Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.5.2026 | 8:03 Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Töf varð á fyrstu tölum frá yfirkjörstjórn í Reykjavík og setti fjarvera oddvita strik í reikning gleðskapar flokkanna víðs vegar um borgina. mbl.is/Anton Brink Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki Hildur keypti sigurkjólinn á útsölu í Holtagörðum » Fleiri tengdar fréttir Bið eftir fyrstu tölum í Reykjavík á kosninganótt nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga hefur, aðrar kosningarnar í röð, verið á milli tannanna á fólki. Vegna seinagangsins voru oddvitar flokka lengi vel fjarri góðu gamni á kosningavökum flokka sinna og komu sumir hverjir að hálftómum kofanum á þriðja tímanum um nóttina. Fyrstu tölur úr Reykjavík höfðu verið boðaðar á fyrsta tímanum eftir miðnætti en þær voru ekki kunngjörðar fyrr en klukkan 1.13 á kosninganótt. Þá höfðu 44.300 atkvæði verið talin af 71.996, eða yfir 61% greiddra atkvæða. Vegna mistaka þurfti að lesa fyrstu tölur upp aftur um 10 mínútum síðar, þar sem atkvæðafjöldi Samfylkingarinnar, 8.080 atkvæði, virtist einnig hafa verið heimfærður á talda auða seðla. Það hefði auðvitað verið stórfrétt ef um 18% borgarbúa hefðu skilað auðu og því gaf augaleið að um mistök var að ræða. Oddvitum framboða var stefnt niður í Ráðhús laust fyrir miðnætti á kosninganótt og þar biðu þeir því í klukkustund og korter eftir að útsending þaðan hæfist og losnuðu ekki þaðan fyrr en laust fyrir klukkan tvö um nóttina. Þegar oddvitarnir mættu til að ýmist fagna eða syrgja í kjölfar fyrstu talna með stuðningsmönnum sínum á þriðja tímanum höfðu margir stuðningsmanna þeirra þegar haldið til síns heima. Þótti fyrirkomulagið allt þannig koma niður á kosningavökum flokkanna. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum höfðu fyrstu tölur í borginni verið boðaðar á miðnætti en þær skiluðu sér enn síðar þá en nú, um klukkan 1.40. Þá var fjöldi talinna atkvæða 37.319 af 61.359, einnig um 61% af öllum greiddum atkvæðum. Töfin var þá rakin til reglugerðarbreytingar sem fól í sér að merkja þyrfti hvern bunka viðkomandi talningarmanni, sem þótti hægja mjög á talningarferlinu. Kallað eftir breytingum Nokkuð hefur verið rætt um fyrirkomulag talningar og hvort ástæða sé til þess að breyta því til þess að fyrstu tölur geti borist fyrr úr borginni. Í þeim efnum þykir hátt hlutfall atkvæða í fyrstu talningu umdeilanlegt. Ljóst er að hægt er að fá nokkuð marktækar tölur með lægra hlutfalli talinna atkvæða en 61%. Þegar blaðamaður sló á þráðinn til formanns yfirkjörstjórnar Reykjavíkur, Evu B. Helgadóttur, síðdegis í gær vildi svo til að hún var á ferð með Ara Karlssyni sem einnig situr í yfirkjörstjórn. „Framkvæmdin hefur verið þannig að það er skipt um kassa klukkan 17 og kjörsóknin reyndist þá vera aðeins meiri en við áttum von á. Við vorum búin að gefa upp að fyrstu tölur yrðu lesnar um hálfeitt en atkvæðin reyndust sex þúsund fleiri en við reiknuðum með og vegna þess varð 43 mínútna seinkun frá því sem stefnt var að.“ Spurð hvort ekki væri hægt að birta fyrstu tölur eftir að talið hefur verið einhverju lægra hlutfall atkvæða, þannig að talningin falli betur að kosningavökum, segir Eva: „Það er lykilatriði að fyrstu tölur gefi tiltölulega rétta mynd af skiptingu atkvæða, vegna þess að annars þjóna þær litlum tilgangi. Það er mikilvægt að þær endurspegli eðlilega dreifingu og safn af atkvæðum.“ Eva segist hafa upphugsað margar leiðir í þessu sambandi og segir það liggja beinast við að lögum yrði breytt á þá leið að hefja mætti talningu klukkustund fyrr. Í dag er fyrirkomulagið á þá leið að heimilt er að flokka atkvæðin áður en kjörstöðum er lokað en talning má ekki hefjast fyrr en kl. 22. „Önnur leið væri að loka kjörstöðum klukkutíma fyrr. Svo má alveg velta fyrir sér hvort kassaskiptin ættu að vera fyrr þannig að skammtarnir yrðu minni,“ segir Eva. Hvað partíhald varðar slógu Eva og Ari á létta strengi og er blaðamaður ekki frá því að merkja mætti nokkurn svefngalsa í þeim. „Við höfum aldrei komið í neitt þessara partía. Ég hef ekki horft á kosningasjónvarp í tólf ár! Þannig að við búum í einhvers konar hjáveruleika þegar kemur að þessu,“ segir Ari hlæjandi. Önnur saga í Kópavogi Annar taktur var við talningu atkvæða í Kópavogi. Fyrstu tölur þar í bæ voru lesnar upp um korteri eftir að kjörstöðum var lokað klukkan 22. Þá höfðu 10.087 atkvæði verið talin af 20.951, um 48% allra atkvæða. Á hinn bóginn gekk hægar að telja þau atkvæði sem eftir stóðu í Kópavogi en í Reykjavík. Lokatölur úr Kópavogi bárust kl. 04.06. Skömmu áður höfði lokatölur úr Reykjavík borist, eða kl. 03.53. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki Hildur keypti sigurkjólinn á útsölu í Holtagörðum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Í lagi á næturklúbbi Sweeney og Braun í ástarfríi í Ástralíu Rússneskur dróni hæfði kínverskt flutningaskip „Alltaf á veiðum ef svo má segja“ Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fundaði með fulltrúum í dag en flýtir sér ekki Einu flugi aflýst og öðru seinkað Breyta þrátt fyrir að meirihlutinn haldi Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Vilja skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Segir vaxandi óánægju með Framsókn í Skagafirði Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Nýjast á mbl.is » Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Í lagi á næturklúbbi Sweeney og Braun í ástarfríi í Ástralíu Rússneskur dróni hæfði kínverskt flutningaskip „Alltaf á veiðum ef svo má segja“ Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Mikilvægt að útiloka Samfylkinguna“ Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag „Allir búnir að eiga einhver samtöl“ Breyta þrátt fyrir að meirihlutinn haldi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Vilja skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Segir vaxandi óánægju með Framsókn í Skagafirði Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“

Share this article