Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lífeyrissjóður bænda að renna inn í Frjálsa

Read Full Article →

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað samning um sameiningu lífeyrissjóðanna. Þetta yrði önnur sameiningin hjá Frjálsa á stuttum tíma en sameinuðust formlega síðustu áramót. Viðræður um sameiningu sjóðanna hófust á haustmánuðum 2025 og eftir gerð áreiðanleikakönnunar og ítarlegt mat á fýsileika sameiningar telja stjórnir beggja lífeyrissjóða að sameining efli rekstrargrundvöll og sé til hagsbóta fyrir sjóðfélaga beggja sjóða. Sjá einnig Líf­eyris­sjóður bænda einnig að sam­einast Frjálsa Sameiningin verður lögð fram til staðfestingar á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda sem haldinn verður í júní og er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. „Markmið sameiningarinnar er að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna,“ segir í fréttatilkynningu. Heildareignir sameinaðs sjóðs eru um 672 milljarðar króna miðað við stöðu eigna 30. apríl sl., þar af eignir Frjálsa um 626 milljarðar og eignir Lífeyrissjóðs bænda um 46 milljarðar. Með sameiningunni mun Frjálsi taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum Lífeyrissjóðs bænda en fyrst um sinn verður haldið utan um áunnin réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs bænda í lokaðri tryggingadeild. Sameiningin verður kynnt fyrir sjóðfélögum Lífeyrissjóðs bænda þann 4. júní kl. 20 á Hótel Stracta á Hellu og þann 5. júní kl. 20 í útibúi Arion banka á Akureyri. „Ég er þakklát fyrir það traust sem stjórn Lífeyrissjóðs bænda hefur sýnt Frjálsa og fagna því að stjórnir hafi nú samþykkt sameiningu sjóðanna. Með sameiningunni verða sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda hluti af öflugum sjóðfélagahópi Frjálsa og mun sameinaður sjóður þjónusta rúmlega 85 þúsund sjóðfélaga. Við munum áfram leggja ríka áherslu á góða og persónulega þjónustu. Sameiningin leggur traustan grunn að öflugri framtíð með hagsmuni allra sjóðfélaga að leiðarljósi,“ segir Ásdís Eva Hannesdóttir , stjórnarformaður Frjálsa. „Ég er ánægð með að sameiningarviðræðum stjórna sé lokið með þeirri niðurstöðu að sjóðirnir sameinist. Það eru ríkir hagsmunir fyrir Lífeyrissjóð bænda að sameinast stórum sjóði eins og Frjálsa sem er jafnframt með öflugan rekstrar- og eignastýringaraðila, Arion banka, sem veitir sjóðfélögum góða þjónustu,“ segir Vala Valtýsdóttir , stjórnarformaður Lífeyrissjóðs bænda. „Við í stjórn Lífeyrissjóðs bænda bindum vonir til þess að sameiningin leggist vel í sjóðfélaga og að þeir staðfesti hana á ársfundi í júní. Stjórn telur jafnframt að með sameiningu sjóðanna verði lagður traustur grunnur að áframhaldandi uppbyggingu öflugs lífeyrissjóðs.“

Share this article