Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mikið undir í leikjum kvöldsins

Read Full Article →

FH tekur á móti Skagamönnum í leik sem hefst klukkan korter yfir sjö á Kaplakrikavelli, en FH-ingar eru enn í leit af sínum fyrsta sigri á leiktíðinni og hafa aðeins tvö stig í 11. sæti Bestu deildarinnar eftir átta leiki. Uppskera Skagamanna hefur líka verið undir væntingum á Akranesi því ÍA er í áttunda sæti með níu stig af 24 möglegum. Leikurinn er því afar þýðingamikill fyrir bæði lið. ÍA getur með sigri komið sér betur upp töfluna, en FH sæti vel eftir í botnbaráttunni takist liðinu ekki að vinna í kvöld. Þá er hinn leikur kvöldsins viðureign Fram og Breiðabliks. Fram situr í þriðja sæti með 17 stig en Breiðablik er í fjórða sæti með 15 stig. Blikar fara upp fyrir Framara með sigri en ef Fram tækist að vinna myndu Framarar ná fimm stiga forskoti á Breiðablik. Það er því mikið í húfi í leikjum kvöldsins. Níundu umferð deilarinnar lýkur svo á sunnudag með fjórum leikjum, en svo tekur við tveggja vikna hlé á keppni í Bestu deild karla vegna landsleikjahlés. Í því mun Ísland spila vináttuleik við Argentínu í Bandaríkjunum, en áður en landsleikjahléð hefst formlega spilar íslenska landsliðið vináttuleik við Japan í Tókýó á sunnudagsmorgun. Leikir 9. umferðar föstudagur 29. maí kl. 19.15: FH-ÍA kl. 19.15: Fram-Breiðablik sunnudagur 31. maí kl. 17.00: ÍBV-Keflavík kl. 17.00: KR-KA kl. 17.00: Þór-Stjarnan kl. 19.15: Valur-Víkingur

Share this article