Bílaframleiðandinn Stellantis hyggst hefja framleiðslu á nýjum smábílum í Evrópu sem eiga að höfða til íbúa sem vilja ódýrari og umhverfisvænni borgarbíla. Á vef WSJ segir að framleiðslan muni hefjast árið 2028 í Napólí á Ítalíu. Verkefnið gengur undir heitinu E-Car og verður nýju bílunum dreift undir nokkrum vörumerkjum samstæðunnar. Antonio Filosa, forstjóri Stellantis, segir að neytendur í Evrópu kalli nú eftir endurkomu minni og stílhreinni bíla sem framleiddir eru í Evrópu. Þar að auki er aukin eftirspurn eftir bílum sem eru á viðráðanlegu verði og eru þar að auki umhverfisvænir. Evrópusambandið hefur jafnframt bent á að slíkar tegundir bíla gætu styrkt evrópska hönnun og framleiðslu og gætu flýtt fyrir innleiðingu rafbíla.