Týr sér glögglega að helstu talsmenn aðlögunar Íslands að Evrópusambandinu beita þeim rökum að koma þurfi böndum á umsvif útgerðarfélaga hér á landi. Eins og þau verði eitthvað minni við það að fyrirtækin komist í erlent eignarhald. Dagur B. Eggertsson, stuðningsfulltrúi Samfylkingarinnar á Alþingi, skrifar þannig í Morgunblaðið í dag: „Stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins hafa fjárfest gríðarlega í minni sjávarútvegsfyrirtækjum og alls óskyldum atvinnurekstri á síðastliðnum árum. Félögin sjálf, eigendur þeirra, eignarhaldsfélög þeirra og sérstök fjárfestingafélög. Samþjöppunin er orðin gríðarleg. Ísland hefur lengi verið land fákeppni.“ Kaffihúsaeigandi fjárfestir í óskyldum rekstri Fyrir það fyrsta veltir Týr því fyrir sér hvers vegna vinstri menn eru sífellt að tortryggja það að eigendur arðbærs rekstrar noti ávinninginn til þess að fjárfesta og byggja upp nýjan atvinnurekstur. Það er jú það sem markaðshagkerfið hverfist um. Var Dagur á móti því að útgerðarfélög kæmu að vexti og viðgangi félaga á borð við Kerecis? Hann gerði að minnsta kosti engar athugasemdir þegar kaffihúsaeigandi í Vesturbænum fjárfesti í alls óskyldum rekstri í formi lóðaþróunar í Skerjafirði. Svo er staðreynd málsins sú að umsvif útgerðarfélaganna og tengdra félaga eru alls ekki mikil í íslensku atvinnulífi. Vinstri menn hafa haft miklar áhyggjur af umsvifum Ísfélagsins á majónesmarkaðnum og Kaupfélags Skagfirðinga á hamborgara- og brauðstangamarkaðnum. Hægt gengur hjá útgerðarfélögunum að kaupa upp Ísland Hlutdeild eigin fjár Ísfélagsins, KS og tengdra félaga í samanlögðu eigin fé íslensks atvinnulífs er um eitt prósent. Sameiginleg velta Samherja og tengdra félaga er aðeins um eitt prósent af heildarveltu fimm hundruð stærstu fyrirtækja Íslands — eins og fjallað er um árlega í útgáfu Frjálsrar verslunar, systurmiðils Viðskiptablaðsins — og sameiginlegt eigið fé þeirra nemur um 1,9 prósentum af samanlögðu eigin fé stærstu fyrirtækja landsins. Séu þessi fyrirtæki að kaupa upp allt Ísland gengur það ákaflega hægt. En svona tölulegar staðreyndir eru ekkert að flækjast fyrir vinstri mönnum sem þrá hvað heitast að Ísland aðlagist Evrópusambandinu sem fyrst. Týr er einn af föstum rittstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.