Karólína Einars Maríudóttir skrifar: Plata vikunnar að þessu sinni er samansafn laga sem voru samin sérstaklega fyrir þættina 20 og eitthvað. Þættirnir 20 og eitthvað voru frumsýndir á RÚV 17. apríl 2026 og plata samnefnd þáttunum kemur út þegar síðasti þátturinn fer í loftið. Verkið var í höndum hljómsveitarinnar FLOTT en hana skipa Ragnhildur Veigarsdóttir, pródúsent, lagasmiður og hljómborðsleikari og Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, laga- og textasmiður ásamt handritshöfundunum og leikurunum Arnóri Björnssyni og Óla Gunnari Gunnarssyni. Um hljóðblöndun sá Elvar Smári. FLOTT hefur farið um víðan völl, unnið til verðlauna og hefur orð á sér fyrir hnyttna textagerð og. Sveitin hefur komið reglulega fram í sjónvarpi allt frá stofnun í ársbyrjun 2020. Síðasta breiðskífa, Pottþétt FLOTT, kom út 2023. Í grunninn er poppbragur á öllu efni plötunnar 20 og eitthvað sem ferðast um á undiröldu gríns. Til þess að setja hana í samhengi fjalla þættirnir um það að vera 20 og eitthvað ára í Reykjavík. Platan hefst á upphafs- og titillagi þáttanna sem er eitt það sterkasta á plötunni með djúsí bassa og klassískri poppuppbyggingu og tekur sig vel út sem upphafsstef. Sungið er um stefnuleysi og tilvistarkreppu tengda þrítugsaldri eða kvartlífskrís). Lagið Hvernig ertu er drifið áfram af röddum og trommum. Umfjöllunarefnið er svipað því fyrra, óvissa, utanaðkomandi þrýstingur og samanburður. Lagið er fremur einhæft og uppbyggingin línuleg. Póstnúmer á ef til vill að vera versta lag plötunnar og tekst það og reynir á taugarnar þegar það er tekið úr samhengi við söguþráð þáttanna. Kaldhæðnin ræður ríkjum og eftir upptalningu póstnúmera er hlustandinn skilinn eftir með spenntar taugar. Næst er skipt um gír og lagið Ég vil vera skvísa hefst . Það er draumkennd ballaða sem styrkir heildarsvip plötunnar. Þegar viðlagið kemur inn myndast notaleg Mitski-stemning og bakraddir koma sem kallaðar auk ljúfs synþastefs. Textinn snýr að þeim áhrifum sem íslenskt veðurfar hefur á klæðaburðinn á djamminu. Vottur af jólastemningu í synthanum enda er lagið um kulda og djamm í snjó, „ í landi sem byrjar bókstaflega á ís, framleiðið slutty föt úr flís“ . Í næsta lagi, Hefði átt að vera heima, smella Daði Freyr og FLOTT saman. Lagið ber munúðarfullan blæ og fjallar um misheppnað einnar nætur gaman. Notalegt og poppað r’n’b sem hefur góð áhrif á plötuna. Einnar mínútu lagið Vá hvað allt er dýrt kemur óklárað út, einhæft. Plötunni er lokað með laginu Bríet í skóginum sem var alfarið í höndum Vigdísar Hafliðadóttur. Lagið er, rétt eins og mikið af ofangreindu, stútfullt gríni. Vigdís leikur eftir Bríeti og titill lagsins vísar í lag Tvíhöfða, Björk í skóginum. Fyndið lag og mjög óvænt útgáfa undir nafni hljómsveitarinnar FLOTT. FLOTT leikur sér við gerð plötunnar og tekur margar ákvarðanir sem hefðu ef til vill ekki verið teknar í hefðbundinni plötugerð. Gleðin og grínið við gerð tónlistarinnar fer ekki fram hjá neinum. Tónlistin fylgir handriti þáttanna bókstaflega sem gerir að verkum að efnið verður samhengislaust án söguþráðarins í þeim. Lögin styrkja sjónvarpsefnið en platan stendur heldur illa ein. Lögin Póstnúmer, Bríet í skóginum, og Vá hvað allt er dýrt setja strik í reikninginn í annars draumkenndu poppi sem fylgir poppuppskriftinni. Hvernig virkar stjörnugjöf Rásar 2? Fimm stjörnur: Klassík. Hér er allt eins og best verður á kosið. Platan setur mark sitt á tónlistarsöguna til framtíðar. Fjórar og hálf stjarna: Lygilega góð en tíminn leiðir í ljós hvort hún telst klassík. Fjórar stjörnur: Framúrskarandi. Hún er áhrifamikil og næstum því hvert einasta lag er frábært. Hlustendur sem eru ekki alltaf hrifnir af þessum flytjanda eða tónlistarstefnu eiga eftir að kunna að meta hana. Þrjár og hálf stjarna: Frábær. Ef þetta er tónlistarstefna að þínu skapi þá hugnast þér þessi plata. Ef þú heldur upp á flytjandann áttu eftir að elska hana. Þrjár stjörnur: Góð. Flytjandinn var samur við sig og það heppnaðist með ágætum. Tvær og hálf stjarna: Meh. Annað hvort reyndi flytjandinn eitthvað nýtt sem gekk ekki alveg upp eða hann var ekki upp á sitt besta. Tvær stjörnur: Sæmileg. Jafnvel þótt þú sért mikill aðdáandi þarftu talsverða sjálfsblekkingu til að telja þér trú um að þessi sé góð. Ein og hálf stjarna: Láttu þessa eiga sig. Ein stjarna: Léleg. Þú ættir eiginlega að kynna þér hana, þó ekki nema bara til að heyra hversu yfirgengilega slæm hún er. Karólína Einars Maríudóttir er tónlistarkona í hljómsveitinni Gróu og hefur setið í dómnefnd Kraumsverðlaunanna.