Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá hærri verðbólgu en flestir greiningaraðilar

Read Full Article →

Seðlabankinn gaf í morgun út nýja verðbólguspá sem er talsvert hærri en fyrri spá bankans frá því í febrúar. Nýja spáin er hærri en spár flestra annarra greiningaraðila, að því er kemur fram í nýrri hagsjá Landsbankans. „Miðað við verðbólguspána hefði mátt gera ráð fyrir að nefndin hækkaði vexti um meira en 0,25 prósentustig. Nefndin benti þó á að raunhagkerfið sé að gefa töluvert eftir og störfum sé hætt að fjölga. Nýjar kortaveltutölur gefi einnig til kynna að einkaneysla sé að gefa eftir.“ Sjá einnig Hækka stýrivexti upp í 7,75% Hagfræðideild Landsbankans telur að gangi ný verðbólguspá Seðlabankans eftir sé nokkuð ljóst að peningastefnunefnd muni hækka vexti enn frekar. „Aukist verðbólga samkvæmt spá Seðlabankans og mælist um 5,5% á lokafjórðungi ársins er hætta á að núverandi aðhaldsstig sé of lítið.“ Í hagsjánni er þó bent á að í ljósi þess að raunhagkerfið er að gefa eftir þá sé hætta á að aðhald peningastefnunnar sé of mikið. Verðólguspá Seðlabankans gerir ráð fyrir að verðbólga verði 5% á öðrum ársfjórðungi og 5,2% á þriðja fjórðungi, sem er rúmlega einni prósentu meira en bankinn spáði í febrúar. Gangi það eftir mun forsenduákvæði kjarasamninga á almennum vinnumarkaði virkjast. Í Peningamálum , riti Seðlabankans, segir að þrátt fyrir að búist sé við meiri slaka sé nú talið að verðbólga minnki hægar en spáð var í febrúar. Gert er ráð fyrir að verðbólgan verði komin undir 4% um mitt næsta ár og verði að meðaltali 3,6% á árinu eða tæplega 1 prósentu meiri en í febrúarspánni. Ný verðbólguspá Seðlabankans. Mynd tekin úr ritinu Peningamálum sem bankinn gaf út í morgun. Hagfræðideild Landsbankans segir að það sem skýri hærri verðbólgu nú og fram á við séu þættir sem peninganefnd Seðlabankans geti ekki haft áhrif á og myndi að jafnaði horfa framhjá, svo sem hækkun á vörugjöldum um áramót og hátt olíuverð. „Það sem nefndin hefur áhyggjur af eru svokölluð annarrar umferðar áhrif á verðbólgu, sem eru meiri en ella vegna hárra verðbólguvæntinga. Þess vegna ákvað nefndin að hækka vexti, en á sama tíma hefur hún áhyggjur af kólnandi hagkerfi og nemur hækkunin því einungis 0,25 prósentustigum, þrátt fyrir verulega dökka verðbólguspá.“

Share this article