Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair aldrei verið lægra

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað um 3,7% í fyrstu viðskiptum í dag og stendur í 0,68 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Til samanburðar fór dagslokagengi flugfélagsins lægst í 0,70 krónu á hlut í marsmánuði, fljótlega eftir að stríðið í Íran hófst. Markaðsvirði Icelandair nemur nú 28 milljörðum króna. Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað um ríflega fjórðung síðastliðinn mánuð, sem má að stórum hluta rekja til hækkunar eldsneytisverðs vegna stríðsátaka í Íran. Þá hefur flugfélagið sakað flugmenn þess um að stunda óformlegar aðgerðir í tengslum við kjaraviðræður við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sem hefur leitt til seinkana og aflýsingum á nokkrum flugferðum á síðustu vikum. Sjá einnig Icelandair telur flug­menn vera í óform­legum að­gerðum Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, gagnrýndi þessar aðgerðir harðlega í tölvupósti sem hann sendi á flugmenn á laugardaginn eftir að þeir höfðu sniðgengið fund með stjórnendum flugfélagsins um stöðuna í kjaramálum, eins og Innherji greindi frá. Flugmenn. Þar sagði hann óásættanlegt að flugmenn skyldu grípa til „ólögmætra aðgerða“ í mótmælaskyni og að hafna samtali. Í sögulegum samanburði má benda á að í september 2020 lauk Icelandair ríflega 30 milljarða króna almennu hlutafjárútboði, þar sem þátttakendur eignuðust samtals yfir 80% hlut í flugfélaginu. Þar var útboðsgengið 1,0 króna á hlut.

Share this article