Innlent | mbl | 21.5.2026 | 23:48 „Auðvitað myndi það hjálpa“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Staða ríkisins á vinnumarkaði og aukinn kostnaður einkarekinna fyrirtækja er meðal þess sem þyrfti að leggja áherslu á á íslenskum vinnumarkaði. Einnig þarf að taka til greina áhrifaþætti eins og hækkanir í hinum opinbera rekstri, sem hafa verið meiri en í einkageiranum, og fríðindi ríkisstarfsmanna, eins og styttri vinnutími og uppsagnarvernd. Þá þyrftu atvinnurekendur að svara fyrir af hverju þeir hafa samþykkt launahækkanir sem þeir velta svo út í verðlagið. Þetta er meðal þess sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði, spurður hvaða breytingar á ríkisfjármálum eða efnahagsstefnu stjórnvalda myndu að mati Seðlabankans hraða lækkun verðbólgu og vaxta fyrir íslensk heimili. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, bar þessa spurningu upp á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í dag um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2025. Ekki hægt að nota ríkissjóð eins og harmonikku Ásgeir sagði svarið lengra en tími væri fyrir á fundinum en lagði áherslu á þrennt. „Í fyrsta lagi höfum við verið að berjast við of mikla eftirspurn frá einkageiranum, auðvitað myndi það hjálpa eins mikið og hægt er ef það kæmi inn eftirspurn frá ríkinu eða opinberum aðilum,“ sagði hann. Seðlabankinn geri sér þó grein fyrir því að ekki sé hægt að nota ríkissjóð eins og harmonikku – draga hann sundur og saman. Meiri hækkanir hjá hinu opinbera en í einkageiranum Í öðru lagi nefndi hann stöðu ríkisins á vinnumarkaði. Að sumu leyti hefðu ríkið og sveitarfélögin farið fram með heldur gáleysislegum hætti. Töluvert meiri hækkanir hefðu verið í hinum opinbera rekstri heldur en í einkageiranum, sérstaklega á síðustu árum. Þá hefði ríkið einnig gengið áfram í styttingu vinnutíma. Þetta hefði að einhverju marki, eins og forsvarsmenn verkalýðsfélaga og almenna vinnumarkaðarins tali um, valdið vantrausti. Þeir verði að geta gert kjarasamninga með tiltölulega lágum kauphækkunum án þess að búast við því að ríkið fari þá í kjölfarið og hækki meira eða gefi meiri fríðindi. Þar að auki hafi ríkisstarfsmenn ákveðin fríðindi eins og til dæmis uppsagnarvernd. Alþingi sé kannski ekki allsráðandi í þeim málum en þetta komi þó að rekstri hins opinbera. Ekki mikil eftirspurn frá þeim sem fara með stjórn ríkisfjármála Í þriðja lagi sagði hann mjög mikilvægt að ríkið auki ekki kostnað á fyrirtæki. Raunar hefði það verið hluti þjóðarsáttar á sínum tíma að fyrirtækjum voru gefin fyrirheit um að ríkið myndi ekki auka á þau kostnað. Að einhverju leyti þurfi þetta samtal líka að eiga sér stað við fyrirtækjaeigendur. Ástandið hefði verið þannig, sérstaklega síðustu tvö árin, að launin hækka og síðan hækka fyrirtækin verð. „Það má alveg spyrja atvinnurekendur að því: af hverju voruð þið að samþykkja launahækkanir sem þið raunverulega ætluðuð að velta út í verðlagið, sem dæmi,“ sagði Ásgeir. Ef lögð væri áhersla á þessi þrjú atriði á vinnumarkaði myndi skapast meira traust, fyrirtækin gætu hætt að hækka verð og hætt að velta hækkunum út í verðlagið og að sama skapi gætu verkalýðsfélögin setið á sér, sérstaklega á almenna markaðinum. „Annars er erfitt fyrir okkur að vera að gefa sérstaka ráðgjöf í opinberum fjármálum. Það hefur ekki verið mikil eftirspurn eftir því almennt séð, allavega ekki hjá þeim sem fara með stjórn ríkisfjármála.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Auðvitað myndi það hjálpa“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Hugðust myrða gyðinga Fimm handteknir í stóraðgerð lögreglu Dagur Sigurðsson í nýtt starf? Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Bílasalar í sæti lögreglumanns Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Nýjast á mbl.is » „Auðvitað myndi það hjálpa“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Hugðust myrða gyðinga Fimm handteknir í stóraðgerð lögreglu Dagur Sigurðsson í nýtt starf? Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Bílasalar í sæti lögreglumanns Úrskurði um vanhæfi snúið við Hildur fundar í kvöld og á morgun Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð