Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Von á töluverðum töfum á Suðurlandsvegi við Hólmsá Ásrún Aldís Hreinsdóttir Gera má ráð fyrir miklum töfum á umferð á Suðurlandsvegi í dag vegna vegframkvæmda. Framkvæmdirnar hófust klukkan níu í morgun á Suðurlandsvegi við Hólmsá og standa til klukkan átta í kvöld. Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum. Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar. RÚV / RÚV - Guðmundur Bergkvist Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Afgreiða tillögu um þjóðaratkvæði úr nefnd og vilja breyta spurningunni Meirihluti utanríkismálanefndar leggur til að spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verði breytt og setur fram samningsmarkmið. Minnihluti nefndarinnar mótmælir því að tillagan sé afgreidd úr nefnd. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Holland Hantaveiruskipið komið til Rotterdam – nýtt smit greindist um helgina Hondius, skemmtiferðaskipið þar sem hantaveirusmit breiddist út fyrr í mánuðinum, kom til hafnar í Rotterdam í morgun. Farþegi af skipinu greindist með smit í gær. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hildur með öll spil á hendi – hittir oddvita hinna flokkanna í dag Meirihlutaviðræður þokast áfram víðast hvar á landinu. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræðurnar. Hildur hittir oddvita þeirra flokka sem hlutu kjör í borgarstjórn í dag. Meirihlutaviðræður á Akureyri eru langt á veg komnar þrátt fyrir að mikil dreifing hafi verið á fylgi flokkanna. Mögulegur meirihluti hittist á fundi klukkan tíu í dag. Prófessor í stjórnmálafræði hefur sagt að niðurstöður kosninganna séu viðvörunarmerki fyrir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Meirihlutaviðræður eru hafnar á Akranesi milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ er í lykilstöðu til að mynda meirihluta. Meirihlutaviðræður Framsóknar við Sjálfstæðisflokk eru þegar hafnar í Hafnarfirði. Í Reykjanesbæ er Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu. Oddviti flokksins segist opinn fyrir samstarfi við flesta flokka. Á Ísafirði eru meirihlutaviðræður hafnar en oddviti Framsóknarflokksins þar á ekki von á því að þær klárist fyrr en síðar í vikunni. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Upplifðu drauminn Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna í fyrsta sinn á nýjum heimavelli félagsins þegar liðið lagði Hauka að velli í úrslitaeinvíginu í gærkvöld. Leikmenn lýstu sigrinum sem draumi sem hefði ræst. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Golf Fyrsti Englendingurinn í meira en öld til að vinna Enski kylfingurinn Aaron Rai vann í gærkvöld sitt fyrsta risamót í golfi þegar hann stóð uppi sem sigurvegari PGA meistaramótsins í Newtown Square í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna. Hann er jafnframt fyrsti Englendingurinn frá árinu 1919 til að vinna. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Komu tveimur fiskibátum til aðstoðar Tvö björgunarskip komu fiskibáti til aðstoðar eftir að vél hans bilaði á Breiðafirði þegar skipið var á leið til Hafnarfjarðar. Vél annars fiskibáts ofhitnaði og varð björgunarskip að taka hann í tog. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hafa svarað tillögum Bandaríkjanna Hallgrímur Indriðason Frá Tehran. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Íranar hafa svarað nýrri tillögu Bandaríkjamanna um frið í landinu. Þetta sagði Esmaeil Baqaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun. Íranskir fjölmiðlar hafa lýst kröfum Bandaríkjanna sem óhóflegum, en þrátt fyrir það sagði talsmaðurinn að samskipti væru enn í gangi með aðstoð Pakistana. Baqaei sagði jafnframt að tækniteymi frá Íran og Óman hefðu hist í Óman til að semja um öruggt flutningskerfi um Hormús-sund. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á Truth Social í gær að klukkan tifaði og þeir þyrftu að bregðast hratt við, annars verði ekkert um að semja. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kosningar Tilefni til að breyta kosningalögum svo að hefja megi talningu fyrr Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir að minnka megi þrýsting á starfsfólk á kjörstað með því að breyta kosningalögum svo hefja megi talningu fyrr. Þrýstingur á að tilkynna fyrstu tölur auki líkur á mistökum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Ræða samgöngur milli lands og Eyja Brynjólfur Þór Guðmundsson Samgöngur til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar verða efni opins fundar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur í dag. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins. Fundurinn hefst klukkan þrjú í dag. Mikið verður um að vera í salarkynnum Alþingis í dag þar sem þingnefndir funda í gríð og erg áður en þingfundir hefjast á ný á miðvikudag. Hlé var gert á þeim í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Meðal þess sem gerist í dag er að utanríkismálanefnd fjallar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður. Herjólfur í Þorlákshöfn. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yfir 30 særðust í árásum Rússa Brynjólfur Þór Guðmundsson Rússar skutu hundruðum dróna og 22 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meira en 30 særðust í árásunum, að sögn úkraínskra embættismanna. 26 særðust í Dniepro og nágrenni. Fimm særðust í Ódesa, Kherson og Zapoizhzhia. Úkraínuher sagðist hafa skotið niður 546 rússneska dróna. Aftur á móti tókst aðeins að skjóta niður fjórar eldflaugar af 22. Björgunarsveitarmaður í rústum húss sem varð fyrir árás Rússa í síðustu viku. AP / Evgeniy Maloletka Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Jaðaríþróttir Bílar „límdir“ saman í úrslitarimmu í drifti Fyrsta umferð Íslandsmótsins í drifti fór fram um helgina. Úrslitaeinvígi í opnum flokki var afar athyglisvert. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Seldu ungmennum áfengi Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Akureyri fór á skemmtistaði og veitingastaði um helgina til að kanna hvort starfsemin væri alfarið í samræmi við lög. Flestir voru með sitt á hreinu en á einum stað var verið að selja fólki undir tvítugu áfengi og á öðrum var dyravarsla ekki í lagi. Helgin var með hefðbundnum hætti, nokkur minniháttar útköll tengd ölvun. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina og fimm fyrir að keyra of hratt. Aðfaranótt laugardags var lögreglu tilkynnt um að maður með hníf væri að taka í hurðarhúna. Þegar að var gáð reyndist sá ótti ekki eiga við rök að styðjast. Lögreglustöðin á Akureyri. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að 14 stiga hiti Útlit er fyrir bjart og hæglátt veður í dag. Hiti fer í allt að fjórtán stig. Austan til er þó útlit fyrir dálitla rigningu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi Amnesty: Ógnvekjandi fjölgun aftaka í Íran keyrir upp fjölda skráðra aftaka Amnesty segir að hverfa þurfi aftur um 45 ár til að sjá fleiri aftökur í heiminum en á síðasta ári. Það megi helst rekja til mikillar fjölgunar líflátsdóma í Íran en fleiri ríki hafi einnig hert tökin. Fjöldi aftaka í Kína sé ekki innan talnanna. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Sund Spilar á gítar, lærir sögu og slær heimsmet Sundkappinn Snævar Örn Kristmannsson er heimsmethafi í flugsundi í flokki einhverfra. Hann hefur hins vegar í nægu að snúast utan laugarinnar þar sem nemur sögu í Háskóla Íslands og er klassískur gítarleikari. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Hið minnsta tveir týndu lífi í öflugum jarðskjálfta Að minnsta kosti tveir fórust og eins er saknað eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir Guangxi-hérað í Kína laust eftir miðnætti að staðartíma. Fjöldi húsa hrundi og björgunarsveitir með leitarhunda eru að störfum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Ebólufaraldur kominn til Úganda — Bandaríkin flytja sitt fólk brott Ásrún Aldís Hreinsdóttir og Markús Þ. Þórhallsson Ebólufaraldurinn sem upp er kominn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur nú náð til nágrannaríkisins Úganda. Rachel Rukwati var klædd í sóttvarnarbúning áður en hún fór inn á sóttvarnastöð fyrir ebóla-sjúklinga árið 2019. EPA / HUGH KINSELLA CUNNINGHAM Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint þennan faraldur sem alþjóðlega lýðheilsuvá. Vel á þriðja hundrað smit hafa komið upp og um 80 manns eru talin hafa látist af völdum veirunnar, sem er af sérlega banvænum Bundibugyo-stofni. Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að flytja fámennan hóp ríkisborga brott frá Kongó. Hópnum verður haldið í sóttkví þar sem talið er að hann hafi komist í snertingu við fólk smitað af ebólu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast að útbreiðslan sé meiri en skráð tilvik gefi vísbendingar um. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael Umdeild lög um dauðarefsingar gegn Palestínumönnum gengin í gildi Afar umdeild lög tóku gildi í gærkvöld sem heimila dauðarefsingu yfir þeim Palestínumönnum á Vesturbakkanum sem fremja hryðjuverk gegn Ísrael. Herdómsdómstólar fjalla um málin. Lögin þykja mismuna fólki grimmilega. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur á Breiðholtsbraut Þrír voru sendir með sjúkrabíl til skoðunar á slysadeild eftir að tveir bílar höfnuðu utan vegar á Breiðholtsbraut seint í gærkvöld. Ekki er vitað um líðan þeirra. Slökkviliðið var líka kallað til vegna bílhræs sem stóð í ljósum logum í Mosfellsbæ. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Andlát Dennis Locorriere annar aðalsöngvara Dr. Hook er látinn Dennis Locorriere, ein aðalsprauta og söngvari hljómsveitarinnar Dr. Hook, er látinn 79 að aldri. Hann hafði lengi glímt við nýrnasjúkdóm. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda um tíma og tvær útgáfur hennar hafa komið fram á Íslandi. 18. maí 2026 kl. 0:40ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir klukkuna tifa fyrir Írani sem þurfi snarlega að semja um frið Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Írans þurfa að hafa hraðan á við að semja um frið í stríðinu sem skekið hefur