Innlent | mbl | 26.8.2026 | 16:38 „Hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ Tvö banaslys hafa orðið í Stuðlagili síðan árið 2024. Ljósmynd/Jónatan Garðarsson Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Einblínt hefur verið á uppbyggingu og öryggi við Stuðlagil á þeim fáu árum síðan að áfangastaðurinn varð einn sá vinsælasti á landinu. Þetta segja bæði ferðamálastjóri og landeigandi austanmegin við gilið. Verkefni liggja fyrir í vetur sem munu stuðla að frekara öryggi við staðinn en uppbyggingu sem slíka segja þeir taka sinn tíma. Erlendur ferðamaður féll í Jöklu við Stuðlagil á mánudag og fannst síðar látinn skammt frá þeim stað sem hann féll út í. Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður varð vitni að atburðinum. Í umfjöllun mbl.is í gær lýsti hún bæði reynslu sinni og sagði að öryggisráðstöfunum við gilið væri ábótavant. Lagði hún áherslu á að gagnrýni hennar beindist ekki að bændum á svæðinu. Frétt af mbl.is „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Frétt af mbl.is Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys 174.000 gestir það sem af er ári Stuðlagil hefur á fáeinum árum orðið að einum vinsælasta áfangastað ferðamanna hér á landi og er sá fjölsóttasti á Austurlandi. Í fyrra fóru þar um 200.000 manns og það sem af er ári hafa 174.000 manns gert sér leið þangað. „Okkar viðbrögð þegar svona gerist eru fyrst og síðast að okkur er náttúrulega brugðið og hugur okkar er að sjálfsögðu hjá þeim sem eiga um sárt að binda,“ segir Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri í samtali við mbl.is. Varðandi öryggis- og skipulagsmál á svæðinu segir Arnar að einblínt hafi verið á Stuðlagil á þeim stutta tíma síðan að staðurinn varð svo gríðarlega vinsæll. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri. Ljósmynd/Aðsend Fátíð en svipleg slys „Þetta er einn af þeim ferðamannastöðum á Íslandi sem hafa fengið hvað mestan fókus varðandi skipulag og öryggismál á undanförnum árum. Í gegnum Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er búið að setja um 550 milljónir í svæðið með það að markmiði að stuðla að uppbyggingu, tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins fyrir ágangi ferðamanna.“ Segir hann athyglina sem sett hafi verið á Stuðlagil endurspeglast í gífurlegum vexti í vinsældum staðarins. „Blessunarlega eru slys við Stuðlagil mjög fátíð, en þegar þau gerast geta þau verið mjög svipleg eins og raun ber vitni.“ Vinna Ferðamálastofu felst talsvert mikið í forvörnum en þegar atvik sem og slysið á mánudag koma upp er brugðist við. Þá eru kallaðir til viðeigandi aðilar, lögregla, landeigendur og viðbragðsaðilar, til þess að fara yfir málið og skoða hvað gerðist. „Rannsókn lögreglu er enn þá í gangi en við munum setjast niður saman og fara yfir atvikið; eins og er vitum við ekkert hvað átti sér stað.“ Hvað skal gera? Marteinn Óli Aðalsteinsson, landeigandi og bóndi austanmegin að Stuðlagili, er sama sinnis og Arnar Már. Í samtali við mbl.is segir hann að uppbygging við Stuðlagil sé verkefni sem taki langan tíma og verði ekki afgreitt í snatri. Það sé verk í vinnslu og nú þegar hafi mikið verið gert til að bæta aðstöðuna. Fleiri verkefni liggi svo fyrir í vetur sem muni gera aðkomuna enn öruggari. Meðal verkefna er stigi sem á að fara niður í gilið og verður með tilkomu hans auðveldara að loka aðgengi þegar byrjar að ísa eða þegar áin fer á yfirfall. Einnig stendur til að koma upp öryggisgirðingum meðfram stígum að Stuðlagili sem munu að sögn Marteins auka öryggi til muna. „En maður sér það bara alls staðar, alveg sama hvar er lokað og hvað er gert, ef menn ætla sér að fara eitthvert þá fara menn þangað,“ segir Marteinn. „Svo er líka spurningin, hvað á að gera? Á að loka villtri náttúru? Og hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ Marteinn segir þetta vera stóru spurninguna, hvort treysta eigi fullorðnu fólki til að fara varlega á stöðum eins og Stuðlagili eða girða þá af svo að enginn geti notið náttúrunnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » UEFA hættir við sniðgöngu gegn FIFA „Þetta er hjarta Egilsstaða“ Vara við niðurskurði Beint: Kristrún ávarpar þjóðina „Hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Fjórtán ungabörn fórust í eldsvoða Tiltrú á hagstjórnina hverfandi „Það er gríðarlega sterkt ákall um þetta“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Ákærður 11 árum eftir brot gegn sambýliskonu Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » UEFA hættir við sniðgöngu gegn FIFA „Þetta er hjarta Egilsstaða“ Vara við niðurskurði Beint: Kristrún ávarpar þjóðina „Hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Endaði á að moka ofan í holuna Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Kadis ýjar að aðlögun við aðild Ökumaður „með allt í skrúfunni" Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Ákærður 11 árum eftir brot gegn sambýliskonu Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar