Innlent | mbl | 14.2.2026 | 14:20 „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ „Val flokksmanna snýst um það hvort við gögnum héðan út á morgun sameinuð um nýja forystu, sameinuð um að leggja allt okkar í að vinna að Framsóknarhugsjóninni, sem er meitluð í orðin vinna, vöxtur, velferð,“ sagði Sigurður. mbl.is/Anton Brink „Hljómgrunnur fyrir stefnu okkar og grunngildum fer hratt vaxandi og vex samhliða hverri vondri ákvörðun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, og þær ákvarðanir eru margar og þeim fjölgar hratt.“ Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhannsson í sinni síðustu ræðu sem formaður á 38. flokksþingi Framsóknarflokksins á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu í dag. Á morgun verður kosið um nýjan formann flokksins þar sem Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður etja kappi um formennsku í stað Sigurðar Inga sem lætur af formennsku eftir 17 ár. „Þetta gerist ekki af sjálfu sér“ „Þegar við skiluðum ríkisstjórnarkeflinu síðast var landið okkar, þjóðin, í efsta sæti á lífskjaralista sameinuðu þjóðanna. Næst á eftir okkur voru Noregur og Sviss, sem höfðu á árinu áður verið í fyrsta og öðru sæti. Þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta gerist þegar samfélag nær jafnvægi á milli atvinnu, stöðugleika og velferðar,“ sagði Sigurður í ræðu sinni. „En við höfum einnig séð hvernig fer þegar flokkurinn stendur ekki saman, upplifað ósigra í kosningum og í kjölfarið ósamlyndi, metnaðarleysi og kjarkleysi. Þessa helgina höfum við val hvaða leið við viljum fara. Hvort þegar við förum á fætur á morgnana og lítum á glasið, hvort það sé hálf fullt eða hálf tómt. Við höfum val um hvort við viljum ekki henda af okkur oki minnimáttarmennskunnar og sækja fram samheldin, í samvinnu allra í grasrótinni og tala fyrir stefnu og grunngildum Framsóknar. Eða að halda áfram að vera lítil í okkur og tuða hvert við annað og út í hvert annað.“ „Við skulum gagnrýna af festu. Vera uppbyggileg. Bjóða leið út úr vandanum sem gagnrýndur er. Það er Framsóknarleiðin. Valið snýst ekki um formannskosningar. Sama hvor vinnur mun sú marka tímamót sem fyrsta konan sem kjörin er sem formaður Framsóknar í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Val flokksmanna snýst um það hvort við gögnum héðan út á morgun sameinuð um nýja forystu, sameinuð um að leggja allt okkar í að vinna að Framsóknarhugsjóninni, sem er meitluð í orðin vinna, vöxtur, velferð.“ mbl.is/Anton Brink Segir Samfylkinguna hafa stolið og mistúlkað stefnu Framsóknar „Framsókn hefur aldrei verið mikilvægari. Hljómgrunnur fyrir stefnu okkar og grunngildum fer hratt vaxandi og vex samhliða hverri vondri ákvörðun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, og þær ákvarðanir eru margar og þeim fjölgar hratt,“ sagði Sigurður. „Þegar vondar ákvarðanir ríkisstjórnar hækka verðbólgu og viðhalda þannig okurvöxtum, þegar vondar ákvarðanir ríkisstjórnar minnka hagvöxt og auka atvinnuleysi, þá mun fólk horfa til Framsóknar því við skiljum mikilvægi þess að atvinna sé fyrir alla. Við skiljum mikilvægi verðmætasköpunarinnar og að það þurfi að vera vöxtur á samfélagskökunni sem gerir okkur síðan kleift að standa undir vaxandi velferð íbúa fólksins í landinu. Vinna, vöxtur, velferð, er enda yfirskrift þessa þings.“ „Samfylkingin, leiðandi afl ríkisstjórnar, stal einu sinni, reyndar sem oftar, stefnu okkar. En af því að þau skilja ekki grundvöllinn hét það hjá þeim velferð, vöxtur, vinna. Við sjáum það á þingmálum þessa daga á þinginu, að þau halda að það sé hægt að auka velferðina án þess að það sé atvinna fyrir alla og án þess að það sé vöxtur í samfélaginu.“ „Fremstar á öllum alþjóðlegum mælikvarða“ „Ég nefndi fyrr í ræðu minni að eftir sjö ár í ríkisstjórn var Ísland komið í efsta sæti á lista sem þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna tekur saman. Þar eru meðal annars metnar lífslíkur við fæðingu, skólaganga, verg landsframleiðsla á mann og fleiri þættir. Næst á eftir okkur komu Noregur og Sviss, sem voru að keppa við okkur um gull, silfur og brons árinu áður, voru í fyrsta og öðru sæti. Ég ætla að vekja athylgi ykkar á því að þessar þjóðir eru ekki í ESB. Þær eru hins vegar alltaf fremstar á öllum alþjóðlegum mælikvarða.“ mbl.is/Anton Brink Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður etja kappi um formennsku í stað Sigurðar Inga sem lætur af formennsku eftir 17 ár. mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Stefán og félagar upp í annað sætið Saka Rússa um að hafa eitrað fyrir Navalní Beyoncé komin með glænýja hárgreiðslu „Ég var með blómin á heilanum í marga daga“ Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Framsókn kýs nýjan formann Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? Legurými staðið til boða í mánuði Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Beið sárþjáður fram á morgun Enginn veit hvað gerist næst Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Fangaverðir liggja ekki undir grun Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Stefán og félagar upp í annað sætið Saka Rússa um að hafa eitrað fyrir Navalní Beyoncé komin með glænýja hárgreiðslu „Ég var með blómin á heilanum í marga daga“ Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Fangaverðir liggja ekki undir grun Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Beið sárþjáður fram á morgun Enginn veit hvað gerist næst Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Fangaverðir liggja ekki undir grun Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð