Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað mikið það sem af er ári, eða um rúm 18%. Í gær var dagslokagengið 0,724 krónur en það fór lægst niður í 0,70 krónur á hlut 6. mars sl. og hafði aldrei verið lægra. Hlutabréfaverð félagsins fór um tíma undir 0,70 krónur innan dags í byrjun síðustu viku en endaði daginn í rétt ríflega 0,70 krónum á hlut. Alexander Jensen Hjálmarsson, stofnandi greiningarfyrirtækisins Akkurs, telur að kjaradeilan hafi haft töluverð áhrif á gengi Icelandair, þó að einnig verði að hafa í huga hækkun eldsneytisverðs. Erfitt sé þó að segja til um hversu mikið sé vegna kjaradeilna og hversu mikið vegna eldsneytisverðs. „Það er kaldur raunveruleiki flugfélaga að það eru ótrúlega margar breytur sem hafa áhrif á reksturinn sem félagið hefur sjálft enga stjórn á, eins og t.d. olíuverð, veður, stríðsátök o.s.frv. Þess vegna er það grátlegt að ofan á það skuli bætast kjaradeila við starfsfólk,“ segir Alexander. Ljóst sé að flugmenn freisti þess að ná einhverjum réttindum til baka sem þeir gáfu eftir í endurskipulagningu eftir Covid. Icelandair hafi þó verið rekið með tapi allar göngur síðan og því sé ekki mikið til skiptanna þegar komi að hækkun launakostnaðar. Haldi deilurnar áfram og séu flug felld niður gæti það fljótt haft áhrif á bókunarstöðu, sem ásamt kostnaði í tengslum við aflýsingar gæti leitt til þess að handbært fé yrði fljótt að klárast. Það hafi til að mynda sést í tilviki Play. „Formaður FÍA ætti að minnsta kosti að vera búinn að læra hvaða áhrif það hefur þegar farþegar hætta að treysta því að varan verði afhent,“ segir Alexander. Sjá einnig Komnir í fjölmiðlabann Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .