Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sjálfstæðisflokkur og Borgarbyggðarlistinn mynda meirihluta

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur og Borg­ar­byggð­ar­list­inn mynda meiri­hluta Siguróli Magni Sigurðsson Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarbyggðarlistinn handsöluðu í gær meirihlutasamkomulag fyrir næstu fjögur árin í Borgarbyggð. Formlegar viðræður hófust flokkanna á milli á miðvikudaginn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum um liðna helgi og Borgarbyggðarlistinn fékk tvo. Á síðasta kjörtímabili var Framsóknarflokkurinn með hreinan meirihluta en hann tapaði þremur mönnum í kosningunum. Facebook / Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Merz vill bjóða Úkra­ínu auka­að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu Friedrich Merz Þýskalandskanslari vill bjóða Úkraínu nokkurs konar aukaaðild að Evrópusambandinu, á sama tíma og útlit er fyrir að hefðbundnar aðildarviðræður séu að hefjast. Hugmynd Merz stendur í samhengi við mögulegt friðarsamkomulag í Úkraínu. Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Landsréttur Lækk­uðu sekt­ina um 720 millj­ón­ir Brynjólfur Þór Guðmundsson Landsréttur staðfesti í gær dóm yfir tveimur mönnum vegna stórfelldra tollalagabrota. Tveggja ára skilorðsbundin refsing þeirra var staðfest en sektargreiðslur þeirra voru lækkaðar til muna. Þeir voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða 1,1 milljarð króna hvor en Landsréttur lækkaði sektina í tæpa 741 milljón á hvorn. Mennirnir eru Snorri Guðmundsson, oft kenndur við Póló, og Sverrir Þór Gunnarsson, sem átti Drekann. Tóbak og sígarettur sem flutt voru til landsins fyrir verslanirnar voru skráð sem aðrar vörutegundir. Þannig komust þær hjá því að greiða 740.742.386 í lögbundið tóbaksgjald. Kveikt í sígarettu. Pixabay Fyrir 48 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Helm­ings­lík­ur á að Banda­rík­in og Íran komi sér saman um opnun Hormúss­unds Helmingslíkur eru á því að Bandaríkin og Íran komi sér saman um að opna Hormússund. Íranski byltingarvörðurinn sagði yfir 30 skip hafa farið um sundið með þeirra leyfi síðasta sólarhringinn. Fyrir 54 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Guardi­ola lætur af störf­um hjá City Manchester City hefur staðfest þann þráláta orðróm að Pep Guardiola láti af störfum sem þjálfari liðsins eftir leiktíðina. Guardiola segir enga ástæðu fyrir því að hætta núna, aðra en þá að það sé tímabært. Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Lok­an­ir í Hval­fjarð­ar­göng­um um hvíta­sunnu en stefnt að verk­lok­um í næstu viku Von er á töluverðri umferð um hvítasunnuhelgina. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir framkvæmdir í Hvalfjarðargöngum á áætlun. Aðalvarðstjóri umferðardeildar hjá lögreglunni biður ökumenn um að gæta að umferð mótorhjóla og reiðhjóla á vegum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Óund­ir­bún­ar fyr­ir­spurn­ir og ESB-við­ræð­ur Brynjólfur Þór Guðmundsson Tvö mál eru á dagskrá þingfundar í dag. Fyrst eru óundirbúnar fyrirspurnir þar sem fjármála- og efnahagsráðherra, heilbrigðisráðherra, innviðaráðherra, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra verða til svara. Að því loknu verður seinni umræðu um þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður haldið áfram. Á Alþingi. RÚV / Ingunn Lára Kristjánsdóttir Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Frum­flutn­ing­ur í Mið­stöð­inni: Diljá stígur ný spor á ís­lensku Diljá Pétursdóttir frumflutti nýtt lag í Miðstöðinni í gærkvöldi, lagið Ó, Rómeo. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Birg­itta mætti með nýja Þjóð­há­tíð­ar­lag­ið Nýja Þjóðhátíðarlagið hljómaði í fyrsta skipti í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Birgitta er gríðarlega ánægð með afraksturinn. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Stór nöfn ekki valin í enska liðið á HM Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, tilkynnti í morgun leikmannahóp sinn fyrir HM sem hefst í júní. Stór nöfn voru ekki valin í liðið að þessu sinni. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Neuer í þýska hópnum fyrir HM Julian Nagelsmann tilkynnti í gær leikmannahóp Þýskalands fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst 11. júní. Manuel Neuer er í hópnum þrátt fyrir að hafa hætt með landsliðinu fyrir tveimur árum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Náms­gögn skorin niður um ára­tuga skeið Framlög til þróunar námsgagna eru innan við helmingur þess sem þau voru fyrir tveimur áratugum. Formaður þróunarsjóðs segir að skortur á vönduðum námsgögnum bitni mest á þeim sem mest þurfa á stuðningi að halda. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Hval­fjarð­ar­göng lokuð um nætur í lok hvíta­sunnu­helg­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Fólk sem hyggur á ferðalög um hvítasunnuhelgina gæti þurft að hafa endurnýjun ljósabúnaðar í Hvalfjarðargöngum í huga þegar líður á helgina. Göngin eru lokuð fimm nætur í viku. Opið er næstu tvær nætur en lokað verður fyrir umferð aðfaranótt mánudags og þriðjudags. Göngunum er lokað klukkan 21:30 á kvöldin og þau opnuð aftur fyrir umferð 6:00 næsta morgun. Enn er stefnt að því og útlit fyrir að framkvæmdum ljúki 29. maí. Göngin eru lokuð 21:30 til 6:00 aðfaranótt mánudags og þriðjudags. RÚV / Aðsend Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf „Gerum ekki ráð fyrir öðru en að ráða þetta fólk aftur inn til okkar“ Forstjóri Íslandshótela gerir ráð fyrir að allt starfsfólk Hilton Nordica og Natura, sem Berjaya ætlar að segja upp, verði ráðið til Íslandshótela, sem hefur gert leigusamning um hótelin. 300 manns verður sagt upp hjá Berjaya í næstu viku. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Vill helst ekki koma fram þar sem börnin hans eru ekki vel­kom­in Gauti Þeyr, eða Emmsjé Gauti, segist á tímabili hafa lifað tvöföldu lífi skemmtarans og fjölskylduföðursins. Hann þurfi að geta sameinað þessa tvo heima að einhverju leyti til að geta haldið áfram í bransa sem fari misvel með fólk. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Fagna fjölg­un her­manna í Pól­landi Brynjólfur Þór Guðmundsson Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, þakkaði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í dag fyrir tilkynningu hans um að bandarískum hermönnum í Póllandi yrði fjölgað um 5.000. Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, fagnaði yfirlýsingunni líka. Bandaríkjamenn höfðu áður sagt að þeir væru hættir við að senda 4.000 hermenn til Póllands. Það var túlkað sem viðbrögð Trumps við of litlum varnarviðbúnaði Evrópuríkja. Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands. EPA / MARCIN BIELECKI Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Tveggja ára stúlka lést úr hita­slagi eftir að faðir hennar gleymdi henni í bíl Tveggja ára spænsk stúlka lést úr hitaslagi eftir að hafa verið í bíl í margar klukkustundir. Miklir hitar hafa verið víða á Spáni undanfarið sem er óvenju snemmt í ár. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Ættu Ís­lend­ing­ar að hata þetta lið á HM? Liðsmenn Curaçao munu í sumar stela meti Íslands sem fámennasta þjóð í sögu HM karla í fótbolta. Er talningin svindl? Ættu Íslendingar að hata liðið? Eða er þetta einmitt lið sem hægt er að fylkjast bak við? Stefán Pálsson er með svörin. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vætu­samt víðast hvar Útlit er fyrir vætusaman dag. Það rignir sunnan til og norðan- og austan til verður súld, einkum þegar líður á daginn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf 300 sagt upp á tveim­ur hót­el­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Starfsfólki Hilton Nordica og Hilton Natura-hótelanna var tilkynnt í gær að því yrði sagt upp í næstu viku. Berjaya hefur rekið hótelin en Íslandshótelin taka við rekstrinum innan skamms. Húsnæðið er í eigu Reita sem leigja það út til rekstrar. Vísir greindi frá því í gær að starfsfólki hefði verið tilkynnt um yfirvofandi uppsagnir, starfsfólk á minnst öðru hótelinu var boðað til fundar í gær. Annar fundur hefur verið boðaður með starfsfólki í dag. Starfsfólk sem fréttamenn Vísis ræddu við lýsti óvissu um framtíð sína og sagði að þrátt fyrir yfirlýsingar opinberlega um að nýr eigandi yfirtæki ráðningarsamninga hefði ekkert verið rætt við það. Hilton Natura sem áður hét Reykjavík Natura og þar áður Hótel Loftleiðir. RÚV / Þórgunnur Oddsdóttir Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Þríþraut Hvern­ig er að vera lang­best­ur á Ís­landi? Þríþrautarkappinn Sigurður Örn Ragnarsson hefur unnið allt sem hægt er að vinna á Íslandi síðustu ár. Hvernig er tilfinningin að vera sá besti í sínu fagi? Hverjar eru næstu áskoranir? Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Leggja fram frum­varp sem kæmi í veg fyrir að Orbán snúi aftur Péter Magyar, nýr forsætisráðherra Ungverjalands, hefur lagt fram frumvarp sem takmarkar setu forsætisráðherra við átta ár. Nái frumvarpið í gegn kemur það í veg fyrir að Viktor Orbán geti snúið aftur í embætti. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Senda 5.000 her­menn til Pól­lands Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að Bandaríkin ætli að senda 5.000 hermenn til Póllands. Þessi tilkynning kemur aðeins nokkrum dögum eftir að varaforsetinn sagði að ákveðið hefði verið að bíða með að senda hermenn til Póllands. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Segir um 100 rúss­neska her­menn hafa fallið eða særst í höf­uð­stöðv­um FSB Úkraínskir sérsveitarmenn SBU gerðu loftárás á höfuðstöðvar rússnesku leyniþjónustunnar FSB í Kherson. Úkraínuforseti greindi fyrst frá árásinni. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Níu særð­ust í árás á sjúkra­hús Vopnahlé milli Líbanon og Ísraels var framlengt um 45 daga í síðustu viku. Þrátt fyrir það halda árásir áfram milli Ísraelshers og Hezbollah. Hezbollah-samtökin eru mótfallin samningaviðræðunum milli Ísraela og Líbana. 22. maí 2026 kl. 1:14ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Að­gerð­ar­sinn­um sleppt úr haldi Ísra­ela Ásrún Brynja Ingvarsdóttir Alls var 422 aðgerðarsinnum flogið frá Suður-Ísrael til Ankara í þremur flugvélum, en nokkrum aðgerðarsinnum var flogið beint til heimalanda sinna. AP / Emrah Gurel Ísraelsk stjórnvöld segja að allir erlendu aðgerðasinnarnir sem teknir voru höndum hafi allir v

Share this article