Innlent | Morgunblaðið | 23.5.2026 | 7:00 Aðsend grein: Takk fyrir traustið, Kópavogur Ásdís Kristjánsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það er ekki orðum aukið að fullyrða að Sjálfstæðisflokkurinn og stefna hans hafi unnið stórsigur í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Víðast hvar bætir flokkurinn við sig og er í lykilstöðu um landið allt. Í tilfelli Kópavogs hlaut Sjálfstæðisflokkurinn sína bestu kosningu í 78 ára kosningasögu kaupstaðarins og þar áður hreppsins. Flokkurinn bætti við sig rúmlega tólf prósentustigum og fjölgaði kjósendum hans um tæplega 4.000 frá kosningunum árið 2022. Í fyrsta skipti í sögu bæjarfélagsins er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta bæjarfulltrúa. Kosningarnar í Kópavogi voru áhugaverðar að því leyti að umræðan í aðdraganda þeirra snerist aðeins að hluta til um uppboð kosningaloforða um gull og græna skóga. Frekar var tekist á um grunnhugmyndafræði í rekstri og umsvifum hins opinbera. Þannig tefldum við Sjálfstæðismenn í Kópavogi fram grunnstefnu Sjálfstæðisflokksins um ráðdeild í rekstri, uppbyggingu á grunni séreignarstefnunnar, lægri opinberar álögur, fleiri valkosti í samgöngumálum, frelsi einstaklingsins og minni afskiptasemi hins opinbera sem um leið eigi að einbeita sér að færri verkefnum og vinna þau skammlaust. Liggja skýringar á góðu gengi flokksins í undangengnum kosningum í því að stefna hans höfðar vel til kjósenda í dag en auk þess býr Sjálfstæðisflokkurinn yfir stærsta mannauði allra stjórnmálaflokka landsins, sem er reiðubúinn að fórna frítíma sínum og leggja hönd á plóg, jafnvel þótt hann eigi engan möguleika á að ná kjöri. Þar vísa ég ekki aðeins til frambjóðenda neðarlega á lista, heldur jafnframt fjölskyldna þeirra sem og annarra stuðningsmanna og velunnara. Þetta er fólkið sem var reiðubúið til að leggja lóð sín á vogarskálarnar, ræða við kjósendur um okkar áherslur, ganga í hús og mæta á viðburði, til að auka veg og hróður sjálfstæðisstefnunnar í Kópavogi sem og öðrum sveitarfélögum. Frelsi í stað skattahækkana og afskipta Niðurstaða kjósenda var afdráttarlaus: Grunnþjónustan á að koma á undan áhugamálum og öðrum duttlungum stjórnmálamanna sem ekki teljast til forgangsverkefna sveitarfélaga. Þeim hugnast slíkt betur en að kjörnir fulltrúar setji þeim afarkosti þegar kemur að ferðamáta, seilist sífellt dýpra í vasa bæjarbúa til að fjármagna gæluverkefni eða ýti undir hækkun fasteignaverðs og verðbólgu með sveltistefnu í uppbyggingu, sem og boðum og bönnum um að ráðstafa stórum hluta húsnæðis til hinna svokölluðu „óhagnaðardrifnu leigufélaga“ á kostnað bæjarsjóðs. Við fundum glöggt á viðmóti kjósenda að okkar stefnu, sem við höfum keyrt á síðustu fjögur árin og boðuðum áfram, var vel tekið. Jafnvel þótt halda hefði mátt að forsætisráðherra sjálfur væri í framboði í Kópavogi – létu kjósendur það útspil ekki villa sér sýn. Þótt frambjóðendur, sjálfboðaliðar, fjölskyldur þeirra og vinir eigi miklar þakkir skildar, þá veltur að lokum allt á vali kjósenda sem á fjögurra ára fresti koma sameiginlegri skoðun sinni á framfæri. Við höfum nú hlotið afdráttarlaust traust þeirra og við munum gera allt í okkar valdi til að standa undir því trausti á ný. Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi hefur sýnt að honum er treystandi til að taka erfiðar ákvarðanir í þágu Kópavogsbúa til að standa vörð um þeirra hagsmuni. Kópavogur verður áfram í sókn undir okkar forystu – kærar þakkir fyrir traustið. Ásdís Kristjánsdóttir, b æjarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Vettvangur: Frá Evrópustofu til stjórnarstefnu Aðsend grein: Sérhæfð hjúkrunarheimili mæta þörfum íbúa betur Aðsend grein: Takk fyrir traustið, Kópavogur „Ekki svona æstur í fjölskylduboðunum“ Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mestu sérhagsmunir í sögunni Skýrslan afhjúpar stöðuna: „Ekkert jafnræði“ „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Staðfesti vörumerkjaréttarbrotið Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Getum við treyst einkunnum í íslenskum grunnskólum? Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Vettvangur: Frá Evrópustofu til stjórnarstefnu Aðsend grein: Sérhæfð hjúkrunarheimili mæta þörfum íbúa betur Aðsend grein: Takk fyrir traustið, Kópavogur „Ekki svona æstur í fjölskylduboðunum“ Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur fundar í kvöld og á morgun Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn í meirihlutaviðræður Aukið eftirlit yfir helgina Námsgögn fjársvelt í áratugi Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Staðfesti vörumerkjaréttarbrotið Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Getum við treyst einkunnum í íslenskum grunnskólum? Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?