Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Síldarvinnslan hagnast um 1,7 milljarða

Read Full Article →

Síldarvinnslan skilaði 11,9 milljóna evra hagnaði, eða sem nemur 1,7 milljörðum króna. Afkoma félagsins jókst umtalsvert frá sama tímabili í fyrra þegar félagið hagnaðist um 4,5 milljónir evra. Útgerðarfélagið birti uppgjör eftir lokun markaða í dag. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir að reksturinn hafi gengið afar vel á fyrri árshelmingi og að góð loðnuvertíð vegi þar þungt. „Vertíðin gekk afar vel, bæði veiðar og vinnsla, og tókst að vinna stóran hluta aflans til manneldis. Kolmunnaveiðar hafa einnig gengið vel og afurðaverð verið almennt hátt. Þegar margt fellur saman með þessum hætti skilar það sér eðlilega í rekstrinum,“ segir Gunnþór. Tekjur Síldarvinnslunnar á fjórðungnum jukust um 16% milli ára og námu 78,3 milljónum evra eða um 11,3 milljörðum króna. EBITDA-hagnaður félagsins nærri tvöfaldaðist milli ára og nam 27,2 milljónum evra eða um 3,9 milljörðum króna. Arctic Fish hafði neikvæð áhrif á afkomuna Gunnþór segir að þótt rekstur félagsins hafi gengið vel á fjórðungnum sé rekstrarumhverfið áfram krefjandi og töluverð óvissa fram undan. Hann segir til að mynda að það séu vonbrigði að ekki hafi tekist að afgreiða frumvarp til laga um lagareldi á Alþingi í vor. „Fiskeldi á Íslandi er ung atvinnugrein sem starfar í harðri alþjóðlegri samkeppni, en býr engu að síður við mjög þunga skattlagningu. Það er mikilvægt að greinin fái skýrt, fyrirsjáanlegt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi til framtíðar.“ Rekstur hlutdeildarfélaga hafði neikvæð áhrif á rekstur Síldarvinnslunnar að fjárhæð 4 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi, eða um 580 milljónir króna. Það má líklega að stærstum hluta rekja til Arctic Fish sem er í 35,9% eigu SVN. Fiskeldisfyrirtækið tapaði 18,3 milljónum evra, eða um 2,6 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Að lokum segist Gunnþór að félagið geti verið mjög ánægt með afkomu fyrri árshelmings. Góður afli, há afurðaverð og góð nýting hafi skilað afkomu sem standi upp úr þegar horft er til undanfarinna ára. „Síldarvinnslan stendur sterk eftir góðan fyrri helming ársins. Þótt einhver óveðursský séu fram undan höfum við engu að síður góða ástæðu til að vera bjartsýn til næstu mánaða og ætlum áfram að einbeita okkur að því sem við getum sjálf haft áhrif á: að reka félagið vel, nýta hráefnið sem best og skapa sem mest verðmæti úr þeim auðlindum sem okkur er treyst fyrir.“

Share this article