Innlent | Morgunblaðið | 12.7.2026 | 10:00 Sýndarmyndböndin eins og lyklar Svavar naut leiðsagnar landvarðarins Guðmundar Jenssonar við myndatökur í Snæfellsjökulsþjóðgarði, þar sem hann notaðist við hringmyndavél til að fanga 360° útsýni. Ljósmynd/Svavar Jónatansson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Ljósmyndarinn Svavar Jónatansson hélt sl. sunnudag af stað í tveggja vikna hringferð um Ísland þar sem hann hyggst fanga byggðir og náttúruperlur landsins á sérstök, alltumlykjandi hringmyndskeið sem skoða má í gegnum sýndarveruleikagleraugu. Í samstarfi við Hrafnistu verður íbúum gert kleift að lifa sig inn í þetta sýndarumhverfi og geta slíkar upplifanir jafnvel verið lykillinn að því að sækja djúpt grafnar minningar þeirra íbúa sem þjást af heilabilun. Svavar hefur fengist við ljósmyndun um aldarfjórðungsskeið, en á fyrsta áratug aldarinnar skrifaði hann til að mynda ferðagreinar í Morgunblaðið. Frá árinu 2011 hefur hann framleitt fjölda útvarpsþátta fyrir Ríkisútvarpið og unnið þar við eftirvinnslu hljóðs. Þar að auki hefur hann komið að gerð kvik- og heimildarmynda þar sem heimskautanáttúran er í aðalhlutverki. Sýndarveruleikagleraugu notuð markvisst á Hrafnistu Árið 2019 hóf Svavar störf við Viðeyjardeild dvalarheimilisins Hrafnistu og sinnti þar dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun. „Þar var ég að vinna í nokkur ár, og út frá því byrjaði ég að þróa alls konar verkefni – til dæmis skemmtiverkefni þar sem ég fer á milli heimila,“ segir hann. Í tengslum við þau skemmtiverkefni byrjaði Svavar fyrir tveimur árum að notast við sýndarveruleikagleraugu sem gera fólki kleift að lifa sig algerlega inn í þann alltumlykjandi mynd- og hljóðheim sem þau sýna, og komst fljótt upp á lagið með það. „Ég fékk virkilega góð viðbrögð við því. Eftir það kynnti ég Hrafnistu þessa hugmynd og þau gripu það fljótt að byrja að innleiða þetta,“ segir hann. Í dag eru sýndarveruleikagleraugun notuð með markvissum hætti í starfi virknifulltrúa á dvalarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði einu sinni til tvisvar í viku, en þau eru einnig notuð við dagþjálfun á Viðeyjardeild og unnið er að innleiðingu þeirra hjá endurhæfingardeild Hrafnistu undir stjórn Gígju Þórðardóttur deildarstjóra sjúkraþjálfunar. Svavar segir það þó langtímaverkefni að innleiða slíka tækni. „Það er ekkert sjálfsagt að koma með gleraugun, smella fingrum og að þá sé þetta komið í einhverja fasta notkun. Það er alveg rosalegt verkefni að koma svona löguðu í fastar skorður.“ Hinir stórbrotnu klettar Djúpalónssands eru meðal þeirra náttúruundra sem Svavar hefur fest á 360° hringmyndskeið undanfarna daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson Virkari afþreying en sjónvarpið Á undanförnum tveimur árum hefur Svavar skemmt sér við það að taka eitt og eitt myndband upp hér og þar, og nefnir þar til dæmis myndskeið af smalamennsku á Ströndum, tónleikaupptöku hjá kór Lindakirkju og í Grasagarði Reykjavíkur með aðstoð Bjarkar Þorleifsdóttur, en leggur nú fyrst af stað í hringferð um landið þar sem hann hyggst fanga mannlíf og náttúru sem víðast. Förin hófst á Snæfellsnesi, en á tveimur vikum hyggst hann ferðast um flestar byggðir Íslands. „Á fyrstu tveimur dögunum tók ég upp Borgarnes, Stykkishólm, Grundarfjörð, Ólafsvík, Djúpalónssand, Dritvík, Malarrif, Hellnar, Arnarstapa, og svo Hellissand og Rif, en magn myndbanda frá hverjum stað er auðvitað mismunandi eftir dagskrá, tíma dags, veðri og öðru slíku,“ segir hann. Hvert skot er um hálf til ein mínúta að lengd, og í eftirvinnslu mun Svavar sameina skot frá hverjum stað í eitt fjögurra til sex mínútna langt 360° myndband sem til dæmis er ætlað að kveikja minningar fólks frá liðnum stundum – jafnvel minningar sem grafnar eru djúpt undir hulu heilabilunar. „Við erum ekki að hugsa þetta þannig að við setjum þetta á fólk og skiljum það síðan eftir eins og það eigi bara að glápa á tuttugu mínútna sjónvarpsþátt. Þetta er stutt upplifun og markmiðið er að virkja minningar og þróa samtal við starfsfólk,“ segir hann. „Íbúar horfa á myndböndin í gleraugunum, taka þau af sér og spjalla svo við starfsmennina og segjast muna eftir hinu og þessu, og rifja upp gamla tíma, þannig að þetta er ekki hefðbundin afþreying.“ Lyklar að týndum minningum Sýndarveruleikamyndskeiðin geta gert þeim skjólstæðingum Hrafnistu sem enn eru með fulla skynjun og meðvitund kleift að heimsækja æskuslóðir sínar og sjá fjarlægar slóðir sem þeir geta ekki lengur ferðast til, en í tilfelli þeirra sem farið er að slá út í fyrir og eru jafnvel komnir með alvarlega heilabilun geta myndböndin einnig snortið djúpt. „Þá virkar þessi sjónræna og hljóðræna upplifun alveg rosalega sterkt – þessi myndbönd eru eins og lykill að minningum, og það er hlutverk starfsfólks að leita að rétta lyklinum og fiska eftir því hvað gæti hentað fólkinu best. Það er einhver skrá hjá öllum, og ef þú finnur rétta lykilinn geturðu opnað á alveg ótrúlega djúpar minningar.“ Hringferðinni er því ætlað að safna myndefni sem víðast um landið, enda á fólk tengingar víða við uppeldisslóðir sínar eða frá ferðalögum. Með því að safna meira efni innanlands segir Svavar að hann sé að bæta lyklum við í safn myndbanda sem aðrir hafa tekið erlendis, sem hann hefur tekið saman og spannar nú þegar hundruð myndbanda víðs vegar að úr heiminum – til dæmis er þar að finna götumyndir frá París og myndbönd frá Kína sem fólk gæti kannast við. „Það er rosalega stórt hlutverk sem starfsfólkið leikur í því að eiga samtöl og finna rétta efnið til að ná til fólks, en það hefur vantað mikið upp á þetta íslenska efni.“ Hljóðheimurinn hugleikinn Eftir störf sín við eftirvinnslu myndbanda og hljóðupptöku, sér í lagi hjá Ríkisútvarpinu, hefur hljóðheimur verið Svavari hugleikinn. „Hljóðheimurinn er rosalega mikilvægur, og ég er að taka hágæða hljóð upp með myndböndunum hvar sem ég fer – það er stór hluti af þessari skynjun,“ segir hann. „Mér er eðlislægt að taka upp hljóð og skapa áhrifaríkan hljóðheim, þannig að í þessu legg ég mikla áherslu á að það sé gott hljóð í myndböndunum.“ Blanda áætlana og tilviljana Þó að Svavar hafi ákveðna hugmynd um það hvað hann vill mynda á ferðum sínum er afraksturinn blanda af áætlun og tilviljunum. „Ég ætla að láta þetta ráðast svolítið af veðrinu og fólki sem ég hitti, mér finnst gaman að láta hlutina einfaldlega ráðast þannig. Ég keyri kannski inn í einhvern bæ og geng um, og rekst svo á eitthvað: það er fótboltaleikur í bænum, eða það er verið að landa á bryggjunni, þannig að ég gríp það sem er í gangi.“ Hann hefur þó notið liðsinnis heimamanna við að fanga mannlega þáttinn og láta myndböndin flæða. „Þessi mannlega þátttaka leiðir þátttakandann áfram, þannig að ég hef til dæmis verið að fá heimamenn til þess að labba fram hjá myndavélinni og bjóða góðan daginn, og segja til dæmis: „Ég myndi nú leggja til að þú takir göngutúr hérna upp í fjallið fyrir ofan byggðina, þar er gott útsýni,“ og þar fram eftir götum.“ Fyrstu tilbúin síðla hausts Svavar þakkar Lionsklúbbnum Ásbirni í Hafnarfirði fyrir að hafa gert ferðina að veruleika, en á ferð sinni um Snæfellsnesið var hann í samstarfi við þjóðgarðinn Snæfellsjökul og naut leiðsagnar landvarðarins Guðmundar Jenssonar við að fanga Lónsdranga á mynd með skýjum sveipaðan jökulinn vomandi yfir í bakgrunni. Að auki munu Vatnajökulsþjóðgarður og Síldarminjasafnið taka þátt í upptökum á hringferðinni. Þegar hann snýr aftur til höfuðborgarinnar úr hringferðinni bíður hans gríðarleg vinna við eftirvinnslu og því gerir hann ráð fyrir því að fyrstu myndböndin verði tilbúin síðla hausts eða snemma í vetur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sveindís og stöllur sigruðu toppliðið Drunknunum fjölgar í hitabylgju í Þýskalandi Sýndarmyndböndin eins og lyklar Á þyrlu um landið þvert og endilagt Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna: Umferðin þyngist Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Innflutningur háður leyfi lögreglu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Ísland græði ekkert á aðild að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Með tilfinningu fyrir tölum Tvær hindranir í vegi orkuskipta Níu fá 125 þúsund krónur Sundlaugagarður í Laugardalnum Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar Sex fá 75,5 milljónir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til a