Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sameining Frjálsa og LSB samþykkt

Read Full Article →

Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda (LSB) samþykktu einróma tillögu um sameiningu sjóðsins við Frjálsa lífeyrissjóðinn á ársfundi LSB sem haldinn var 19. júní sl. Í tilkynningu frá Frjálsa Lífeyrissjóðnum kemur fram að Frjálsi muni muni taka yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum LSB, og verða sjóðfélagar hans hluti af Frjálsa en fyrst um sinn verður haldið utan um eignir og áunnin réttindi sjóðfélaga LSB í sér tryggingadeild innan Frjálsa. Þá kemur einnig fram að markmið sameiningarinnar sé að nýta stærðarhagkvæmni til að lækka rekstrarkostnað, efla þjónustu og upplýsingagjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda, minnka rekstraráhættu og um leið styrkja eigna- og áhættustýringu sjóðanna. Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðanna. „Sjóðfélagar þurfa almennt ekkert að aðhafast vegna sameiningarinnar en verða upplýstir um áframhaldandi framgang hennar eftir því sem fyrirvörum sameiningar hefur verið aflétt.“ segir sömuleiðis í tilkynningu á vef Frjálsa.

Share this article