Heildarframleiðsla í íslensku lagareldi jókst um 17,6% árið 2025 og nam alls 64.417 tonnum. Þetta kemur fram í ársskýrslu dýralækna fisksjúkdóma sem sagt er frá á vef MAST. Af ársframleiðsunni í fyrra komu 54.543 tonn úr sjókvíaeldi og 9.782 tonn úr landeldi. Framleiðsla á laxi er sögð vera áfram langstærsti hluti greinarinnar eða 58.717 tonn. Þyngst vegi lúsavandi á Vestfjörðum „Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir aukna framleiðslu hafi árið einkennst af áskorunum í sjókvíaeldi. Þar vegur þyngst lúsavandi á Vestfjörðum, auk staðfestra tilfella nýrnaveiki, BKD, sem tengdist auknum afföllum á tilteknum eldissvæðum. Á árinu voru skráð afföll um 2,3 milljón laxa í sjókvíaeldi á Austfjörðum og rúmlega 2,4 milljónir á Vestfjörðum, auk þess sem hundruð þúsunda fiska var fargað í báðum landshlutum,“ segir á mast.is. Opinberar skimanir umfangsmiklar í fyrra Áfram segir að opinberar skimanir hafi verið umfangsmiklar í fyrra. „Alls voru 16.336 sýni tekin vegna tilkynningarskyldra sjúkdóma í landeldi og sjókvíaeldi. Engin sýni greindust jákvæð fyrir meinvirku afbrigði ISA-veirunnar, ISA HPR-del, en 30 sýni greindust jákvæð fyrir ómeinvirka afbrigðinu ISA-HPR0. Þá greindust 85 jákvæð sýni vegna BKD og þrjú jákvæð sýni vegna sæeyrnavisnunar,“ segir á mast.is . Þrettán lyfjameðferðir gegn lús og nítján mekanískar meðhöndlanir Fram kemur að laxalús og fiskilús sé áfram viðvarandi áskorun á Vestfjörðum. Í fyrra hafi verið framkvæmdar 13 lyfjameðferðir gegn lús og 19 mekanískar meðhöndlanir með volgu vatni og spúlun. Þá af hafi 453.000 hrognkelsi verið flutt á fjögur eldissvæði á Vestfjörðum sem liður í fyrirbyggjandi lúsastjórnun. Einu vanrækslumáli var vísað til lögreglu Í skýrslunni er einnig fjallað um velferðarmál. „Matvælastofnun lauk nokkrum málum með stjórnvaldsákvörðunum, meðal annars vegna alvarlegra affalla við útsetningu seiða í sjó og vegna vanrækslu á að fjarlægja sjúka og slasaða fiska úr kvíum. Einu máli var vísað til lögreglu og í öðru máli var lögð á stjórnvaldssekt að fjárhæð 500.000 krónur.“ segir á vefsíðu MAST. Sýklalyfjanotkun bundin við tvö landeldisfyrirtæki „Sýklalyfjanotkun í fiskeldi nam 377 kg árið 2025 og var öll notkunin bundin við tvö landeldisfyrirtæki. Engin sýklalyf voru notuð í sjókvíaeldi. Þá voru tekin 449 sýni vegna eftirlits með lyfjaleifum og aðskotaefnum í eldisfiski og reyndust öll sýnin laus við lyfjaleifar og aðskotaefni,“ segir að lokum í umfjöllun MAST um árskýrslu dýralækna fisksjúkdóma.