Vöktun Hafrannsóknastofnunar á áhrifum sjókvíaeldis á villta íslenska laxastofna sýnir að umfang hrygningar strokulaxa í kjölfar stórrar slysasleppingar árið 2023 hafi orðið minna en óttast var í fyrstu, meðal annars vegna umfangsmikilla aðgerða til að fjarlægja strokulaxa úr ám. Áfrma erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar þar sem segir að jafnframt að samantekt stofnunarinnar um vöktunina sýni að erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa greinist enn í íslenskum ám. Enginn strokulax í fjórtán teljurum í fyrra „Vöktun Hafrannsóknastofnunar nær meðal annars til fiskteljara í ám, rannsókna á strokulaxi, hreisturgreininga og erfðarannsókna. Árið 2025 voru 14 myndavélabúnir fiskteljarar í rekstri víða um land. Enginn strokulax greindist í teljurunum á árinu,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar þar sem nánar er kafað ofan í skýrsluna. Umfangsmiklar veiðar á strokulöxum skiptu sköpum Í skýrslunni er meðal annars bent á að umfangsmiklar veiðar á strokulöxum haustið 2023 hafi líklega skipt sköpum við að umfang erfðablöndunar varð minna en margir óttuðust í kjölfar stórs stroks úr sjókví í Kvígindisdal 2023. „Þar komu að veiðifélög, landeigendur, stjórnvöld, náttúruverndarsamtök og sérþjálfaðir kafarar.“