Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Búast má við töfum á Suðurlandsvegi við Hólmsá

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búast má við töfum á Suð­ur­lands­vegi við Hólmsá Ásrún Aldís Hreinsdóttir Gera má ráð fyrir miklum töfum á umferð á Suðurlandsvegi í dag. Framkvæmdir hófust klukkan níu í morgun á veginum við Hólmsá og vinnan heldur áfram til klukkan átta í kvöld. Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum. Verið er að fræsa og malbika veginn við Hólmsá og umferð verður stýrt fram hjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar. RÚV / RÚV - Guðmundur Bergkvist Fyrir 29 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stóra njósna­mál­ið í Middles­br­ough Southampton er í vondum málum eftir að þjálfari á þess vegum sást mynda æfingar Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik á dögunum. Elvar Geir Magnússon á Fotbolti.net hefur fylgst með þesssu æsispennandi máli og var á línunni á Sportrásinni. Fyrir 37 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísra­els­menn stöðva enn eitt skip að­gerð­ar­sinna á leið til Gaza Ísraelsmenn hafa í enn eitt skiptið stöðvað skip aðgerðarsinna sem ætluðu til Gaza með hjálpargögn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þetta snýst um að stimpla málið“ Diljá Mist Einarsdóttir fulltrúi minnihlutans í utanríkismálanefnd segir meirihlutann vera í spreng við að koma þjóðaratkvæðagreiðslunni í atkvæðagreiðslu á Alþingi. Hún telur að umræðan muni yfirtaka Alþingi. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Sindri upp í Úr­vals­deild – Við erum til­bún­ir Sögulegur leikur fór fram í Ice Lagoon-höllinni á fimmtudaginn þegar Sindri frá Höfn lagði Breiðablik í oddaleik úrslitaeinvígis í fyrstu deild karla. Þorgrímur Tjörvi Halldórsson, formaður körfuknattleiksdeildar Sindra, var á línunni á Sportrásinni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Taka kalda vatnið af Kópa­vogi annað kvöld Brynjólfur Þór Guðmundsson Nýr vatnstankur verður tengdur við veitukerfi Kópavogsbæjar annað kvöld. Það hefur áhrif á aðgengi bæjarbúa að köldu vatni. Lokað verður fyrir kalda vatnið klukkan tíu annað kvöld meðan unnið er að tengingu nýja tanksins. Viðbúið er að það taki um fimm klukkustundir. Sundlaugum verður lokað 21:45. Kópavogsbær hvetur fólk til að skúfa fyrir krana með köldu vatni áður en það er tekið af og segir að skynsamlegt geti verið að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum. Einnig gæti verið ráðlegt að setja vatn í fötur fyrir klósett svo hægt sé að sturta niður. Hætt er við að fólk brenni sig ef það skrúfar frá krana því aðeins kemur heitt vatn. Kársnes í Kópavogi. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Að­stæð­ur til björg­un­ar eins góðar og þær gerast Tveir fiskibátar lentu í vanda, annar þeirra á Breiðafirði í gærkvöld og hinn á Húnaflóa snemma í morgun. Skipstjóri á björgunarskipinu Kristrúnu á Bjargi sagði aðgerðir hafa gengið vel og að kjöraðstæður hafi verið á sjó. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Ákærð fyrir að ganga um Héð­ins­fjarð­ar­göng Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært fólk fyrir að fara fótgangandi um Héðinsfjarðargöng í júlí í fyrra. Slíkt er með öllu bannað í göngunum. Önnur göngin eru 3,9 kílómetra löng en hin 7,1 kílómetra löng. Lögreglan birti ákæru og fyrirkall í Lögbirtingablaðinu á föstudag. Konan er skráð með lögheimili í Reykjavík en karlinn er með óþekkt heimilisfang. Ekki kemur fram í ákærunni í hvorum göngunum fólkið var né hversu langt inn í göngin það var komið. Héðinsfjarðargöng. Mynd úr safni. vegagerdin.is / RÚV Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Lofts­lag­skrís­an neyð­ar­ástand í lýð­heilsu: „Þessi ógn hefur ekki farið neitt“ Samevrópsk nefnd um loftslag og heilsu vill að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsi yfir neyðarástandi í lýðheilsu vegna loftslagsbreytinga. Formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, segir ógnina ekki hafa farið neitt þótt athyglinni sé beint annað. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Maldívur Lík fimm ít­al­skra kafara fundin við Mald­ív­ur Lík fjögurra ítalskra kafara sem leitað hefur verið eftir köfunarslys við Maldívur eru nú fundin. Alls létust fimm í slysinu en fyrsta líkið fannst skömmu eftir það. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tán­ing­ur hand­tek­inn eftir ofsa­akst­ur og árekst­ur Ungur ökumaður ók á ofsahraða frá Suðurnesjum og vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið áður en för hans stöðvaðist þegar hann keyrði aftan á bíl. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Breyta verk­lagi vegna mik­illa tafa á Suð­ur­lands­vegi Vegagerðin hefur breytt verklagi vegna mikilla tafa á umferð vegna framkvæmda á Suðurlandsvegi við Hólmsá. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kveikti í sér eftir að lög­regla beitti raf­byssu Lögreglan á Suðurnesjum beitti rafbyssu við afskipti af manni í Reykjanesbæ í morgun. Maðurinn sem lögregla ætlaði að yfirbuga hellti á sig bensíni og kveikti í. Hann er töluvert brenndur og var fluttur á Landspítalann. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Sund Ára­tug­ur frá sögu­legu afreki Hrafn­hild­ar Í dag, 18. maí, eru tíu ár liðin frá því Hrafnhildur Lúthersdóttir varð fyrsti ófatlaði Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Evrópumótinu í sundi í 50 metra laug. Á þessum degi árið 2016 vann Hrafnhildur silfur í 100 metra bringusundi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Af­greiða til­lögu um þjóð­ar­at­kvæði úr nefnd og vilja breyta spurn­ing­unni Meirihluti utanríkismálanefndar leggur til að spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verði breytt og setur fram samningsmarkmið. Minnihluti nefndarinnar mótmælir því að tillagan sé afgreidd úr nefnd. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland Hant­a­veiru­skip­ið komið til Rott­er­dam – nýtt smit greind­ist um helg­ina Hondius, skemmtiferðaskipið þar sem hantaveirusmit breiddist út fyrr í mánuðinum, kom til hafnar í Rotterdam í morgun. Farþegi af skipinu greindist með smit í gær. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 For­sæt­is­ráð­herra óskar Sjálf­stæð­is­mönn­um góðs gengis Meirihlutaviðræður þokast áfram víðast hvar á landinu. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræðurnar. Hildur hittir oddvita þeirra flokka sem hlutu kjör í borgarstjórn í dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra óskar Sjálfstæðisflokknum góðs gengis á sveitarstjórnarstiginu og segir Samfylkinguna þurfa að byggja aftur upp traust í borginni. Meirihlutaviðræður á Akureyri eru langt á veg komnar þrátt fyrir að mikil dreifing hafi verið á fylgi flokkanna. Mögulegur meirihluti hittist á fundi klukkan tíu í dag. Meirihlutaviðræður eru hafnar á Akranesi milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ er í lykilstöðu til að mynda meirihluta. Meirihlutaviðræður Framsóknar við Sjálfstæðisflokk eru þegar hafnar í Hafnarfirði. Í Reykjanesbæ er Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu. Oddviti flokksins segist opinn fyrir samstarfi við flesta flokka. Á Ísafirði eru meirihlutaviðræður hafnar en oddviti Framsóknarflokksins þar á ekki von á því að þær klárist fyrr en síðar í vikunni. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Upp­lifðu draum­inn Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna í fyrsta sinn á nýjum heimavelli félagsins þegar liðið lagði Hauka að velli í úrslitaeinvíginu í gærkvöld. Leikmenn lýstu sigrinum sem draumi sem hefði ræst. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Golf Fyrsti Eng­lend­ing­ur­inn í meira en öld til að vinna Enski kylfingurinn Aaron Rai vann í gærkvöld sitt fyrsta risamót í golfi þegar hann stóð uppi sem sigurvegari PGA meistaramótsins í Newtown Square í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna. Hann er jafnframt fyrsti Englendingurinn frá árinu 1919 til að vinna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Komu tveim­ur fiski­bát­um til að­stoð­ar Tvö björgunarskip komu fiskibáti til aðstoðar eftir að vél hans bilaði á Breiðafirði þegar skipið var á leið til Hafnarfjarðar. Vél annars fiskibáts ofhitnaði og varð björgunarskip að taka hann í tog. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hafa svarað til­lög­um Banda­ríkj­anna Hallgrímur Indriðason Frá Tehran. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Íranar hafa svarað nýrri tillögu Bandaríkjamanna um frið í landinu. Þetta sagði Esmaeil Baqaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun. Íranskir fjölmiðlar hafa lýst kröfum Bandaríkjanna sem óhóflegum, en þrátt fyrir það sagði talsmaðurinn að samskipti væru enn í gangi með aðstoð Pakistana. Baqaei sagði jafnframt að tækniteymi frá Íran og Óman hefðu hist í Óman til að semja um öruggt flutningskerfi um Hormús-sund. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á Truth Social í gær að klukkan tifaði og þeir þyrftu að bregðast hratt við, annars verði ekkert um að semja. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kosningar Til­efni til að breyta kosn­inga­lög­um svo að hefja megi taln­ingu fyrr Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir að minnka megi þrýsting á starfsfólk á kjörstað með því að breyta kosningalögum svo hefja megi talningu fyrr. Þrýstingur á að tilkynna fyrstu tölur auki líkur á mistökum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Ræða sam­göng­ur milli lands og Eyja Brynjólfur Þór Guðmundsson Samgöngur til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar verða efni opins fundar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur í dag. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins. Fundurinn hefst klukkan þrjú í dag. Mikið verður um að vera í salarkynnum Alþingis í dag þar sem þingnefndir funda í gríð og erg áður en þingfundir hefjast á ný á miðvikudag. Hlé var gert á þeim í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Meðal þess sem gerist í dag er að utanríkismálanefnd fjallar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður. Herjólfur í Þorlákshöfn. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yfir 30 særð­ust í árásum Rússa Brynjólfur Þór Guðmundsson Rússar skutu hundruðum dróna og 22 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meira

Share this article