Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB-til­laga úr nefnd þrátt fyrir ósvaraðar upp­lýsinga­beiðnir

Read Full Article →

Meiri­hluti utan­ríkis­mála­nefndar Alþingis hefur af­greitt úr nefnd til­lögu um þjóðar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald viðræðna um aðild Ís­lands að Evrópu­sam­bandinu. Diljá Mist Einars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins og nefndar­maður í utan­ríkis­mála­nefnd, greinir frá þessu í færslu á Face­book. Hún segir minni­hluta nefndarinnar mót­mæla harð­lega vinnu­brögðum meiri­hlutans og að málið hafi verið tekið út úr nefnd of snemma. Til­lagan gerir ráð fyrir að þjóðar­at­kvæða­greiðsla fari fram 29. ágúst 2026 um hvort halda skuli áfram aðildar­viðræðum Ís­lands við Evrópu­sam­bandið. Sam­kvæmt þingsá­lyktunar­tillögunni yrði spurningin: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Ís­lands að Evrópu­sam­bandinu?“ Upp­lýsingar bárust síðustu daga Í bókun minni­hlutans, sem Diljá birtir, segir að málið hafi verið tekið úr nefnd „rúmum sólar­hring eftir lok sveitar­stjórnar­kosninga“. Minni­hlutinn segir upp­lýsinga­beiðnir nefndarinnar enn útistandandi. Þá hafi um­fangs­miklar upp­lýsingar borist aðeins á undan­förnum dögum, á meðan Alþingi hafi ekki verið að störfum vegna sveitar­stjórnar­kosninga. „Af þeim upp­lýsingum sem þó hafa borist bárust þær síðustu í gærkvöld og aug­ljós­lega ómögu­leiki fyrir nefndar­menn að glöggva sig á þeim innan þess tíma­ramma,“ segir í bókuninni. Þar segir jafn­framt að sumum upp­lýsinga­beiðnum hafi verið svarað með þeim hætti að stór hluti gagna hafi verið undan­skilinn. Í öðrum til­vikum hafi nefndar­mönnum aðeins verið boðið að skoða gögn í „um­fangs­miklum trúnaði“ sem ekki megi vísa til. Þá hafi öðrum upp­lýsinga­beiðnum ekki verið svarað eða meiri­hlutinn hafnað því að senda þær út. Segja nefndina ekki hafa lokið vinnu Minni­hlutinn segir hlut­verk utan­ríkis­mála­nefndar vera að vinna málið þannig að gagn sé að fyrir um­ræðu í þing­sal. „Það hefur hins vegar ekki verið raunin og meiri hlutinn borið fyrir sig fyrir­fram­gefinni tímalínu,“ segir í bókuninni. Diljá segir einnig að fundi utan­ríkis­mála­nefndar sem átti að fara fram á morgun hafi verið aflýst. Sá fundur hefði, að hennar mati, getað nýst til frekari vinnu við málið. Málið hefur verið til með­ferðar á Alþingi sem 516. mál á 157. löggjafarþingi. Sam­kvæmt ferli málsins hafa verið sendar út 252 um­sagnar­beiðnir og tugir um­sagna borist Alþingi. Fer næst til um­ræðu í þing­sal Af­greiðsla úr nefnd þýðir að málið getur nú farið áfram til um­ræðu í þing­sal. Ríkis­stjórnin hefur lagt til að þjóðin greiði at­kvæði um fram­hald aðildar­viðræðna við ESB í lok ágúst. Stjórnarráðið hefur einnig kynnt málið þannig að utan­ríkis­ráðherra hafi fyrir hönd ríkis­stjórnar lagt fram til­lögu um þjóðar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst 2026. Stjórnar­and­staðan hefur hins vegar gagn­rýnt bæði efni málsins og máls­með­ferðina. Í bókun minni­hlutans er áherslan fyrst og fremst á að nefndin hafi ekki fengið nægan tíma til að vinna úr gögnum og svörum áður en málið var af­greitt. Niður­staðan er að ESB-málið færist nú nær endan­legri af­greiðslu Alþingis, en með harðri gagn­rýni minni­hlutans á vinnu­brögð meiri­hluta utan­ríkis­mála­nefnd Sjá einnig Bau­den­bacher segir ríkis­stjórnina villa um fyrir kjó­sendum um ESB

Share this article