Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.5.2026 | 19:45 Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Halla Hrund Logadóttir og Sigurður Helgi Pálmason voru meðal þeirra sem lögðu fram spurningar fyrir ráðherra. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta Stefnt á að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar Aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður » Fleiri tengdar fréttir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagðist í svörum sínum til umhverfis- og samgöngumálanefndar Alþingis fyrr í dag vilja tvöfalda það hlutfall vergrar landsframleiðslu sem varið er í samgöngumál á Íslandi en telur það ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum það fjárhagstjón sem kann að hafa orðið við samgönguraskanir til Eyja. Einnig sagði hann augljósa þörf á því að gera ferjuna Baldur að systurskipi Herjólfs, enda verði hann áfram varaskip Eyjaferjunnar, og kvaðst áhugasamur um að koma á áætlunarflugi rafmagnsflugvéla til Vestmannaeyja. Það var Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem átti frumkvæði að gestakomu ráðherrans á fund nefndarinnar, og var hún fyrst nefndarmanna til þess að krefja hann svara. Frétt af mbl.is Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Fjármögnun til þess að halda úti varaskipi Halla Hrund vildi vita hvort ráðherra sæi fyrir sér að tryggja varaskip fyrir næstu helgi, sem verður eflaust mikil ferðahelgi, og fjármögnun til þess að hægt verði að halda úti varaskipi fyrir Herjólf. Hún krafði hann einnig svara um það hvort gert verði ráð fyrir fjármagni til uppbyggingar varnargarða í fjármálaáætlun þegar þörf á þeim liggi fyrir samkvæmt fyrirhugaðri skýrslu; og vildi heyra afstöðu hans til jarðgangnagerðar til Vestmannaeyja. Frétt af mbl.is Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Vill gera Baldur að systurskipi Herjólfs Eyjólfur svaraði því að ferjan Baldur væri varaskip Herjólfs, og að hann vissi ekki til þess að til stæði að kalla hann til þó það sé mögulegt. Þó það tæki hann sárt að segja það sem Eyjamaður væri það ekki fjárhagslega fýsilegt að halda úti varaskipi sem bundið væri við bryggju. Hann lýsti útfærslu áætlana um að bæta stöðu Baldurs sem varaskips Herjólfs nánar í svari sínu við fyrirspurn Sigurðar Pálmasonar, þingmanns Flokks fólksins, en þar sagði hann ljóst að Baldur yrði að hafa sömu burðargetu og Herjólfur og vera af sama skipaflokki. „Það að Baldur sé varaskip Herjólfs styrkir tilvist hans, og ef hann þarf að fara frá Vestfjörðum, þá eru Vestfirðir ekki eyja þannig að Vestfirðingar geta farið leiðar sinnar með öðrum hætti,“ sagði hann. Frétt af mbl.is Baldur fer til Eyja „Frábært framtak“ Eyjagangna Þá hafi fjármálaáætlun ekki gert ráð fyrir fjárveitinum til uppbyggingar varnargarða, enda liggi ekki fyrir hvers konar aðgerða ráðlagt verði að gripið verði til þegar skýrsla um höfnina berst í haust frá dönsku straumfræðistofnuninni DHI. Framtak þróunarfélagsins Eyjagangna segir hann frábært og segir Vegagerðina styðja framkvæmdina faglega, en bendir á að óvíst sé hvort það sé yfirleitt mögulegt að bora göng á þessu svæði þar sem sprungubelti er. Frétt af mbl.is 1.000 ára göng til Eyja Sjá veiðigjaldapeninginn í viðhaldi við Landeyjahöfn Halla Hrund vakti einnig máls á því að fjármagn stjórnvalda af veiðigjöldum hafi upprunalega átt að renna til styrkingu samgangna á landsbyggðinni og spurði hvernig Eyjamenn, sem sannarlega greiddu mikið í veiðigjöld, myndu sjá það. Eyjólfur svaraði því að veiðigjöldin hefðu stóraukið fjármagn til viðhalds, sem sæist til að mynda í þeim miklu fjármunum sem varið hefði verið í dýpkun Landeyjahafnar. Þá segist hann vona að tafir af völdum bilana og veðráttu séu ekki komnar til að vera. Frétt af mbl.is 2,4 milljarða kostnaður frá 2011 Dýpkun Landeyjahafnar hefur reynst kostnaðarsöm. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skoða rafflug til Eyja Í svari sínu við fyrirspurn Sigurðar Pálmasonar, þingmanns Flokks fólksins, um hvernig ráðuneytið hyggðist tryggja samgöngur til Eyja til framtíðar sagðist Eyjólfur vilja auka fjárframlög til samgönguinnviða og skoða flugferðamáta. „Það eru allir sammála um að setja meiri pening í samgönguinnviði, enda gríðarleg innviðaskuld sem blasir við,“ segir hann. „Við höfum verið að setja um 0,5-0,6% vergrar landsframleiðslu í það, en við viljum hækka það upp í eitt prósent.“ Hann sagði sér jafnframt sýnast markaðsforsendur til staðar fyrir flugi, til dæmis rafflugi, til Vestmannaeyja árið um kring, enda vegalengdin tilvalin fyrir flug af slíku tagi og rekstrarkostnaður slíkra flugmáta lægri en hjá hefðbundnu flugi. Eyjólfur virðist spenntur fyrir rafflugi til Eyja. mbl.is/Eggert Jóhannesson Telur hvorki þörf á bótum né viðbragðshópi Í svörum við fyrirspurnum annarra nefndarmanna varðandi aukna upplýsingagjöf til Eyjamanna varðandi færð til Landeyjahafnar og framvindu dýpkunar svo fólk og atvinnulíf geti áætlað sig og athafnað í samræmi sagðist Eyjólfur hafa gert sérstaka kröfu til Vegagerðarinnar um öflugri upplýsingagjöf hvað varðar ástandið. Hann telur ekki þörf á viðbragðshópi sem myndi móta úrræði sem tilbúin yrðu þegar á þyrfti að halda. Spurningu Ingibjargar Davíðsdóttir, þingmanns Miðflokksins, um það hvort gerði yrði úttekt á tapi fyrirtækja vegna samgönguraskana og hvort það tjón yrði bætt, svaraði hann á þá leið að það væri ekki ríkisins að bæta tap fyrirtækja, enda ekki um neyðaraðstæður að ræða eins og í Grindavík. Tengdar fréttir Landeyjahöfn Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta Stefnt á að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar Aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 38:45 Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Arsenal - Burnley, staðan er 1:0 Frí tveggja mánaða strætókort fyrir grunnskólabörn Skoraði á móti toppliðinu Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Skrifuðum okkar handrit sjálf Þessa meirihluta getur Hildur myndað Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 38:45 Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Arsenal - Burnley, staðan er 1:0 Frí tveggja mánaða strætókort fyrir grunnskólabörn Skoraði á móti toppliðinu Umræðan Kosið um viðræður Ráðherraábyrgð og framsetning stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu „Guði sé lof fyrir ömmur, afa og eiginmanninn“ Einar boðaður á fund: „Þetta fer nú rólega af stað“ Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi

Share this article