Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval

Read Full Article →

Sögu Véla og verkfæra ehf. má rekja allt til ársins 1919 en þá stofnaði Guðmundur Jónsson trésmiður umboðs- og heildverslun í eigin nafni. Hann byggði upp öflug tengsl við norræna birgja, marga sem enn eru samstarfsaðilar fyrirtækisins. Guðmundur stofnaði Vélar og verkfæri hf. árið 1942, ásamt syni sínum og tengdasonum, og störfuðu fyrirtækin tvö samhliða þar til þau sameinuðust árið 2018. Linda Kristín Sveinsdóttir rekur í dag Vélar og verkfæri ásamt bróður sínum, Birni Valdimar Sveinssyni, en þau eru barnabarnabörn stofnandans. „Vöruframboðið í Vélum og verkfærum er mjög fjölbreytt, allt frá handverkfærum til hönnunarlausna en hjartað í rekstrinum er hurða- og gluggabúnaður líkt og hefur verið frá upphafi. Stærsti birginn okkar er Assa Abloy og öryggisvörurnar eru það sem við leggjum mesta áherslu á. Þær eiga að hámarka bæði öryggi og Linda Kristín Sveinsdóttir og Björn Valdimar Sveinsson reka Vélar og verkfæri. þægindi og það er ótrúlega fjölbreytt svið,“ segir Linda. Þjónustum fjölbreyttan hóp viðskiptavina Linda segir að Vélar og verkfæri sé annars vegar hefðbundin heildsala, þar sem boðið er upp á sérlausnir og flóknari búnað. Þá rekur Vélar og verkfæri einnig verslunina Lykillausnir/Verkfæralausnir þar sem áherslan er meira á verkfæri, snjallvörur og öryggisvörur fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki. Þar starfa jafnframt lásasmiðir fyrirtækisins, sem styrkir tengslin milli vöru og þjónustu. Hún segir að þrátt fyrir þessa skiptingu sé lögð áhersla á að þetta sé ein samfelld starfsemi frekar en aðskilin fyrirtæki. „Á sýningunni Verk og vit kemur þessi heildarmynd skýrt fram. Við erum að taka þátt á Verk og vit sýningunni í fjórða sinn og í hvert skipti hefur básinn okkar stækkað.“ Í ár eru Vélar og verkfæri með þrískiptan bás þar sem lögð er áhersla á ólíka þætti starfseminnar. Í einum hlutanum eru verkfæralausnir kynntar, meðal annars með rafmagnsverkfærum frá SKIL og brýnsluvél frá TORMEK. Í miðjunni er síðan Assa Abloy sem er stærsti birgir Véla og verkfæra og helsti samstarfsaðili fyrirtækisins frá árinu 1933. Sérfræðingar frá fyrirtækinu verða á staðnum til að kynna nýjustu lausnir í aðgangsstýringu, meðal annars PULSE sýlendra, DoorBird dyrasímakerfi og Yale Home snjalllausnir. „Þar er áhersla á lyklalausar lausnir, læsingar og snjallbúnað sem endurspeglar þróun markaðarins,“ segir Linda. „Þá verður einnig kynnt vörulína frá Frost á sýningunni, en það er danskt hönnunarfyrirtæki sem hefur vakið athygli fyrir skandinavíska hönnun í níu mismunandi litum. Vöruframboð Frost hefur þróast hratt, frá handföngum og einföldum baðherbergisvörum yfir í blöndunartæki, spegla, fatahengi, skóhillur og aðrar lausnir fyrir heimili og fyrirtæki.“ Afar jákvæð reynsla af sýningunni Linda segir að á Verk og vit sýningunni verði fulltrúar erlendra samstarfsaðila sem styrki bæði kynninguna og samtalið við gesti. „Reynsla okkar af þátttöku á sýningunni hefur verið afar jákvæð. Undirbúningurinn fer fram í nánu samstarfi við birgja og starfsfólk og á sýningunni skapast einstakt tækifæri til að hitta viðskiptavini, kynna vörur og byggja upp tengsl.“ Hún segir að áhuginn haldi áfram eftir sýninguna, enda gefist fólki tækifæri til að sjá, snerta og prófa vörurnar. „Það opnar fyrir áframhaldandi samtöl og viðskipti þegar sýningu lýkur. Þátttakan hefur þannig reynst bæði skemmtileg og afar verðmæt fyrir fyrirtækið, ekki síst sem vettvangur til að sýna breiddina, styrkja tengslanetið og skapa aukna vitund um starfsemina,“ segir Linda að lokum.

Share this article