Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga hjaðni á næsta ári og hag­vaxtar­spá lækkuð

Read Full Article →

Útlit er fyrir að verðbólga verði heldur meiri á næstu mánuðum en áður var spáð ef marka má uppfærða spá Seðlabanka Íslands, þótt bankinn telji horfur um undirliggjandi verðbólguþrýsting lítið breyttar. Bankinn hefur lækkað hagvaxtarspá sína fyrir árið í ár og gerir nú ráð fyrir 1,4% hagvexti, samanborið við 1,6% í maíspá bankans. Veikari einkaneysla og lakari horfur í sjávarútvegi vega þar þungt, þótt aukin umsvif gagnavera styðji við fjárfestingu og þjónustuútflutning. Seðlabankinn telur að hagvöxtur taki við sér á næstu árum. Spáð er 1,9% hagvexti árið 2027 og 2,6% árið 2028. Mat bankans á hagvexti í ár hefur lækkað um 0,2% frá því í maí en spáin fyrir næstu tvö ár hefur hins vegar verið hækkuð lítillega. Einkaneysla gefur meira eftir Ein helsta breytingin frá maíspánni er mun veikari einkaneysla. Seðlabankinn spáir nú aðeins 1,2% vexti einkaneyslu í ár en í maí var gert ráð fyrir 2% vexti. Á næsta ári er spáð 2,2% vexti í stað 2,7%. Á móti hafa horfur um fjármunamyndun tekið miklum breytingum. Nú er gert ráð fyrir 3,6% aukningu fjármunamyndunar í ár en í maí var spáð 3,1% samdrætti. Sú breyting skýrist að stórum hluta af meiri fjárfestingu í tölvubúnaði vegna gagnavera. Bankinn bendir á að sé horft fram hjá þeirri fjárfestingu sé þróun almennrar atvinnuvegafjárfestingar mun nær því sem áður var spáð. Meiri verðbólga í ár Verðbólguhorfur til skamms tíma hafa versnað lítillega. Seðlabankinn spáir nú 5,4% verðbólgu að meðaltali á þessu ári, samanborið við 5,2% í maíspánni. Gert er ráð fyrir að ársverðbólga verði 5,6% á þriðja ársfjórðungi og 5,7% á þeim fjórða. Uppfærð verðbólguspá. Bankinn telur þó að aukningin nú breyti litlu um undirliggjandi verðbólguhorfur. Slaki hefur aukist í þjóðarbúinu, dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði og einkaneysla er veikari en áður var talið. Samkvæmt grunnspánni verður verðbólga komin niður í 4,5% á fyrsta fjórðungi næsta árs og um 3% undir lok árs 2027. Hún á síðan að ná 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans á fyrri hluta árs 2028. Bankinn telur engu að síður meiri hættu á að verðbólga verði meiri en grunnspáin gerir ráð fyrir en að hún verði minni. Verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði og óvissa er meðal annars tengd þróun olíu- og hrávöruverðs og mögulegum annarrar umferðar áhrifum verðhækkana. Atvinnuleysi eykst Horfur á vinnumarkaði hafa jafnframt versnað. Seðlabankinn gerir nú ráð fyrir að heildarvinnustundum fækki um 1,3% í ár og að atvinnuleysi verði að meðaltali 5,9%, 0,2% meira en spáð var í maí. Atvinnuleysi er síðan talið lækka í 5,2% á næsta ári og 4,1% árið 2028. Sjá einnig Aukin verðbólga „fyrst og fremst“ vegna hækkunar opin­berra gjalda

Share this article