Mánudaginn 18. maí fór umsjónarmaður Víðsvegar á Rás 1 á flakk um Ólafsfjörð og spjallaði við fólk á förnum vegi. Sauðburður langt kominn hjá EGÓ-bændum Í litlu fjárhúsi á Kleifum, við vestanverðan Ólafsfjörð, eru átta hobbýbændur saman með um 50 kindur. Hópurinn kallar sig EGÓ, sem eru upphafsstafirnir í nöfnum stofnenda. Aðeins ein kind átti eftir að bera þegar Víðsvegar bar að garði. Þröstur Ólafsson stóð vaktina í fjárhúsinu en hann bættist í EGÓ-hópinn nokkrum árum eftir stofnun. En af hverju ákvað hann að ganga til liðs við hópinn? „Bara upp á félagsskapinn. Afi átti kindur eins og náttúrlega allir í firðinum hérna. Það voru allir sem áttu kindur í fjárhúsinu í Fjósahverfinu, eins og það var kallað. Kýr, geitur, það var allt saman hérna. Á neðri hæðinni hjá sumum.“ Leikskólinn sprunginn og ný viðbygging tekin í notkun Það kann að koma á óvart að í litlum bæ eins og Ólafsfirði er kennt á þremur skólastigum. Þar er leikskóli og grunnskóli, en nemendum í 6.-10. bekk í Fjallabyggð er kennt á Ólafsfirði, og svo er þar líka menntaskóli þar sem nemendafjöldi er um 600, bæði í stað- og fjarnámi. Leikskólinn á Ólafsfirði heitir Leikhólar og er hluti af Leikskóla Fjallabyggðar. Björk Óladóttir aðstoðarleikskólastjóri segir að nafnið megi líklegast rekja til hólanna sem voru á leikskólalóðinni þegar skólinn var stofnaður. Seinna var lóðinni breytt en ákveðið að halda einum hól. Kristín Karlsdóttir leikskólastjóri segir börnum hafa fjölgað mikið í leikskólanum á Ólafsfirði því margt ungt fólk sé að flytja aftur heim. „Þannig að við erum búin fá lausar kennslustofur af því við vorum sprungin, okkur vantaði meira rými.“ Ný viðbygging var tekin í notkun fyrir um þremur vikum síðan. Kom til að kaupa bíl og heillaðist af staðnum Á Ólafsfirði er ein kjörbúð og ein sjoppa. Í sjoppunni stóð verslunarstjórinn Alina Streza vaktina þegar Rás 1 leit við. Alina fluttist til Íslands fyrir sex árum. Hún bjó fyrst í mánuð í Reykjavík en fór svo til Ólafsfjarðar í þeim erindagjörðum að kaupa bíl. Hún heillaðist af bænum og sneri ekki aftur. Hún segir samfélagið hafa tekið sér mjög vel og fólk sé hjálpsamt. Alina rekur líka sína eigin verslun, verslunina Glaumbæ, sem hún stofnaði fyrir þremur árum til að bæta þjónustu við íbúa og gesti bæjarins. „Það var allt lokað eftir klukkan sex og það gat verið flókið fyrir íbúa, ef það gleymdist til dæmis að kaupa eitthvað fyrir lokun. Svo ég opnaði þessa búð og það er opið allan sólarhringinn. Það gengur mjög vel og allir eru glaðir,“ segir Alina og segir ekkert mál þó að fólk komi stundum á nóttunni til að versla í búðinni. Ný lista- og menningarmiðstöð opnar við höfnina Við höfnina á Ólafsfirði eru nokkur fyrirtæki, til dæmis vélssmiðja, netagerð, harðfiskgerð og styrjueldi. Áður fyrr var mikið líf við höfnina, fullt af trillum og togurum í höfn, en þar hefur orðið breyting á. Komið hefur til tals að nýta höfnina fyrir fiskeldi. Norðarlega á hafnarsvæðinu, í gömlu fiskvinnsluhúsi, er verið að setja á fót nýja starfsemi þar sem sköpunarkrafturinn fær að njóta sín. Húsið heitir Brimsalir. „Núna erum við að búa til samfélagsmiðstöð, listamannadvöl og opnar vinnustofur,“ segir Ida Semey. Hún og Bjarni Guðmundsson, maður hennar, standa saman að verkefninu sem byrjaði fyrir um tveimur árum. En hvað kveikti hugmyndina að þessari nýju lista- og menningarmiðstöð? „Við áttum áður Kaffi Klöru og eitt af því sem okkur fannst gaman þegar við áttum Kaffi Klöru, var að hitta fólkið og búa til rými þar sem allir voru velkomnir. Hugmyndin um að það er pláss fyrir alla,“ segir Ida. Ida segir þau hafa viljað búa til skapandi umhverfi. „Svo er maðurinn minn kominn á eftirlaun, og ég er að fara á hálf eftirlaun núna í sumar. Þannig að okkur vantaði líka eitthvað til að gera þegar við förum á eftirlaun, af því þú getur ekki bara hætt og setið svo og horft út í loftið. Maður þarf að hafa eitthvað að gera.“ Hægt er að hlusta á þáttinn í heild í spilara RÚV hér fyrir neðan. Einnig var rætt um starfið í Menntaskólanum á Tröllaskaga og kíkt í heimsókn í Vélsmiðju Ólafsfjarðar sem og í Pálshús, eitt elsta húsið á Ólafsfirði. Ólafsfjörður er annar tveggja þéttbýliskjarna í Fjallabyggð á norðanverðum Tröllaskaga. Í bænum býr 771.