Innlent | Morgunblaðið | 14.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis Hjörleifur Guttormsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Afstaða Íslendinga til Evrópusambandsins (ESB) hefur verið á dagskrá með hléum í aldarþriðjung. Á Alþingi árin 1988-1990 var að frumkvæði Alþýðuflokksins stofnað til svokallaðrar Evrópustefnunefndar og kosnir níu fulltrúar frá þáverandi þingflokkum á Alþingi, en flestir þeirra eru nú látnir. Enginn íslensku stjórnmálaflokkanna hafði þá á stefnuskrá sinni beina aðild að Evrópusambandinu. Nefndin skilaði áfangaskýrslu vorið 1990 og flestir einnig séráliti, þar á meðal undirritaður sem var fulltrúi Alþýðubandalagsins í nefndinni. Ég varaði þá eins og síðar eindregið við að Ísland tengdist Evrópubandalaginu, eins og það þá nefndist, beint eða óbeint „en leitaði sem hagstæðastra samninga við slík bandalög ríkja í Evrópu, Norður-Ameríku, Austur-Asíu og víðar“. Ófarir Jóhönnustjórnarinnar Aðildarumsóknin að Evrópusambandinu 2009 á vegum ríkisstjórnar Samfylkingarinnar undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur var meiriháttar ólýðræðisleg mistök, studd af forystu Vinstri-grænna andstætt skýrum flokkssamþykktum. Fjöldi flokksfélaga VG andæfði þeim gjörningi opinberlega og ég sagði mig í janúar 2013 úr Vinstri grænum, flokki sem ég hafði átt frumkvæði um að stofna. Rúmu ári síðar voru samningaviðræður um aðild Íslands að ESB efnislega komnar í strand og þær gufuðu upp án formlegs uppgjörs snemma árs 2015. Endurtökum ekki hrapalleg mistök Ljóst er að samþykktin um þjóðaratkvæðagreiðslu nú er knúin fram af Viðreisn, flokki sem til varð fyrir fáum árum með aðild að ESB sem kjölfestu í stefnu sinni. Fyrir þeirri kröfu beygðu sig samflokksflokkar í núverandi ríkisstjórn, forysta Flokks fólksins þar á meðal þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu við ESB-aðild. Dagsetningin um svo afdrifaríkt mál með skömmum fyrirvara í sumarlok er andstæð því sem almennt gerist í stjórnmálastarfi, þar sem félagsstarf hefst að jafnaði fyrst er líður á haustið. Frumkvæði áhugamanna um stofnun fjöldahreyfingarinnar „Áfram Ísland“ gegn ESB-aðild á fjölsóttum fundi í Reykjavík 6. júlí sl. er þeim mun lofsverðari og sá málstaður sem þar kom fram þarf að berast um land allt á þeim fáu vikum sem eru fram að kjördegi 29. ágúst. Hvað er í húfi? Þeir sem hlýddu á málflutning framsögumanna samtakanna Áfram Ísland 6. júlí sl. velkjast ekki í vafa um hvað í húfi er eigi Ísland að verða aðili að Evrópusambandinu. Ólafur Ragnar fyrrverandi forseti flutti um það fádæma skýra og góða ræðu sem berast þyrfti inn á hvert heimili hérlendis. Það sama þyrfti að gerast um skýrar aðvaranir Láru Herborgar Ólafsdóttur lögmanns og Björns Zoëga læknis með sína víðtæku alþjóðlegu reynslu. Nú reynir ekki síst á ungar kynslóðir með alþjóðlega sýn og reynslu. Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skrifar undir fimm ára samning í Manchester Strætó hækkar gjaldskrá í annað sinn á árinu Aðsend grein: Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis „Við munum svæfa Messi“ „Þægindaramminn minn stækkaði tífalt“ Umræðan Að koma sér í form Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Smart að kaupa notaðar vörur Hitinn gæti náð 25 stigum Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Ísland má ekki missa af lestinni Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Reyna að klára fyrir myrkvann vestur á fjörðum Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Að hluta til vegna fjármálahrunsins Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér 25 stiga hiti fyrir austan og hlýrra á morgun Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Bíll valt í Kömbunum Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Bíll valt í Kömbunum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Skrifar undir fimm ára samning í Manchester Strætó hækkar gjaldskrá í annað sinn á árinu Aðsend grein: Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis „Við munum svæfa Messi“ „Þægindaramminn minn stækkaði tífalt“ Umræðan Að koma sér í form Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Hitinn gæti náð 25 stigum Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Ísland má ekki missa af lestinni Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Reyna að klára fyrir myrkvann vestur á fjörðum Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Að hluta til vegna fjármálahrunsins Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér 25 stiga hiti fyrir austan og hlýrra á morgun Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Bíll valt í Kömbunum Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Bíll valt í Kömbunum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi