Viðskipti | mbl | 22.5.2026 | 11:12 „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut. Ljósmynd/Íslandshótel Setja bókamerki Reiknað er með að öllu starfsfólki sem verður sagt upp hjá Hilton Nordica og Natura-hótelunum verði endurráðið hjá Íslandshótelum í september. Þetta segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við mbl.is. Hilton Nordica og Natura-hótelin eru rekin af hótelkeðjunni Iceland Hotel Collection by Berjaya en fasteignirnar eru í eigu fasteignafélagsins Reita. Samið hefur verið um leigulok milli þeirra þann 31. ágúst og mun Íslandshótel í kjölfarið taka að sér reksturinn. Frétt af mbl.is Taka við rekstri tveggja sögufrægra hótela Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela. Ljósmynd/Aðsend Í gær var svo greint frá því að á þriðjudaginn kemur verði öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna sagt upp, eða 300 manns. Eru uppsagnirnar liður í færslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela. Boðað var til fundarins með tölvupósti og fóru fulltrúar mannauðsdeildar Berjaya með fundarstjórn. Frétt af mbl.is Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ „Þarna er fullt af fólki sem er búið að vinna þarna mjög lengi og við viljum bara koma fram við þetta fólk af virðingu og vinnum þetta í nánu samstarfi við trúnaðarmenn og stéttarfélögin. Öllu þessu fólki verður boðið að koma í samtal við okkur og eins og hefur komið fram þá gerum við ekki ráð fyrir öðru en að ráða þetta fólk beint til okkar,“ segir Davíð Torfi er hann er spurður um uppsagnirnar. Greint hefur verið frá því að starfsfólk hafi lýst yfir óánægju sinni og hafi upplifað óvissu um framtíð sína eftir fundinn. „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi,“ segir Davíð. „Við hefðum viljað eiga þetta samtal við starfsfólkið bara á sama tíma og það fær þessar fréttir og ef við hefðum verið þarna í þessum sporum hefðum við sjálfsagt reynt að upplýsa fólkið okkar fyrr þannig að fólk væri svona meira undirbúið fyrir þetta allt saman, en við bara kappkostum það okkar megin að reyna að hafa þetta ferli sem þægilegast fyrir starfsfólkið og bara tökum því opnum örmum hérna hjá okkur.“ Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dótakassar borgarstjórans Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Fleira áhugavert Námsgögn fjársvelt í áratugi Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Markleysið enn einn áfellisdómur Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Tveir lífeyrissjóðir sameinast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Ný frjósemisvernd hjá Verði Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Hagar borga 3,3 milljarða í arð Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Tveir lífeyrissjóðir sameinast Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Ný frjósemisvernd hjá Verði Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Anna Hildur til Ísland Duty Free Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Arnaldur skipaður nýr formaður Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dótakassar borgarstjórans Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Fleira áhugavert Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Vill að nefndin fjalli um löggjöfina gullhúðuðu „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Tveir lífeyrissjóðir sameinast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Ný frjósemisvernd hjá Verði Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Hagar borga 3,3 milljarða í arð Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Tveir lífeyrissjóðir sameinast Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Ný frjósemisvernd hjá Verði Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Anna Hildur til Ísland Duty Free Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Arnaldur skipaður nýr formaður Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig