Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.5.2026 | 11:47 Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, ræddi við mbl.is að fundi loknum og greindi frá efnistökum nefndarálits meirihlutans. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Fordæma iðju gervimenna „Viðreisnarbottar“ valda usla Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn Naumur eyðslutími » Fleiri tengdar fréttir Utanríkismálanefnd leggur til að spurningunni sem lögð verður fyrir þjóðina, komi til þess að tillaga að þjóðaratkvæðagreiðslu um að viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði hafnar að nýju, verði breytt í samræmi við breytingartillögur. Þá setur nefndarálit meirihlutans sem samþykkt var í dag fram ítarleg samningsmarkmið og áherslur fyrir mögulegar aðildarviðræður að sambandinu. „Fundurinn gekk prýðilega, nefndin afgreiddi þar álit frá sér um þjóðaratkvæðagreiðslu um málið sem hefur verið til umfjöllunar hjá nefndinni undanfarnar vikur, og við leggjum til að spurningunni verði breytt,“ sagði Pawel Bartoszek í samtali við mbl.is að fundi nefndarinnar nýloknum. Frétt af mbl.is Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Frétt af mbl.is Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Hefja viðræðurnar á ný í stað þess að halda þeim áfram Í upprunalegu tillögunni var lagt upp með að spurt yrði um það hvort Ísland ætti að „halda áfram“ aðildarviðræðum að Evrópusambandinu, en Landskjörstjórn gerði þungorðar athugasemdir við orðalag spurningarinnar. Frétt af mbl.is Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Í samræmi við tillögu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar yrði þjóðin spurð eftirfarandi spurningar: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Þá styður meirihluti nefndarinnar það að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst eins og upphafleg tillaga að atkvæðagreiðslunni gerir ráð fyrir, þó að sú tímasetning hafi jafnframt hlotið þó nokkra gagnrýni. Frétt af mbl.is Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar Frétt af mbl.is „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ Setur fram ítarleg samningsmarkmið og áherslur Ítarlegt nefndarálit meirihluta nefndarinnar er væntanlegt á vef Alþingis, en að sögn Pawels er það í kringum 50 síður að lengd og reifar bæði sögu málsins og setur fram ítarleg samningsmarkmið og áherslur komi til þess að þjóðin veiti ríkisstjórninni umboð til þess að halda þessum viðræðum áfram. Óvæntur fundur ríkisstjórnarinnar í gær tengist þessu nefndaráliti þó ekki neitt að sögn Pawels, enda hafi sá fundur snúist um að aflétta trúnaði á skjölum í tengslum við aðildarviðræður við Evrópusambandið frá kjörtímabilinu 2009–2013 sem nefndinni bárust síðastliðinn föstudag. Frétt af mbl.is Óvæntur fundur ríkisstjórnarinnar „Nefndin hefur auðvitað óskað eftir fjölmörgum upplýsingum um sögu málsins og aðdraganda þess og ég hef auðvitað lagt á það ríka áherslu að það sé orðið við þeim beiðnum, þannig að þau skjöl hafa verið að berast,“ segir hann. „En afgreiðsla málsins í dag, það er að segja nefndarálitið, meirihlutans, það tengist því máli ekki.“ Afar ólíklegt að upplýsingarnar hafi áhrif Inntur viðbragða við mótmælum minnihluta nefndarinnar um afgreiðslu málsins vegna ósvaraðra upplýsingabeiðna og þess knappa tíma sem liðinn er frá sveitarstjórnarkosningum segir Pawel annars vegar að upplýsingabeiðnirnar séu ólíklegar til þess að breyta afstöðu til þess hvort efna eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Langflestar af þeim upplýsingum sem hefur verið óskað eftir eru komnar fram,“ segir hann og bætir því við að þær beiðnir sem eftirstandandi séu séu frá barnamálaráðuneytinu og atvinnuvegaráðuneytinu. „En mér finnst afar ólíklegt að það sem þar kemur fram, til dæmis hvernig IBA-styrkjum frá árinu 2009 var háttað, eigi að breyta afstöðu fólks til þess hvort þjóðin eigi að fá að taka ákvörðun um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið eða hefja þær að nýju eins og nú er sagt. Þetta eru auðvitað fróðlegar upplýsingar og sjálfsagt að nýta þær í umræðunni síðar meir, en ég sé ekki að þær ættu að leiða til þess að spurningunni eða tímasetningu atkvæðagreiðslnanna yrði breytt.“ Frétt af mbl.is Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Þingmenn að störfum þótt þingið sé það ekki Hins vegar segist hann vilja meina að þingmenn séu að störfum jafnvel þó að sveitarstjórnarkosningar standi yfir og þingið sé þar með ekki starfandi. „Þó það sé gefið rými fyrir sveitarstjórnarkosningar og þá umræðu til þess að fara fram þá erum við ekki í fríi og sú tímalína sem segir til um að það ætti að taka málið út í maí hefur legið fyrir mjög lengi,“ segir hann. „Þannig að ég vil meina að það hafi öllum átt að vera ljóst að við vorum að halda okkur við þetta plan.“ Frétt af mbl.is Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar Tengdar fréttir Ísland og ESB Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Fordæma iðju gervimenna „Viðreisnarbottar“ valda usla Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn Naumur eyðslutími » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hildi liggur ekki lífið á Telur ákall vera um breytingar Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Arsenal setur verðmiða á framherjann Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Guði sé lof fyrir ömmur, afa og eiginmanninn“ Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Skrifuðum okkar handrit sjálf Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Hildi liggur ekki lífið á Telur ákall vera um breytingar Eftirför lögreglu: Ungur „ökufantur“ handtekinn Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Arsenal setur verðmiða á framherjann Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Guði sé lof fyrir ömmur, afa og eiginmanninn“ Breyta þrátt fyrir að meirihlutinn haldi Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Stolt af sínu fólki eftir varnarsigur Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Sveitarstjórnir bláar en ríkisstjórnin óhult Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Skellt í lás í rótgrónu bakaríi

Share this article