Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsta stig ÍBV síðan í 1. umferð

Read Full Article →

Frá því ÍBV gerði jafntefli við FH í 1. umferð Bestu deildarinnar hefur ekkert gengið hjá eyjaliðinu (og reyndar ekki hjá FH heldur, en það er önnur saga). Það var því kærkomið fyrir eyjamenn að næla sér í stig í kvöld þegar ÍA og ÍBV skildu jöfn, 2-2 á Akranesi. Skagamenn eru þó væntanlega súrir því þeir komust í 2-0 með mörkum Gísla Laxdals Unnarssonar og Gísla Eyjólfssonar en Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Róbert Elís Hlynsson skoruðu mörk ÍBV og sáu til þess að leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli. Uppskera Skagamanna einnig undir væntingum ÍBV hefur þar með tvö stig í deildinni en er áfram á botninum, með jafn mörg stig og FH sem er sæti ofar en með skárri markatölu. FH á þar að auki leik til góða, á móti Víkingi annað kvöld. ÍA er í 7. sæti með níu stig, en níu stig af 24 mögulegum er þó líklega undir væntingum Skagamanna miðað við vonir þeirra og þrár fyrir leiktíðina. Áttundu umferð Bestu deildar karla lýkur annað kvöld með fimm leikjum. KA og Valur eigast við klukkan 18:00 og á sama tíma mætast Keflavík og Þór. Klukkan 19:15 verður svo blásið til leiks í viðureignum Víkings og FH, Stjörnunnar og Fram og Breiðabliks og KR.

Share this article