Innlent | Morgunblaðið | 18.5.2026 | 14:00 Hjón í nýrri sveitarstjórn á Skagaströnd Skagaströnd. Hér sitja hjón í sveitarstjórn komandi tímabil og segir Davíð Birkir málefnin helst spurningu um nálganir. mbl.is/Sigurður Bogi Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Sögulegur sigur Sjálfstæðisflokks „Sýnir skýran vilja bæjarbúa“ Reksturinn er helsta áskorunin Ákall kjósenda um breytingar » Fleiri tengdar fréttir „Ég hef engar áhyggjur af samstarfi okkar hjóna í sveitarstjórninni frekar en í öðrum málum sem við höfum tekið okkur fyrir hendur og ég er ofboðslega stoltur af samfélaginu okkar og hvað þetta hefur gengið vel í kosningabaráttunni, allt verið málefnalegt og skemmtilegt,“ segir Davíð Birkir Tryggvason á Skagaströnd í samtali við Morgunblaðið. Féllu atkvæði svo þar í sveitarfélaginu á laugardaginn að þau Eydís Inga Sigurjónsdóttir eiginkona hans munu bæði sitja í næstu sveitarstjórn. Davíð var í öðru sæti lista Samfylkingar og óháðra en Eydís leiddi lista Framsóknar og svo fór að Samfylkingin fékk sína tvo efstu menn kjörna og Framsókn einn. Segir Davíð frá því að metkjörsókn hafi verið á Skagaströnd í kosningunum, 88 prósent, og enn fremur að oddvitar allra þeirra flokka sem fram buðu hafi verið konur að þessu sinni og þar með ljóst að nýr oddviti Skagastrandar verði í fyrsta sinn kona. „Ég veit svo sem ekki hverju maður átti von á þegar maður lagði af stað en á einhverjum tímapunkti áttaði maður sig á því að þetta væri möguleiki,“ svarar Davíð, inntur eftir því hvort þau Eydís hefðu reiknað með að sitja saman í næstu sveitarstjórn. Hann segir málefni allra flokka í raun keimlík í svo litlu sveitarfélagi en á Skagaströnd bjuggu 440 manns á nýársdag samkvæmt tölum Hagstofunnar. „Málefnin eru nokkuð augljós hér fyrir alla sem hafa einhvern áhuga og vilja til að gera eitthvað þannig að þetta er aðallega spurning um nálganir, áherslur og gildi og stuðning sem við viljum sækja okkur,“ segir Samfylkingarmaðurinn og bætir því við aðspurður að saga þeirra Eydísar í pólitíkinni fram til þessa sé „eiginlega engin“. Munar um hverja fjölskyldu „Þetta er í fyrsta skipti sem við skiptum okkur af stjórnmálum yfirhöfuð,“ segir Davíð og er spurður út í helstu málefni Skagastrandar sem hann segir – og tekur fram að sé í raun óháð eiginlegum stjórnmálum – vera fólksfækkunina sem leggist á hans byggðarlag eins og mörg önnur hinna smærri á landinu. „Þar inn í spila nokkur önnur atriði sem skipta mestu máli sem eru atvinna, íbúðauppbygging og markaðssetning á sveitarfélaginu okkar,“ heldur hann áfram og segir Skagaströnd eiga tækifæri að sækja á sviði ferðamannageirans. „Það sem skilur okkur að miðað við Suðurlandið til dæmis er kyrrðin sem er hérna og þessi hægari andi í menningunni og samfélaginu auk þess sem hér er gríðarleg náttúrufegurð sem býður tækifæri til alls konar ástundunar,“ segir Davíð. Íbúafækkun segir hann hafa verið hæga og sígandi undanfarin ár þótt mögulega sé þar að nást stöðugleiki núna. „Í svona samfélögum munar svo ofboðslega mikið um eina fjölskyldu til eða frá. Einhverjir brottfluttir hafa komið til baka á æskuslóðirnar og svo kemur hér nýtt fólk sem hefur sótt um störf sem hér hafa verið í boði,“ segir hann enn fremur og kveður fiskinn vera það sem þorpið byggi á. „Við erum með ýmiss konar atvinnu í kringum sjóinn en svo erum við líka með greiðslustofu Vinnumálastofnunar hérna og alla grunnþjónustu. Ég held að framtíðin sé bara björt og við munum að sjálfsögðu bæði hjónin, og flokkarnir á bak við okkur öll hér, vinna í sátt og samlyndi að betri framtíð. Við vorum bara beðin að vera með og skyldan kallar,“ segir Davíð Birkir Tryggvason á Skagaströnd að skilnaði. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Sögulegur sigur Sjálfstæðisflokks „Sýnir skýran vilja bæjarbúa“ Reksturinn er helsta áskorunin Ákall kjósenda um breytingar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kalt vatn af Kópavogi að kvöldi þriðjudags Vinnubrögðin vanvirðing við skyldu nefndarinnar Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Hjón í nýrri sveitarstjórn á Skagaströnd Þórir og Ómar til Vettvangs Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík Hantaveiruskipið komið til Rotterdam Þrír grunaðir um árás á eldri mann Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Miðflokkurinn fyrsti valkostur Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Kalt vatn af Kópavogi að kvöldi þriðjudags Vinnubrögðin vanvirðing við skyldu nefndarinnar Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Hjón í nýrri sveitarstjórn á Skagaströnd Þórir og Ómar til Vettvangs Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Hildi liggur ekki lífið á Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Þessa meirihluta getur Hildur myndað Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Miðflokkurinn fyrsti valkostur Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi