Líkur á að Íslendingar hafni því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu hafa aukist talsvert í kjölfar þess að úrslit sveitarstjórnarkosninga lágu fyrir, miðað við uppfærða stuðla veðmálasíðanna Coolbet og Epicbet. Stuðlarnir gefa til kynna að notendur síðanna telja nú talsvert meiri líkur á að meirihluti Íslendinga hafni því að hefja aðildarviðræður við ESB á ný. Stuðullinn á að kjósendur velji „Nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem áformað er að fari fram 29. ágúst næstkomandi, er kominn niður í 1,50 hjá EpicBet og 1,60 hjá Coolbet. Það þýðir að þeir sem veðja á að þjóðin muni hafna aðildarviðræðum munu fá það sem þeir leggja undir 1,5- eða 1,6-falt til baka. Til samanburðar er stuðulinn á „Já“ kominn upp í 2,80 hjá EpicBet og 2,55 hjá Coolbet. Sjá einnig Vaxandi andstaða við aðild að Evrópusambandinu Daði Laxdal Gautason hjá Epicbet, segir í samtali við Viðskiptablaðið að stuðullinn á „Nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi upphaflega staðið í 2,25 en hafi á síðustu vikum hægt og rólega lækkað niður í 2,0. „Þegar fyrstu niðurstöður úr talningu sveitarstjórnarkosninganna fóru að berast varð skörp breyting á markaðnum og stuðullinn féll hratt niður í 1,60. Veðmál halda áfram að berast á sömu útkomu og stendur stuðullinn nú í 1,50.“