnis frá Hildi rétt fyrir klukkan 11 í dag, þegar blaðamannafundurinn hófst. „Þá nefndi hún að hún hygðist leggja þetta til en það er alveg nýtt fyrir mér.“ Segist þó Ari gera ráð fyrir því að hann muni nú velta stjórnarformennskunni fyrir sér, en á þó ekki von á því að sú ákvörðun liggi fyrir fyrr en um miðjan júní. „Ég virði alveg við Hildi það að þessi tillaga er vinsamleg í minn garð.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Olga í tveggja leikja bann „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Klárast ekki nema með samkomulagi við Miðflokkinn Ekkert pláss fyrir Liverpool-manninn í hollenska hópnum Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Daði um undirskriftalistann: „Mjög impónerandi“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ver Ísland gegn tölvuárásum Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Olga í tveggja leikja bann „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Klárast ekki nema með samkomulagi við Miðflokkinn Ekkert pláss fyrir Liverpool-manninn í hollenska hópnum Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“