Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.5.2026 | 11:34 SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Handrit myndarinnar var unnið af Jóni Kaldal sem hefur tekið virkan þátt í opinberri baráttu gegn fiskeldi á Íslandi. Samsett mynd/Eyþór/María Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Samtök fyrirtækja í Sjávarútvegi (SFS) hafa sent Ríkisútvarpinu erindi þar sem RÚV er hvatt til að gæta jafnræðis. Bréfið var sent á útvarpsstjóra og stjórn RÚV vegna fyrirhugaðrar sýningar myndarinnar Árnar þagna . Í upphafi bréfsins er tekið fram að erindið feli ekki í sér kröfu um að myndin verði ekki sýnd. Lúta athugasemdir SFS að því hvernig staðið verður að kynningu og umgjörð sýningarinnar í ljósi lögbundinna skyldna RÚV um hlutlægni, jafnræði og vandaða upplýsingamiðlun. Samkvæmt opinberu kynningarefni og fjölmiðlaumfjöllun var myndin framleidd og fjármögnuð af íslenska náttúruverndarsjóðnum Icelandic Wildlife Fund og norsku samtökunum Redd Villaksen. Var handrit kvikmyndarinnar unnið af Jóni Kaldal sem hefur verið talsmaður IWF og tekið virkan þátt í opinberri baráttu gegn fiskeldi á Íslandi. Leikstýrði hann einnig myndinni. Dreift með skipulögðum hætti fyrir alþingiskosningar 2024 „Jafnframt liggur fyrir að myndinni var dreift með skipulögðum hætti í aðdraganda alþingiskosninga árið 2024, ásamt pallborðsumræðum víða um land, í þeim tilgangi að hafa áhrif á opinbera stefnumótun og stjórnmálaumræðu um fiskeldi. Efnið er framleitt af aðilum með yfirlýsta hagsmuni og skýra afstöðu til þess samfélagsmáls sem umfjöllunin beinist að,“ segir í bréfinu. Telur SFS því mikilvægt að áhorfendur séu upplýstir með skýrum og gagnsæjum hætti um uppruna efnisins, fjármögnun þess og tengsl framleiðenda við hagsmunabaráttu gegn fiskeldi. Minnir SFS meðal annars á lögbundið hlutverk og skyldur Ríkisútvarpsins samkvæmt lögum nr. 23/2023 um Ríkisútvarpið ohf. Þar segir að það skuli í starfsemi sinni rækja lýðræðislegt hlutverk sitt með því að veita almenningi hlutlægar upplýsingar og stuðla að upplýstri samfélagsumræðu auk þess að gæta fjölbreytni sjónarmiða. Gera kröfur í tengslum við sýningu myndarinnar Í lok bréfsins koma fram kröfur SFS til RÚV í tengslum við sýningu kvikmyndarinnar. Kröfurnar eru eftirfarandi: Að í kynningu á myndinni og við upphaf sýningar komi skýrt fram hverjir standi að framleiðslu hennar og fjármögnun, þar á meðal að myndin sé framleidd af samtökum sem hafa yfirlýsta stefnu og hagsmuni í umræðu um fiskeldi á Íslandi. Að Ríkisútvarpið tryggi að umfjöllun um fiskeldi í dagskrá þess uppfylli kröfur um jafnræði og fjölbreytni sjónarmiða, meðal annars með því að tryggja sambærilegt rými fyrir umfjöllun um sjónarmið þeirra samfélaga, fyrirtækja, sérfræðinga og atvinnugreina sem tengjast fiskeldi og starfsemi þess. Að sérstaklega verði hugað að því að áhorfendur geti með skýrum hætti greint á milli ritstýrðs fréttaefnis annars vegar og hins vegar efnis sem unnið er af hagsmunaaðilum í tengslum við pólitíska og samfélagslega hagsmunabaráttu. „SFS telja að með ofangreindri framkvæmd verði best tryggt að Ríkisútvarpið uppfylli lögbundið hlutverk sitt, varðveiti traust almennings og stuðli að upplýstri og málefnalegri umræðu um mikilvæg samfélagsmál.“ Samtökin óska svara við erindinu áður en til sýningar kvikmyndarinnar kemur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Við viljum finna skjól og öryggi Leikmenn fögnuðu fram á morgun Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrirtæki verði að láta af óþörfum verðhækkunum Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Hægt landris og lítil skjálftavirkni Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Andlát: Elín R. Líndal Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Vara við svikapóstum í nafni Skattsins „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Blóðugur reikningur á Tenerife Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Nýjast á mbl.is » Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Við viljum finna skjól og öryggi Leikmenn fögnuðu fram á morgun Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrirtæki verði að láta af óþörfum verðhækkunum Við viljum finna skjól og öryggi „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Andlát: Elín R. Líndal Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Vara við svikapóstum í nafni Skattsins „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Blóðugur reikningur á Tenerife Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni

Share this article