Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.5.2026 | 15:56 Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut. Ljósmynd/Íslandshótel Setja bókamerki Forsvarsmenn hótelkeðjunnar Iceland Hotel Collection by Berjaya segjast hafa neyðst til að grípa til erfiðra aðgerða og ljúka ráðningarsambandi við starfsfólk sitt á Hilton Nordica og Natura-hótelunum. Uppsagnirnar séu þó framkvæmdar í samræmi við ráðgjöf lögfræðinga og er bundið vonir við að öllu starfsfólkinu verði boðið starf þegar Íslandshótel tekur við rekstri fasteignanna. Í gær var greint frá því að á þriðjudaginn kemur verði öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna sagt upp, eða 300 manns. Eru uppsagnirnar liður í færslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela. Frétt af mbl.is Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Í samræmi við ráðgjöf lögfræðinga Í tilkynningu frá Iceland Hotel Collection by Berjaya segist hótelkeðjan vilja koma á framfæri skýringum varðandi breytingar á leigusamningum fasteignanna við Suðurlandsbraut 2 og Nauthólsveg 52 sem nú hýsa Hilton Reykjavik Nordica og Berjaya Reykjavik Natura Hotel. „Rétt er að taka fram að um ræðir samkomulag á milli Reita fasteignafélags og félagsins um lok leigusamninga á tveimur fasteignum, sem frá og með 1. september 2026 verða ekki lengur hluti af leigusamningum Berjaya á Íslandi. Þrátt fyrir eindreginn vilja félagsins til áframhaldandi leigu náðust því miður ekki samningar við Reiti fasteignafélag um áframhaldandi leigu þessara fasteigna. Félagið mun eftir sem áður halda áfram óbreyttum rekstri þessara hótela til og með 31. ágúst en þá hætta hótelin Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykjavik Natura Hotel rekstri. Þar sem félagið verður ekki áfram leigutaki að umræddum fasteignum neyðist félagið til að grípa til erfiðra aðgerða og ljúka ráðningarsambandi við starfsfólk á þessum tveimur starfsstöðvum, sem er hluti af formlegu ferli sem þarf að eiga sér stað í ljósi þessarar stöðu. Uppsagnirnar eru framkvæmdar í samræmi við ráðgjöf lögfræðinga Berjaya, í nánu samstarfi við trúnaðarmenn stéttarfélaga sem og annarra hagsmunaaðila.“ Frétt af mbl.is „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Binda vonir við að öllum verði boðið starf Segir í tilkynningunni að starfsmannafundir hafi verið haldnir á báðum hótelunum í gær þar sem rætt hafi verið við starfsfólk og því kynntar fyrirhugaðar uppsagnir og næstu skref. „Félagið leggur ríka áherslu á að standa faglega og af ábyrgð að þessu ferli, styðja við starfsfólk og þakkar félagið starfsfólki sínu fyrir framúrskarandi störf, skilning í erfiðum aðstæðum og tryggð í gegnum árin. Íslandshótel hafa opinberlega gefið út að öllum verði boðið starf og er það von Berjaya að svo verði.“ Þess ber að geta að Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, sagðist, í samtali við mbl.is fyrr í dag, ekki gera ráð fyrir öðru en að allt starfsfólkið kæmi til Íslandshótela. „Þrátt fyrir þessar breytingar er Iceland Hotel Collection by Berjaya áfram eitt stærsta hótelfélag landsins með 11 hótel og um 600 starfsmenn og fjölbreyttan rekstur víðs vegar um landið.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Halda áfram eftir helgi: „Ágætis fundur“ Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Verður sá dýrasti í sögunni Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Gagnrýna hvata örorkukerfisins Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Halda áfram eftir helgi: „Ágætis fundur“ Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Verður sá dýrasti í sögunni Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýrslan afhjúpar stöðuna: „Ekkert jafnræði“ „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn í meirihlutaviðræður Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article