Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnaðurinn fimm­faldaðist eftir góða loðnu­vertíð

Read Full Article →

Síldar­vinnslan skilaði 35,1 milljón evra hagnaði á fyrsta árs­fjórðungi, jafn­virði um 5,1 milljarðs króna. Hagnaður félagsins fimm­faldaðist frá sama tíma í fyrra, þegar hann nam 6,9 milljónum evra. Rekstrar­tekjur námu 113,6 milljónum evra, eða um 16,5 milljörðum króna, saman­borið við 78,6 milljónir evra á fyrsta árs­fjórðungi í fyrra en miðað er við meðal­gengi evru á tíma­bilinu. Tekjurnar jukust því um 44,6% milli ára. Rekstrar­hagnaður fyrir af­skriftir, EBITDA, nam 46,1 milljón evra, eða um 6,7 milljörðum króna. EBITDA-hlut­fallið var 40,5%, saman­borið við 26,8% á sama tíma í fyrra. Í fjár­festa­kynningu félagsins kemur fram að af­koman hafi einkum litast af góðri loðnu­vertíð eftir tvö lé­leg ár, mikilli fram­leiðslu loðnu­afurða, góðri veiði Blængs og bol­fisk­skipanna og sterkum bol­fisk­mörkuðum. Þar er jafn­framt tekið fram að sala loðnu­afurða hafi farið ró­lega af stað og að áfram séu áskoranir í rekstri hlut­deildar­félagsins Arctic Fish. Eiga enn eftir að selja töluvert af loðnu Gunnþór B. Ingva­son, for­stjóri Síldar­vinnslunnar, segir árið fara vel af stað og að rekstur félagsins hafi al­mennt gengið vel á tíma­bilinu. „Árið fer vel af stað og rekstur félagsins hefur almennt gengið vel á tímabilinu. Veiðar og vinnsla uppsjávarfisks og bolfisks hafa gengið vel og afurðaverð í bolfiski hefur verið hátt. Reksturinn á fjórðungnum ber þess merki að ytri skilyrði greinarinnar eru hagfelld. Eftirspurn eftir sjávarafurðum er mikil og verð hafa hækkað,“ segir Gunnþór í tilkynningu. Hann segir einnig að loðnuvertíðin hafi gengið vel, þótt endanleg afkoma hennar ráðist að hluta af sölu afurða á næstu mánuðum. „Loðnuvertíðin gekk vel þó enn eigi eftir að selja töluvert af loðnuafurðum vertíðarinnar og mun þróun afurðaverðs á næstu mánuðum því hafa áhrif á endanlega afkomu vertíðarinnar,“ segir hann. Síðar í yfirlýsingunni dregur Gunnþór saman stöðuna með þessum orðum: „Nú erum við að skila góðum ársfjórðung, þar sem kemur saman samspil góðrar loðnuvertíðar og há fiskverð. Við megum ekki gleyma því að á sama tíma hafa verið töluverðar kostnaðarhækkanir hér heima, álögur á greinina hafa hækkað, vextir hafa hækkað og óvissuástand viðvarandi víða á okkar helstu mörkuðum. Íslenskur sjávarútvegur þarf stöðugt að vera á tánum til að gæta að samkeppnishæfni sinni til framtíðar.“ Sterkir bol­fisk­markaðir Bol­fisk­hlutinn gekk einnig vel á fjórðungnum. Í kynningu Síldar­vinnslunnar segir að mikil eftir­spurn sé eftir bol­fiska­furðum í Bret­landi og Evrópu og að verð séu há. Sala á ferskum og frystum þorsk- og ýsu­afurðum hafi gengið ágæt­lega, þó að verð hafi ekki hækkað til jafns við sjófrystingu og salt­fisk­markaði. Þá hafi eftir­spurn eftir ufsa verið mikil og verð hækkað. Frysti­togarinn Blængur fiskaði vel á fjórðungnum og land­vinnsla í Grinda­vík gekk vel. Í upp­gjörinu kemur jafn­framt fram að vinnsla félagsins í Grinda­vík hafi gengið án raskana, þrátt fyrir áfram­haldandi kvikusöfnun á Reykja­nes­skaga. Evran tekin við af dalnum Upp­gjörið er fyrsta upp­gjör Síldar­vinnslunnar eftir að félagið breytti starfrækslu­gjald­miðli sínum úr Bandaríkja­dal í evru frá og með 1. janúar 2026. Félagið segir breytinguna endur­spegla breytt eðli rekstrarins, tekju­streymi og fjár­hags­legt um­hverfi þess. Stór hluti tekna og kostnaðar tengist er­lendum mörkuðum og við­skiptum í er­lendum gjald­miðlum, þar sem evran vegur þyngst. Í fjár­festa­kynningu félagsins er tekið fram að breytingin breyti ekki bók­færðu virði heildar­eigna, heildar­skulda eða eigin­fjár sam­stæðunnar. Sterk fjár­hags­staða Heildar­eignir Síldar­vinnslunnar námu 966,6 milljónum evra í lok mars, eða 138,8 milljörðum króna. Eigið fé nam 641,3 milljónum evra, jafn­virði 92,1 milljarðs króna, og eigin­fjár­hlut­fallið var 66,3%. Vaxta­berandi skuldir námu 177,2 milljónum evra í lok tíma­bilsins og höfðu lækkað um 17,3 milljónir evra frá áramótum. Hand­bært fé frá rekstri nam 24,8 milljónum evra og hand­bært fé í lok mars var 66,5 milljónir evra. Félagið greiddi jafn­framt arð á fyrsta árs­fjórðungi. Aðal­fundur samþykkti 3.075 milljóna króna arð­greiðslu, sem jafn­gildir 1,67 krónum á hlut, og var arðurinn greiddur 25. mars. Arctic Fish áfram þungt Þrátt fyrir sterkt upp­gjör sjávarút­vegs­hlutans bendir Síldar­vinnslan á að rekstrar­um­hverfi fisk­eldis sé áfram þungt. Það sjáist meðal annars á upp­gjöri hlut­deildar­félagsins Arctic Fish á fyrsta árs­fjórðungi. Gunnþór segir fyrir­hugaða gjald­töku valda áhyggjum, sér­stak­lega í ljósi þess að hlut­hafar stærstu fisk­eldis­fyrir­tækjanna hafi þegar lagt þeim til aukið rekstrarfé á síðasta ári. Hann segir ekki sjálf­gefið að slíkur stuðningur haldi áfram við óbreyttar aðstæður. Að mati félagsins eru helstu þættir sem þyngja rekstur fisk­eldis að veru­legu leyti á áhrifa­sviði stjórn­valda, þar á meðal gjöld, inn­lendur kostnaður og sterk króna. Búast við 105 til 115 milljóna evra EBITDA á árinu Síldar­vinnslan gerir ráð fyrir að EBITDA ársins 2026 verði á bilinu 105 til 115 milljónir evra. Spáin byggir meðal annars á því að út­hlutun afla­heimilda fisk­veiðiársins 2026/2027 verði sam­bæri­leg og á fyrra ári, að mjöl- og lýsis­markaðir verði sterkir og að af­urða­verð haldist stöðugt miðað við núverandi verð. Óvissuþættirnir eru þó margir. Félagið nefnir meðal annars göngu­mynstur fiski­stofna, mögu­legar nýjar við­skipta­hindranir, ófrið í heiminum, orku­verð, hækkun að­fanga og elds­um­brot. Gunnþór bendir einnig á að niður­stöður úr vorralli Haf­rannsókna­stofnunar gefi ekki til­efni til bjartsýni og að lík­legt sé að ráðgjöf í þorski dragist áfram saman á næsta ári. Þá sé óvissa um að­gang ís­lenskra skipa að færeyskri lögsögu í haust, þar sem samningur Ís­lands og Færeyja rennur út í ágúst. Niður­staðan er að Síldar­vinnslan skilar mjög sterkum fyrsta árs­fjórðungi, drifnum áfram af loðnu, háu fisk­verði og góðum bol­fisk­rekstri. Á sama tíma minna stjórn­endur á að myndin er ekki áhættu­laus: loðnu­afurðir eru enn að hluta óseldar, þor­skráðgjöf kann að lækka, orku­verð er ótryggt og fisk­eldi stendur frammi fyrir erfiðu rekstrar­um­hverfi.

Share this article