Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn setjast að samningaborðinu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Borg­ar­byggð­ar­list­inn setj­ast að samn­inga­borð­inu Hugrún Hannesdóttir Diego Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð hefur ákveðið að hefja formlegt samtal við Borgarbyggðarlistann um meirihlutasamstarf. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Sjálfstæðismanna í Borgarbyggð. Borgarbyggðarlistinn er framboð félagshyggjufólks í Borgarbyggð og Skorradalshreppi. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum fulltrúa í kosningunum um helgina og er með þrjá. Hann var í meirihluta með Framsókn, sem missti þrjá fulltrúa um helgina og er með tvo. Miðflokkurinn fékk tvo fulltrúa. Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Fjöl­miðla­frelsi eykst á Ís­landi en af­skipti stór­fyr­ir­tækja eru áhyggju­efni Fjölmiðlafrelsi fer minnkandi í heiminum en Ísland færist upp um fimm sæti á alþjóðlegum lista yfir frelsi fjölmiðla. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir þetta góða þróun, sem skýrist þó að hluta af því að ástandið hefur versnað annars staðar. Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Gagn­rýna skamm­an fyr­ir­vara fyrir lokun yfir Jök­ulsá á Fjöll­um Þjóðvegur eitt yfir Jökulsá á Fjöllum verður lokaður í þrjár vikur frá 26. maí. Ferðaþjónustan setur spurningamerki við skamman fyrirvara og hvað sé gert ráð fyrir því að verkið taki langan tíma. Fyrir 14 mínútumÍÞRÓTTIR Skák Vignir Vatnar opnaði sig um sjálfs­vígs­hugs­an­ir og veitti ráð Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson opnaði sig á samfélagsmiðlum sínum í um fyrrum baráttu sína við sjálfsvígshugsanir. Vignir veitti fylgjendum sínum ráð. Hann sagði frá sögu sinni og hvernig hann náði að komast úr sínum dal. Fyrir 24 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Fækkun í her­liði Banda­ríkj­anna í Evrópu veikir ekki varnir, segir yf­ir­mað­ur NATO Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins hafnar því að fækkun í herliði Bandaríkjanna í Evrópu veiki varnir álfunnar. Búast má við að þessi mál verði rædd í þaula á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna í Svíþjóð á morgun. Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Sjúkra­þjálf­ari ákærð­ur fyrir 577 til­hæfu­lausa reikn­inga Héraðssaksóknari hefur ákært sjúkraþjálfara fyrir fjársvik. Hann er grunaður um að hafa blekkt starfsmenn Sjúkratrygginga til að fá borgað fyrir meðferð sem hann veitti ekki. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Við leik og störf í sól­inni Hlýtt og bjart er á suðvesturhorninu þar sem hiti getur farið í allt að sautján stig í dag. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum vann fólk vorverkin og gestir nutu sín. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sér ekki fram á við­ræð­ur við aðra en Mið­flokk, Við­reisn og Fram­sókn Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, ræðir myndun meirihluta við Miðflokkinn, Viðreisn og Framsókn. Hún segist ekki sjá fram á samstarf með neinum öðrum flokki og stefnir að nýjum meirihluta innan tveggja vikna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Fylgj­ast með hvort moskítóflug­ur láti sjá sig Björgvin Brynjarsson Náttúrufræðistofnun Íslands fylgist með stöðu moskítuflugna hér á landi eftir að þær fundust í fyrsta skipti síðasta haust. Í október fundust moskítóflugur í Kjós og sagði Matthías Alfreðsson, skordýrafræðingur, að flugan væri komin til að vera. Í nóvember fannst önnur tegund í hesthúsi á Suðurlandi. Nú þegar farið er að vora var Matthías inntur eftir því hvort frekari fréttir væru af flugunum. „Skordýratímabilið er nýhafið og hefur farið hægt af stað svo upplýsingar eru enn takmarkaðar,“ segir Matthías en bætir við að frekari gagnaöflun fari fram yfir sumarið. „Vonandi munu niðurstöðurnar skýra stöðuna betur þegar líður á tímabilið.“ Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ræða um áfram­hald meiri­hluta­sam­starfs B og D í Hafn­ar­firði Framsókn og Sjálfstæðisflokkur ætla að halda áfram meirihlutasamstarfi í Hafnarfirði. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi Bregð­ast við orð­ræðu um flótta­fólk með nýrri her­ferð Íslandsdeild Amnesty International ýtir úr vör herferð sem bregst við harðari orðræðu um flóttafólk. 87% aðspurðra landsmanna telja að flóttafólk eigi að geta leitað hælis í öðrum löndum. Á sama tíma telja 62% að of margir fái vernd á Íslandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Gætir þú komist í slökkvi­lið­ið? Marga dreymir um að vera í slökkviliðinu. Til að komast í það þarf að standast krefjandi inntökupróf sem reynir á marga ólíka þætti. Starfið er eftirsótt og aðeins brot af þeim sækja um komast inn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fagna því að frjó­semi komi inni í sjúk­dóma­trygg­ing­ar Stjórnarmaður í Tilveru, samtökum fólks um ófrjósemi, segir að aukinn stuðningur við fólk í frjósemismeðferðum breyti miklu. Frjósemi er nú hluti af hefðbundinni sjúkdómatryggingu hjá Verði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Okkur er bara sendur putt­inn“ – Meiri­hluta­við­ræð­ur í Fjalla­byggð og Dalvík án Sjálf­stæð­is­flokks Meirihlutar bæði á Dalvík og í Fjallabyggð héldu velli í sveitarstjórnarkosningunum. Þrátt fyrir það er útlit fyrir breytta meirihluta. K-listinn á Dalvík ræðir óformlega við Framsókn; og Jafnaðarmenn í Fjallabyggð ræða formlega við H-listann. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Litáen Íbúar Vil­ní­us­ar leit­uðu skjóls vegna yf­ir­vof­andi dróna­árás­ar Hættuástandi var lýst yfir í Litáen í morgun vegna mögulegrar drónaárásar. Almennir borgarar og ríkisstjórn Litáens leituðu skjóls í kjöllurum eða þar til gerðum skýlum. Viðvaranir sem þessar hafa færst í vöxt á undanförnum mánuðum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Sam­komu­lag um við­skipta­kjör við Banda­rík­in í höfn Umdeildur samningur Evrópusambandsins við Bandaríkin um viðskiptakjör sem gerður var í fyrra er í höfn, eftir að þingmenn á Evrópuþinginu og fulltrúar ráðherraráðs ESB náðu samkomulagi um varnagla sem settir verða í samninginn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Fram­leiðsl­an aldrei meiri en tekj­urn­ar minnk­uðu Brynjólfur Þór Guðmundsson Framleiðsla í fiskeldi jókst um sautján prósent í fyrra og hefur aldrei verið meiri. Alls voru framleidd 64.417 tonn af eldisfiski. Lax var langstærstur hluti þess, 58.717 tonn. Útflutningsverðmæti jókst ekki í samræmi við aukna framleiðslu. Fiskeldisafurðir voru fluttar út fyrir 53,4 milljarða króna í fyrra. Það er einu prósenti minna en árið áður þrátt fyrir að magnið sem var flutt út hafi aukist um tólf prósent. Fiskeldi á Vestfjörðum. RÚV / Kveikur Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Seinni umræða um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hefst í dag Brynjólfur Þór Guðmundsson Aðeins tvennt er á dagskrá þingfundar í dag, þess fyrsta sem haldinn er eftir tveggja vikna fundahlé vegna sveitarstjórnarkosninga. Fyrst er óundirbúinn fyrirspurnatími. Stóra málið er þó seinni umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður. Fyrri umræðan fór fram á þremur dögum í mars og stóð yfir í um 22 klukkustundir. Meirihluti utanríkismálanefndar lagði til að spurningunni yrði breytt. Minnihlutinn mótmælti því að málið væri tekið út úr nefnd og sent til umræðu í þingsal. Þingfundur hefst klukkan þrjú. Alþingi kemur saman eftir tveggja vikna fundahlé. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ahmad­i­nejad sagður hafa átt að taka við stjórn­ar­taum­um í Íran Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, var í stofufangelsi í Íran þegar átök brutust út í Mið-Austurlöndum. Gerð var árás við heimili hans sem átti að gera honum kleift að flýja. Ekkert er vitað hvar hann heldur til eða hvort hann er á lífi. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Stýri­vext­ir hækk­að­ir í 7,75% Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur hækkað stýrivexti úr 7,50 í 7,75 prósent. Nefndin vísar til viðvarandi verðbólgu yfir fimm prósentum og aukinna verðbólguvæntinga til skamms tíma. Seðlabankinn spáir minni hagvexti og meira atvinnuleysi en áður. SAMANTEKT Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fjölþáttaógnir Áróð­urs­her­ferð­ir og aðrar fjöl­þátta­ógn­ir vax­andi áskor­un Fjölþáttaógnir og áróðursherferðir eru viðvarandi áskoranir vestrænna lýðræðisríkja og baltnesku ríkin hafa langa reynslu af þessu. Ástæða er til að óttast tilraunir í þessa veru fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hér á landi í haust, segia sérfræðingar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að 17 stiga hiti suð­vest­an til Sólin skín á fólk á suðvesturhorninu í dag en norðan og austan til verður þoka og úrkoma. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Pútín segir sam­skipti land­anna hafa náð áður óþekkt­um hæðum Forseti Kína og forseti Rússlands fóru fögrum orðum um samskipti og samvinnu landa sinna í Bejing í dag. Xi Jinping sagði að mikilvægt væri að vopnahlé kæmist á sem fyrst í Mið-Austurlöndum. 20. maí 2026 kl. 3:36ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína 430 að­gerða­sinn­ar í haldi Ísra­ela Ísraelski herinn stöðvaði skip á leið til Gaza með hjálpargögn og handtók 430 aðgerðasinna sem voru um borð. Systir forseta Írlands er meðal þeirra sem eru í haldi. 20. maí 2026 kl. 2:26ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mesta mann­fall í einum mánuði síðan í júlí Brynja Dögg Friðriksdóttir Að minnsta kosti þrír, þar af eitt barn, og 16 slösuðust í árás Rússa á fjölbýlishús í Odessu 6. apríl. EPA / IGOR MASLOV Að minnsta kosti 238 almennir borgarar voru drepnir og 1.404 særðust í árásum Rússa í Úkraínu í apríl. Þetta er mesta mannfall í einum mánuði síðan í júlí 2025, samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á fundi Öryggisráðsins á mánudaginn. Kyiv Independent greinir frá. Það voru einkum langdrægir drónar og flugskeyti sem ollu mannfallinu. Margar árásanna voru gerðar á bæi og borgir fjarri víglínunni. Um 54% þeirra sem drepnir voru í apríl urðu fyrir árásum nærri víglínunni. Árásir halda áfram í Úkraínu. Að minnsta kosti 11 eru særðir eftir árásir í nokkrum héruðum Úkraínu í nótt. 20. maí 2026 kl. 1:28ERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Pentag­on fækkar um eitt stór

Share this article