Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvalfirðingar hafna sameiningarhygmyndum við önnur sveitarfélög

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalfjarðarsveit Hval­firð­ing­ar hafna sam­ein­ing­ar­hug­mynd­um við önnur sveit­ar­fé­lög Ásrún Aldís Hreinsdóttir Samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardag var gerð viðhorfskönnun meðal íbúa í Hvalfjarðarsveit um sameiningarmál. Spurt var: Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög? Alls greiddu 467 íbúar atkvæði, af þeim voru 332 alfarið andvígir sameiningaráformum. Meirihluti þeirra 69 íbúa sem voru hlynntir sameiningaráformum litu helst til Akraneskaupstaðar. Niðurstöðurnar voru birtar á vef sveitarfélagsins í dag. RÚV Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Græn­lands­stjórn fundar með út­send­ara Banda­ríkj­anna: „Engar breyt­ing­ar á af­stöðu til Græn­lands“ Formaður landstjórnar Grænlands og utanríkisráðherra landsins funduðu í dag með sérstökum fulltrúa Bandaríkjanna í málefnum Grænlands. Fundurinn var á kurteislegum nótum en ekkert bendir til breyttrar afstöðu Bandaríkjanna. Fyrir 21 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist FLOTT með 20 og eitt­hvað Plata vikunnar er svolítið spes að þessu sinni. Hún heitir 20 og eitthvað og inniheldur lögin úr samnefndri sjónvarpsseríu sem FLOTT semur ásamt þeim Arnóri og Óla sem skrifa þættina. Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Sum­ar­veðr­ið komið en sund­laug­in lokuð Blíðskaparveður er víðast hvar á landinu og spár gera ráð fyrir áframhaldandi sólskini í vikunni. Hitinn gæti farið í 16 stig á suðvesturhorninu á miðvikudag og allt að 18 stig á Norðurlandi um helgina. Fyrir 59 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stóra njósna­mál­ið í Middles­br­ough Southampton er í vondum málum eftir að þjálfari á þess vegum sást mynda æfingar Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik á dögunum. Elvar Geir Magnússon á Fotbolti.net hefur fylgst með þesssu æsispennandi máli og var á línunni á Sportrásinni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísra­els­menn stöðva enn eitt skip að­gerð­ar­sinna á leið til Gaza Ísraelsmenn hafa í enn eitt skiptið stöðvað skip aðgerðarsinna sem ætluðu til Gaza með hjálpargögn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þetta snýst um að stimpla málið“ Diljá Mist Einarsdóttir fulltrúi minnihlutans í utanríkismálanefnd segir meirihlutann vera í spreng við að koma þjóðaratkvæðagreiðslunni í atkvæðagreiðslu á Alþingi. Hún telur að umræðan muni yfirtaka Alþingi. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Sindri upp í Úr­vals­deild – Við erum til­bún­ir Sögulegur leikur fór fram í Ice Lagoon-höllinni á fimmtudaginn þegar Sindri frá Höfn lagði Breiðablik í oddaleik úrslitaeinvígis í fyrstu deild karla. Þorgrímur Tjörvi Halldórsson, formaður körfuknattleiksdeildar Sindra, var á línunni á Sportrásinni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Taka kalda vatnið af Kópa­vogi annað kvöld Brynjólfur Þór Guðmundsson Nýr vatnstankur verður tengdur við veitukerfi Kópavogsbæjar annað kvöld. Það hefur áhrif á aðgengi bæjarbúa að köldu vatni. Lokað verður fyrir kalda vatnið klukkan tíu annað kvöld meðan unnið er að tengingu nýja tanksins. Viðbúið er að það taki um fimm klukkustundir. Sundlaugum verður lokað 21:45. Kópavogsbær hvetur fólk til að skúfa fyrir krana með köldu vatni áður en það er tekið af og segir að skynsamlegt geti verið að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum. Einnig gæti verið ráðlegt að setja vatn í fötur fyrir klósett svo hægt sé að sturta niður. Hætt er við að fólk brenni sig ef það skrúfar frá krana því aðeins kemur heitt vatn. Kársnes í Kópavogi. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Að­stæð­ur til björg­un­ar eins góðar og þær gerast Tveir fiskibátar lentu í vanda, annar þeirra á Breiðafirði í gærkvöld og hinn á Húnaflóa snemma í morgun. Skipstjóri á björgunarskipinu Kristrúnu á Bjargi sagði aðgerðir hafa gengið vel og að kjöraðstæður hafi verið á sjó. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Ákærð fyrir að ganga um Héð­ins­fjarð­ar­göng Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært fólk fyrir að fara fótgangandi um Héðinsfjarðargöng í júlí í fyrra. Slíkt er með öllu bannað í göngunum. Önnur göngin eru 3,9 kílómetra löng en hin 7,1 kílómetra löng. Lögreglan birti ákæru og fyrirkall í Lögbirtingablaðinu á föstudag. Konan er skráð með lögheimili í Reykjavík en karlinn er með óþekkt heimilisfang. Ekki kemur fram í ákærunni í hvorum göngunum fólkið var né hversu langt inn í göngin það var komið. Héðinsfjarðargöng. Mynd úr safni. vegagerdin.is / RÚV Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Lofts­lag­skrís­an neyð­ar­ástand í lýð­heilsu: „Þessi ógn hefur ekki farið neitt“ Samevrópsk nefnd um loftslag og heilsu vill að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsi yfir neyðarástandi í lýðheilsu vegna loftslagsbreytinga. Formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, segir ógnina ekki hafa farið neitt þótt athyglinni sé beint annað. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Maldívur Lík fimm ít­al­skra kafara fundin við Mald­ív­ur Lík fjögurra ítalskra kafara sem leitað hefur verið eftir köfunarslys við Maldívur eru nú fundin. Alls létust fimm í slysinu en fyrsta líkið fannst skömmu eftir það. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tán­ing­ur hand­tek­inn eftir ofsa­akst­ur og árekst­ur Ungur ökumaður ók á ofsahraða frá Suðurnesjum og vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið áður en för hans stöðvaðist þegar hann keyrði aftan á bíl. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Breyta verk­lagi vegna mik­illa tafa á Suð­ur­lands­vegi Vegagerðin hefur breytt verklagi vegna mikilla tafa á umferð vegna framkvæmda á Suðurlandsvegi við Hólmsá. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kveikti í sér eftir að lög­regla beitti raf­byssu Lögreglan á Suðurnesjum beitti rafbyssu við afskipti af manni í Reykjanesbæ í morgun. Maðurinn sem lögregla ætlaði að yfirbuga hellti á sig bensíni og kveikti í. Hann er töluvert brenndur og var fluttur á Landspítalann. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Sund Ára­tug­ur frá sögu­legu afreki Hrafn­hild­ar Í dag, 18. maí, eru tíu ár liðin frá því Hrafnhildur Lúthersdóttir varð fyrsti ófatlaði Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Evrópumótinu í sundi í 50 metra laug. Á þessum degi árið 2016 vann Hrafnhildur silfur í 100 metra bringusundi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búast má við töfum á Suð­ur­lands­vegi við Hólmsá Ásrún Aldís Hreinsdóttir Gera má ráð fyrir miklum töfum á umferð á Suðurlandsvegi í dag. Framkvæmdir hófust klukkan níu í morgun á veginum við Hólmsá og vinnan heldur áfram til klukkan átta í kvöld. Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum. Verið er að fræsa og malbika veginn við Hólmsá og umferð verður stýrt fram hjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar. RÚV / RÚV - Guðmundur Bergkvist Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Af­greiða til­lögu um þjóð­ar­at­kvæði úr nefnd og vilja breyta spurn­ing­unni Meirihluti utanríkismálanefndar leggur til að spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verði breytt og setur fram samningsmarkmið. Minnihluti nefndarinnar mótmælir því að tillagan sé afgreidd úr nefnd. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland Hant­a­veiru­skip­ið komið til Rott­er­dam – nýtt smit greind­ist um helg­ina Hondius, skemmtiferðaskipið þar sem hantaveirusmit breiddist út fyrr í mánuðinum, kom til hafnar í Rotterdam í morgun. Farþegi af skipinu greindist með smit í gær. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guð­mund­ur Árni hættir í pól­it­ík Meirihlutaviðræður þokast áfram víðast hvar á landinu. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræðurnar. Hildur hittir oddvita þeirra flokka sem hlutu kjör í borgarstjórn í dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra óskar Sjálfstæðisflokknum góðs gengis á sveitarstjórnarstiginu og segir Samfylkinguna þurfa að byggja aftur upp traust í borginni. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, ætlar ekki að taka sæti sem bæjarfulltrúi og hættir sem varaformaður flokksins. Meirihlutaviðræður á Akureyri eru langt á veg komnar þrátt fyrir að mikil dreifing hafi verið á fylgi flokkanna. Mögulegur meirihluti hittist á fundi klukkan tíu í dag. Meirihlutaviðræður eru hafnar á Akranesi milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ er í lykilstöðu til að mynda meirihluta. Meirihlutaviðræður Framsóknar við Sjálfstæðisflokk eru þegar hafnar í Hafnarfirði. Í Reykjanesbæ er Sjálfstæðisflokkurinn í lykilstöðu. Á Ísafirði eru meirihlutaviðræður hafnar en oddviti Framsóknarflokksins þar á ekki von á því að þær klárist fyrr en síðar í vikunni. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Upp­lifðu draum­inn Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta kvenna í fyrsta sinn á nýjum heimavelli félagsins þegar liðið lagði Hauka að velli í úrslitaeinvíginu í gærkvöld. Leikmenn lýstu sigrinum sem draumi sem hefði ræst. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Golf Fyrsti Eng­lend­ing­ur­inn í meira en öld til að vinna Enski kylfingurinn Aaron Rai vann í gærkvöld sitt fyrsta risamót í golfi þegar hann stóð uppi sem sigurvegari PGA meistaramótsins í Newtown Square í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna. Hann er jafnframt fyrsti Englendingurinn frá árinu 1919 til að vinna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Komu tveim­ur fiski­bát­um til að­stoð­ar Tvö björgunarskip komu fiskibáti til aðstoðar eftir að vél hans bilaði á Breiðafirði þegar skipið var á leið til Hafnarfjarðar. Vél annars fiskibáts ofhitnaði og varð björgunarskip að taka hann í tog. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hafa svarað til­lög­um Banda­ríkj­anna Hallgrímur Indriðason Frá Tehran. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Íranar hafa svarað nýrri tillögu Bandaríkjamanna um frið í landinu. Þetta sagði Esmaeil Baqaei talsmaður utanríkisráðuneytis Íran á blaðamannafundi í morgun. Íranskir fjölmiðlar hafa lýst kröfum Bandaríkjanna sem óhóflegum, en þrátt fyrir það sagði talsmaðurinn að samskipt

Share this article