Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

14 sækjast eftir starfi sveitarstjóra á Skagaströnd

Read Full Article →

16 umsóknir bárust um stöðu sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastandar. Umsóknarfrestur rann út 30. júní. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Alexandra Jóhannesdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, var nýverið ráðin sveitarstjóri Suðurnesjabæjar. Þrír fyrrverandi sveitarstjórar eru meðal umsækjenda: Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Skaftárhrepps, Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri á Tálknafirði, og Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóri Strandabyggðar. Hér að neðan má sjá lista yfir umsækjendur í stafrófsröð: Aðalheiður Sigursveinsdóttir, ráðgjafi Arnar Loftsson, fasteignasali Birgir Andri Óskarsson, afgreiðslumaður Birta Rán Björgvinsdóttir, kvikmyndatökukona Einar Kristján Jónsson, fyrrv. sveitarstjóri Hildigunnur Rut Jónsdóttir, mannauðsfulltrúi Jón Tryggvi Sveinsson, verkefnastjóri Magnea Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Maríanna Hugrún Helgadóttir, fyrrv. framkvæmdastjóri Ólafur Þór Ólafsson, fyrrv. sveitarstjóri Sigríður Kristín Jónasdóttir, verkefnastjóri Sigurður Sigurðsson, rekstrarstjóri Steinar Þór Magnússon, þjónn Þorgeir Pálsson, fyrrv. sveitarstjóri

Share this article