Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukin áhersla á bátahlutann

Read Full Article →

Hjónin Hjalti Gunnarsson og Sandra Finnsdóttir hafa keypt 70% hlut í JE Vélaverkstæði á Siglufirði. Hjalti segir að fyrirtækið ætli áfram að þjónusta bát vel. JE Vélaverkstæði var í meirihlutaeigu Guðna Sigtryggssonar og Gunnars Júlíussonar frá 2001 og er rótgróið vélaverkstæði og bátasmiðja. „Við tókum við 1. apríl. Þetta er stór vinnustaður hérna á Siglufirði með alls fjórtán manns í vinnu. Þetta er því fyrirtæki sem skiptir máli í atvinnulífi staðarins og styður mjög við sjávarútveginn sem hér er stundaður,“ segir Hjalti. Fyrri eigendur eiga áfram 30% í fyrirtækinu, þ.e. Guðni Sigtryggsson, Gunnar Júlíusson og Skarphéðinn Fannar Jónsson verkstjóri sem mun starfa áfram hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur þjónustað frystitogarann Sólberg ÓF, rækjutogara, rækjuverksmiðjuna og Primex sem vinnur verðmæt efni úr rækjuskel. Þá þjónustar fyrirtækið líka smábáta hvaðanæva af landinu. Þar er um að ræða ýmsa smíði og viðhaldsvinnu og fyrirtækið er umsvifamikið í plastviðgerðum. Þess má geta að Hjalti var áður vélstjóri á Sólberginu og fylgdi eftir smíði skipsins á sínum tíma í Tyrklandi. Skipinu hafa fylgt mörg verkefni fyrir JE Vélaverkstæði í gegnum tíðina. Meðan skipið er á sjó er verið að smíða ýmsa hluti í það, festingar og færibönd og margt fleira. Og svo bætast við verkefni þegar það er í landi. Þjónusta báta allt frá Snæfellsnesi til Breiðdalsvíkur „Við erum með bátasmiðju sem hét áður Siglufjarðar-Sveigur en er nú hluti af JE Vélaverkstæði. Síðasta nýsmíðin sem fór frá okkur var Stakkhamar SH árið 2015. Hann er einmitt á leið til okkar um mánaðamótin í vélaskipti og klössun. Við þjónustum nefnilega báta allt frá Snæfellsnesi austur á Breiðdalsvík.“ Nú er bátum lyft með öflugum gámalyftara. Bátasmiðjan er með 40 tonna lyftigetu og eru áform uppi um að auka hana. Hjalti segir breytingarnar í rekstrinum fram undan einmitt snúast um aukin umsvif í þjónustu við bátaflotann. Þá þarf að auka lyftigetuna helst upp í 100 tonn. Litlu bátarnir eru allir undir 20 tonn en stærri yfirbyggðir bátar eru yfirleitt á bilinu 25-38 tonn. Búnaðurinn ræður hins vegar ekki við allra stærstu og nýjustu bátana. En á því verður breyting með aukinni lyftigetu. „Við erum að fara í viðræður við bæinn um dálitlar hafnarframkvæmdir sem nauðsynlegar eru til að koma fyrir aðstöðu fyrir bátalyftu, svokallaðri travel lift. Bærinn hefur tekið vel í okkar málaleitan,“ segir Hjalti. Með þessum breytingum sér Hjalti fyrir sér verulega aukna verkefnastöðu hjá fyrirtækinu. Fjöldi aðkomubáta er gerður út frá Siglufirði á haustin og veturna. Það myndi muna miklu að auka þjónustugetuna við þessa báta.

Share this article