Skrifstofustarfsmenn Stellantis í Michigan fengu nýlega tilskipun um að snúa aftur til vinnu við höfuðstöðvar bílaframleiðandans fimm daga vikunnar. Margir starfsmenn sem fengu ekki lengur að vinna heima fengu óvænta áminningu á bílastæði fyrirtækisins. Á vef WSJ segir að nokkrir starfsmenn hafi fengið „sektir“ frá vinnuveitanda sínum fyrir að leggja bíl á sérstökum svæðum bílastæðisins ef bíllinn er ekki framleiddur af Stellantis. Hinar umræddu sektir fela yfirleitt ekki í sér neina kröfu um greiðslu heldur eru þær einungis áminningar um að bílar Stellantis hafi forgang á tilteknum svæðum. Ítrekuð brot geta hins vegar leitt til þess að lás verður settur á bílana af öryggisstarfsmönnum fyrirtækisins. Sjá einnig Stellantis skipar nýjan forstjóra Aðgerðirnar tengjast gamalgróinni hefð í Detroit þar sem bílaframleiðendur hvetja starfsmenn sína til að kaupa bíla frá eigin fyrirtækjum og fá í kjölfarið betri bílastæði fyrir þá bíla. Málið hefur hins vegar reynst bæði ruglingslegt og skondið en einn starfsmaður sagði frá því að hafa fengið áminningu fyrir að leggja bílnum sínum, af gerðinni Eagle Talon, í umrædd stæði. Eagle Talon er framleiddur af Chrysler, sem nú tilheyrir Stellantis, og segir hann að öryggisstarfsmenn þurfi greinilega á sögukennslu að halda.