Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.6.2026 | 11:15 Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Í yfirlýsingunni kemur fram að plötuútgefendur hafi í auknum mæli heimilað notkun tónlistarsafna sinna við þjálfun gervigreindarlíkana og framleiðslu AI-tónlistar, án þess að leita samþykkis þeirra hljómlistarmanna sem eiga flutninginn á upptökunum. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systurfélög þess á Norðurlöndum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af auknu samstarfi plötuútgefenda við gervigreindarfyrirtæki og stafrænar tónlistarveitur. Félögin segja þróunina eiga sér stað án samþykkis þeirra tónlistarmanna sem verk og flutningur byggja á. Yfirlýsingin nýtur einnig stuðnings Alþjóðasambands stéttarfélaga tónlistarflytjenda (FIM), Alþjóðasambands tónlistarflytjenda (IAO) og Bandalags íslenskra listamanna (BÍL). Heimila notkun tónlistarsafna Í yfirlýsingunni kemur fram að plötuútgefendur hafi í auknum mæli heimilað notkun tónlistarsafna sinna við þjálfun gervigreindarlíkana og framleiðslu AI-tónlistar, án þess að leita samþykkis þeirra hljómlistarmanna sem eiga flutninginn á upptökunum. „Þetta eru upptökur sem byggja á vinnu og listsköpun tónlistarflytjenda, en samt eru þær nýttar til að þróa gervigreind án þess að þeir fái tækifæri til að samþykkja notkunina eða semja um hana,“ segir í yfirlýsingunni. Sérstaklega er vísað til Universal Music Group (UMG), sem hefur gert samninga við AI-fyrirtæki á borð við Udio og Spotify. Þá benda félögin á að UMG hafi jafnframt farið að óska eftir nýjum heimildum frá flytjendum með uppfærðum samningsákvæðum, sem að þeirra mati gefi til kynna að eldri samningar hafi ekki veitt útgefandanum slíkar heimildir. Tónlistarmenn eru ósáttir við að þeirra vinna sé nýtt til þróun gervigreindar án þess að þeir fái það bætt. Parker Coffman/Unsplash Bakgrunnshljómlistarmenn ekki nafngreindir Í yfirlýsingunni er sérstök áhersla lögð á stöðu svokallaðra bakgrunnshljómlistarmanna, sem leika á hljóðupptökum án þess að vera nafngreindir. Að mati félaganna eru réttindi þeirra almennt ekki framseld með skriflegum samningum við plötuútgefendur og því geti útgefendur ekki veitt leyfi fyrir notkun flutnings þeirra í tengslum við gervigreind. „Tónlist er ekki bara gögn. Hún er mannleg tjáning, sköpunarkraftur og menning,“ segir í yfirlýsingunni. FÍH og norrænu systurfélögin krefjast þess að plötuútgefendur, gervigreindarfyrirtæki og stafrænar tónlistarveitur setjist að samningaborðinu með fulltrúum hljómlistarmanna. Félögin segja að framtíð gervigreindar í tónlist verði að byggja á samningum sem tryggi samþykki, gagnsæi, sanngjarna þóknun og virðingu fyrir réttindum listamanna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sagður vilja losa sig við fimm leikmenn City Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Setja 50.000 milljarða í varnarmál Stýra umferð og telja bílana Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Átti erfitt með að horfa á upptökuna Trump fær ekki að reka Cook Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Sagður vilja losa sig við fimm leikmenn City Yfirlýsing tónlistarmanna: „Tónlist er ekki bara gögn“ Setja 50.000 milljarða í varnarmál Stýra umferð og telja bílana Fer fram á 16 ára dóm: „Ásetningur kaldur og grimmur“ Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Átti erfitt með að horfa á upptökuna Um 50 þúsund er enn saknað Trump fær ekki að reka Cook Gúggluðu sjálfsvíg og hnífstungur Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu „Þetta eru spennandi tímar“ „Þetta hefur verið leiðinlegt ár“ Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda

Share this article