Eins og búist var við hækkaði peningastefnunefnd stýrivexti í síðustu viku. Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson benti á það sem flestallir vissu, að verðbólgan væri drifin áfram af launahækkunum á opinberum markaði, skattahækkunum, hækkunum á opinberum gjöldum og hækkunum á innfluttum vörum. Hafi fólk vonast til að ríkisstjórnin myndi taka þessi orð til sín kæfði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þær vonir í fæðingu. Í viðtali við Sýn þrætti hann fyrir að ríkisstjórnin hefði nokkuð með mikla verðbólgu að gera en viðurkenndi þó að hún hefði ekki náð þeim árangri sem hún hefði viljað í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin hefði þó staðið með Seðlabankanum með því að skila í fyrsta sinn frá árinu 2019 hallalausum fjárlögum. Eins og margoft hefur verið bent á byggja áætlanir ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög á næsta ári á brostnum forsendum. Þrátt fyrir það halda stjórnarliðar áfram að tala eins og markmiðið sé þegar í höfn. Minnir þetta óneitanlega á loforð fjölmargra um hver áramót að nú muni þeir taka heilsuna föstum tökum, án þess að láta þó efndir fylgja orðum. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .