Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gamla fréttin: „Nýr“ Páll Pálsson fyrir 180—200 milljónir

Read Full Article →

„Í fyrsta túrnum eftir breytingarnar var olíueyðslan 160-170 lítrar á klukkustund eða 3,7-3,8 tonn á dag, en áður fórum við með 5,5 tonn á dag að meðaltali,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS. Ef miðað er við að skipið sé á sjó 300 daga á ári, nemur olíusparnaðurinn 510 tonnum á ári eða 4,7 milljónum króna. Fimmti japanski togarinn sem tekinn er í gegn í Póllandi Fiskifréttir 28. október 1988. Páll Pálsson er sem kunnugt er fimmti japanski smíðaði togarinn af sex sem tekinn er í gegn hátt og lágt í Póllandi, og sá sjötti og síðasti er Ljósafellið sem væntanlegt er heim eftir áramótin. Guðjón kvaðst gera ráð fyrir að öll endurbygging skipsins, þar með talin véla- og tækjakaup annars staðar frá og mannakaup í tengslum við smíðina, kostaði á bilinu 180-200 milljónir króna. Skipið er sem nýtt og ætti að endast í 15 ár í viðbót, að sögn Guðjóns. Eitt ár frá veiðum sem sé alltof langur tími „Það má heita, að nú sé liðið ár frá því að við hættum veiðum í fyrra og þar til við komumst á sjó að nýju,“ sagði Guðjón. „Þetta er allt of langur tími. Ég hefði talið eðlilegt að skipið væri frá veiðum í 8-9 mánuði en það sem umfram er, eru tafir sem skrifast verða á pólsku skipasmíðastöðina. Annars er ég mjög ánægður með það sem út úr endurbótunum fékkst og skipið reyndist mjög vel, bæði á heimleiðinni og þegar við byrjuðum fiskveiðar í síðustu viku.“ Helstu breytingar Af nýjum tækjum sem sett voru í skipið má nefna nýjan Atlas djúpsjávarmæli, Simrad neðansjávarsónar fyrir flottroll, nýja Sailor-talstöð, JMC miðunarstöð og nýtt brunavarnarkerfi. Fiskifréttir hafa áður tíundað þær breytingar sem gerðar hafa verið á japönsku togurunum í Póllandi og fékk Páll Pálsson í höfuðdráttum sömu meðferð þar ytra. Segja má að flest sé nýtt nema skrokkurinn og er hann þó heldur ekki sá sami, því búið er að lengja skipið um 8,8 metra. Skipt var um vél, gír, skrúfubúnað og allt tilheyrandi. Fiskmóttaka stækkum um sex metra Fiskmóttöku var breytt, hún stækkuð fram um 6 metra og skipt í tvær sjálfstæðar móttökur. Nú er aðstaða til að ísa fisk í kör í skipinu. Fyrirkomulagi var breytt á togþilfari og settar tvær skeifur. Sett voru niður 4 grandaraspil (10 tonna), 4 bobbingaspil (5 t.), tvær flotvörpuvindur, tvö gilsaspil (10 t.), ein útdráttarvinda (4 t.) og tvær bakstroffuvindur (0,5 t.). Gengið var frá þilfarskrana á nýjum stað og endurnýjaðir um 60 fermetrar af efra þilfari og smíðuð ný skutrenna. Ný brú og íbúðir allar endurnýjaðar Ný brú var sett á skipið ásamt heilli íbúðarhæð undir henni. Íbúðir skipverja voru allar endurnýjaðar og skipt um lagnir í skipinu hátt og lágt. Sett var á skipið perustefni, rúmmál þess um 50 rúmmetrar. Perustefnisgeymir meðhöndlaður sem kjölfestugeymir. Settur undir skipið 25 cm djúpur kjölur. Togvinda tekin upp og yfirfarin. Settur í skipið elektrónískur stjórnbúnaður fyrir rafkerfi og fullkomið autotroll. Skipið sandblásið og málað. Áfram væri hægt að telja upp breytingar á skipinu en hér skal látið staðar numið. Ráðgarður hf. sá um hönnun og hafði umsjón með breytingunum á skipinu.

Share this article