Innlent | Morgunblaðið | 17.5.2026 | 13:30 Styrkir streyma austur í Stuðlagil Stuðlagil er ægifagurt og hefur verið vinsæll áfangastaður ferðamanna frá árinu 2018. Ljósmynd/Wikimedia Commons Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Náttúruauðlindir Íslands Kraumandi hverir og naðurtunga Hagnaður OR dregst saman um 65,4% Frumvarp um þjóðgarð á miðhálendinu lagt fram í vor Uppbyggingu í Kerlingarfjöllum verði frestað Hafa safnað yfir 2.000 undirskriftum » Fleiri tengdar fréttir „Planið er að bæta öryggi á svæðinu. Ég ætla að setja öryggisgirðingu meðfram stígnum og tengja við pallana sem ég setti upp síðasta haust. Svo þarf að bæta gróðurinn sem er búið að traðka niður,“ segir Marteinn Óli Aðalsteinsson, bóndi á Klausturseli á Jökuldal. Marteinn fékk hæstu úthlutunina úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en úthlutað var í lok apríl. Styrkur Marteins var í tveimur hlutum, 35 milljónir króna til að bæta öryggi og náttúruvernd við austanvert Stuðlagil og 35,5 milljónir til að bæta aðgengi niður að Jöklu við austanvert Stuðlagil. Marteinn Óli játar því að það hafi komið sér á óvart hversu háan styrk hann fékk. „Já, þetta er ótrúlega stór prósenta af úthlutun þessa árs sem kemur til mín,“ segir hann en síðasta haust fékk hann verkfræðistofuna Eflu til að hjálpa sér við umsóknina. „Það var gott að fá hjálp við að meta hvað þyrfti að gera og hvernig. Þetta er bara það sem ég og Efla settum upp.“ Sem kunnugt er er hægt að komast að Stuðlagili á tveimur stöðum. Marteinn Óli segir að um 110-120 þúsund gestir hafi komið Klausturselsmegin á síðasta ári. Hann kveðst búast við að svipaður fjöldi leggi leið sína þangað í ár. Gjaldtaka er á bílastæði Klausturselsmegin. Marteinn Óli segir þó að gestir geti lagt við brúna og labbað inn eftir kjósi þeir það. „Þetta er bílastæði sem ég hef lagt allt í sjálfur. Það er valfrjálst hvort fólk kýs að nýta sér það.“ Stuðlagil varð óvænt vinsæll ferðamannastaður eftir að flugfélagið WOW air birti myndir af því í kynningarbæklingi árið 2017. Staðurinn var engan veginn tilbúinn að taka á móti þeim fjölda ferðamanna sem þangað kom og því leituðu landeigendur strax eftir stuðningi við uppbyggingu þar. Þegar rýnt er í úthlutanir Framkvæmdasjóðs ferðamanna kemur í ljós að landeigendur við Stuðlagil hafa fengið styrki á hverju einasta ári frá 2018. Ekki er að sjá að nokkur annar staður hafi fengið viðlíka úthlutanir en þær nema alls 549 milljónum króna. „Þetta er búið að vera slatti af peningum,“ segir Marteinn Óli aðspurður. Hann er þó ekki einn um hituna því félagið Jökuldalur slf. hefur sömuleiðis fengið fjölda styrkja. Félagið fékk 90 milljónir króna í fyrra til að setja upp einn útsýnispall, göngubrýr og þrep. Árið áður fékk félagið 90 milljónir vegna öryggis og náttúruverndar á svæðinu. Árið 2023 var veitt 81 milljón vegna öryggis og náttúruverndar en ekki kemur fram hver fékk styrkinn í yfirliti á vef Stjórnarráðsins. Árið 2022 námu styrkir rúmum 53 milljónum, árið 2021 voru þeir 26 milljónir, árið 2020 voru þeir 103 milljónir, árið 2019 voru þeir 26 milljónir og 2018 tæpar níu milljónir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Náttúruauðlindir Íslands Kraumandi hverir og naðurtunga Hagnaður OR dregst saman um 65,4% Frumvarp um þjóðgarð á miðhálendinu lagt fram í vor Uppbyggingu í Kerlingarfjöllum verði frestað Hafa safnað yfir 2.000 undirskriftum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikilvægastur annað árið í röð Ebólufaraldur valdi neyðarástandi í alþjóðasamfélaginu Styrkir streyma austur í Stuðlagil Bruno jafnaði stoðsendingametið í bráðskemmtilegum leik Alsæll með niðurstöðuna Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Lokatölur liggja fyrir „Það munar hársbreidd“ Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hugsar sinn gang: „Dómurinn er fallinn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Nýjast á mbl.is » Mikilvægastur annað árið í röð Ebólufaraldur valdi neyðarástandi í alþjóðasamfélaginu Styrkir streyma austur í Stuðlagil Bruno jafnaði stoðsendingametið í bráðskemmtilegum leik Alsæll með niðurstöðuna Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kjörsókn betri nú en í síðustu kosningum Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? 15 stig á Tjörnesi og sjálfkjörið Vann 130 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Lokatölur liggja fyrir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Pétur: „Mjög svekktur“ Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Hjónin komast bæði inn í sveitarstjórn „Nánast erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“ Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Vann 130 milljónir Beint: Lokatölur liggja fyrir Kjósendur óvanir biðinni: Fólk að tínast burt Frambjóðandi hyggst ekki kjósa með eigin flokki Fyrstu lokatölur birtar Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Staðan mun verri en undanfarin ár Kærður fyrir að trufla störf neyðarlínu ítrekað Flugi aflýst: Farangursvagn ók utan í vélina Beint: Lokatölur liggja fyrir Greiddi sama flugið tvisvar Vann 130 milljónir Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið