Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tónlist notuð markvisst til að auka virkni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.5.2026 | 23:00 Tónlist notuð markvisst til að auka virkni Hér er Magnea að nota trommu og takt á námskeiðinu sem var haldið á Grundarheimilunum síðla veturs og þótti takast einstaklega vel. Ljósmynd/Fanney Björg Karlsdóttir Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Það hefur sýnt sig að tónlist eykur vellíðan fólks og þegar við erum að tala um fólk með heilabilun eykur tónlist einnig virkni og minnkar depurð,“ segir Magnea Tómasdóttir, söngkona og tónlistarkennari. Í dag heldur hún tvo fyrirlestra, annars vegar fyrir starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Grund og hins vegar fyrir aðstandendur heimilisfólks um notkun tónlistar í daglegu lífi. Grundarheimilin hlutu styrk frá Oddfellowsystrum í Rebekkustúku nr. 1, Bergþóru, til að halda átta vikna námskeið um tónlist og heilabilun, sem Magnea hélt fyrir nokkru á Grundarheimilunum og þóttu takast einstaklega vel. Starfsfólk á Grund ræddi um hvað tónlistin og námskeiðið hefði haft góð áhrif og gert mikið fyrir þá heimilismeðlimi sem eru komnir með heilabilunarsjúkdóma og gert þá miklu jákvæðari og glaðari. Núna er hugmyndin að kynna verkefnið betur og leita leiða til að innleiða það í daglegt starf á heimilinu. Tónlist er hvetjandi afl „Ég er með fræðslu fyrir starfsfólk og aðstandendur á Grundarheimilunum, hjúkrunarheimilinu Grund, Mörk og Ási í Hveragerði um hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun fólks, því það er hægt að nota hana fyrir alla, en við verðum með sérstaka áherslu á notkun tónlistar í umönnun fólks með heilabilunarsjúkdóma,“ segir Magnea. „Það er hægt að nota tónlist á markvissan hátt í umönnun til að auka virknina og gera daglegar athafnir auðveldari. Það getur verið mjög góð hvatning fyrir fólk að fá að hlusta á sína tónlist áður en það fer t.d. í bað eða gerir aðrar daglegar athafnir og viðkomandi verður jákvæðari og viljugri til samstarfs. Við viljum sýna hvernig tónlistin getur verið gott hreyfiafl fyrir fólk og hvað það getur haft góð áhrif að nota hana í daglegu lífi, ekki síst hjá þeim sem eru með heilabilunarsjúkdóma,“ segir hún. Persónulegir lagalistar Magnea segir að margir þekki að þeir noti ákveðna lagalista við ákveðnar athafnir til að koma sér í gírinn. Fólk getur verið með lagalista fyrir tiltektina, eða hvað sem er, og víst að margir geta tengt við slíka notkun á tónlist. „Þetta getur orðið ennþá mikilvægara þegar fólk er komið með heilabilunarsjúkdóma og minnið ekki eins og áður var,“ segir Magnea og að það sé vel þekkt að fólk með skerta minnisgetu sem hlustar á tónlist geti þá allt í einu munað texta og sungið með. „Tónlistin er svo margþætt. Það er laglína, hljómur, taktur og hreyfing og þetta talar allt einhvern veginn inn í kjarna manneskjunnar. Það er alveg ótrúlegt að sjá áhrifin,“ segir Magnea og bætir við að þeim mun mikilvægara sé að nota hana í öllu umönnunarstarfi. „Ég kynni þetta í fyrirlestrunum með stuðningi iðjuþjálfunarinnar á heimilunum, sem er mjög sterk. Iðjuþjálfar munu síðan taka verkefnið lengra og vinna það áfram í samstarfi við aðstandendur. Við sjáum fyrir okkur að aðstandendur geti aðstoðað við að búa til persónulega lagalista fyrir sitt fólk og starfsfólkið á heimilunum muni síðan nýta sér lagalistana í daglegu lífi heimilisfólksins. Það gerir lífið auðveldara og eykur lífsgæði heimilisfólksins.“ Tónlistin heilar, hvetur og nærir og vekur að auki mikla gleði. Ljósmynd/Fanney Björg Karlsdóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum 21 ár fyrir að myrða eiginkonu og dóttur Tónlist notuð markvisst til að auka virkni Hefði getað sagt mér að hoppa upp í rassgatið á mér Leikmenn Arsenal fögnuðu með „bikarinn“ Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Vill skoða borgarstjórn án meirihluta ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Útgangan oddvita til sóma Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum 21 ár fyrir að myrða eiginkonu og dóttur Tónlist notuð markvisst til að auka virkni Hefði getað sagt mér að hoppa upp í rassgatið á mér Leikmenn Arsenal fögnuðu með „bikarinn“ Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þessa meirihluta getur Hildur myndað Mikilli niðursveiflu virðist lokið Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi

Share this article