Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Streist á móti vilja þjóðarinnar

Read Full Article →

Formenn ríkisstjórnarflokkanna telja niðurstöðu nýafstaðinna kosninga ekki hafa veikt stöðu sína. Þar hljóta þeir að tala gegn betri vitund. Stjórnin hefur gefist upp á að ná tökum á verðbólgu og háu vaxtastigi og sá því inngöngu í ESB sem töfralausn við efnahagsvandanum. Sem betur fer varð henni ekki kápan úr því klæðinu. Viðbrögð ráðherra við ósigrinum voru þeim ekki til framdráttar og svekkelsið, sérstaklega úr ranni Viðreisnar, er mikið. Flokkurinn var stofnaður fyrir áratug með það markmið að koma Íslandi inn í ESB. Nú þegar ljóst er að meirihluti þjóðarinnar hefur engan áhuga á því vakna áleitnar spurningar um pólitískt erindi flokksins. *** Yfirlætið sem oft einkennir orð og gjörðir ríkisstjórnarinnar endurspeglast í viðtali Morgunblaðsins við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Þar sagði hún: „Stemningin var hræðslan við breytingar, stemningin var ótti við eitthvað nýtt og eitthvað annað, og við vitum að það er alveg sterkt stef hjá fólki þegar það tekur ákvarðanir.“ Dómsmálaráðherra afgreiðir sem sagt þá 118 þúsund Íslendinga sem kusu nei sem hrædda við breytingar. Hún telur útilokað að hinir sömu telji ákjósanlegra að þjóðin haldi sjálf um eigin hagsmuni og að reglufargan og hnignun hagkerfa stærstu þjóða innan ESB geri sambandið að lítið spennandi félagsskap. *** Eftir að vilji þjóðarinnar lá fyrir neituðu formenn ríkisstjórnarflokkanna að gefa skýr svör um hvort aðildarumsóknin frá 2009 yrði formlega dregin til baka en tönnluðust á að niðurstaðan yrði virt. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þó allan vafa af sinni afstöðu til málsins skömmu síðar og kvaðst ekki vilja draga umsóknina til baka. Virðingin fyrir niðurstöðu kosninganna er því ekki meiri en það. Þorgerður, Kristrún Frostadóttir og fleiri stjórnarliðar drógu svo þá áhugaverðu ályktun af niðurstöðu kosninganna að hún benti til þess að meirihluti landsmanna hafi hafnað aðildarviðræðum við ESB sökum þess hve ánægðir þeir eru með EES-samninginn. Minnkandi samkeppnishæfni, blýþungt regluverk og aðrir ókostir sambandsins höfðu auðvitað ekkert með það að gera. Týr hvetur ríkisstjórnina til virða þjóðarvilja og draga aðildarumsóknina til baka. Þar með yrði málið úr sögunni og hægt að róa öllum árum að því að lækka verðbólgu og vexti. Treysti stjórnin sér ekki til þess þarf hún að leggja árar í bát og hleypa öðrum að. Týr er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article