- What: Ship update
- Impact: A ship named Ottó N. is now part of the Ísfélagið fleet for fishing operations.
Ottó N. Þorláksson VE 5 lagði að bryggju í Fjallabyggð á sunnudag. Skipið bætist í flota Ísfélagsins sem gerir út á rækju frá Siglufirði. Ottó er bolfiskskip sem var smíðað hjá Stálvík í Garðabæ árið 1981. Skipið er 50,6 metra langt, 10,3 metra breitt og alls 879 brúttótonn. Ísfélagið keypti skipið af HB Granda í byrjun árs 2018. Skemmra er síðan Ísfélagið og Rammi á Siglufirði sameinuðust eða í árslok 2022. Rammi gerði þá út fjögur fiskiskip frá Fjallabyggð og Þorlákshöfn og starfrækti fiskvinnslu í Þorlákshöfn og rækjuverksmiðju í Fjallabyggð.